Bændablaðið - 11.03.2010, Page 20

Bændablaðið - 11.03.2010, Page 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 Vestur í Búðardal er að hefjast framleiðsla á litlum timburhús- um sem hentað geta sem frí- stundahús, veiði- og fjallakofar eða verið viðbót við gistirými á ferðaþjónustubæjum. Það er Ágúst Magnússon húsasmíða- meistari sem ræðst í þessa smíði en hann er með góða aðstöðu í Búðardal, 800 fermetra verk- stæði þar sem hægt að smíða og reisa húsin að fullu undir þaki. Ágúst hefur þróað þessi hús í samstarfi við Ólaf Axelsson og Richard Briem, arkitekta hjá VA arkitektum ehf. og þeir félagar geta aðstoðað væntanlega kaupendur allt frá hugmyndastiginu þar til lykillinn er afhentur. Auk smíðarinnar getur það innifalið aðstoð við hönnun húsanna, skipulag lóðar og að afla tilskilinna leyfa til að reisa húsin. Ágúst segir að framleiðslan mið- ist við tvær stærðir smáhýsa, 20 og 25 fermetra að grunnfleti. Ef menn vilja stærra pláss er auðveldast að kaupa fleiri hús og raða þeim saman. Þau eru hönnuð til þess. Þetta eru ekki beinlínis einingahús heldur er hvert hús sniðið að þörf- um kaupenda og þess vegna ekkert í vegi fyrir því að smíða fullbúin ein- býlishús. Í grunnútgáfunni er ekki gert ráð fyrir eldhúsi en lítið mál er að bæta því við, húsið stækkar þó aðeins við það. Húsin eru fullein- angruð svo hægt er að vera í þeim jafnt að sumri sem vetri. Húsin eru flutt á staðinn ýmis í hlutum eða heilu lagi og tekur þrjá til fjóra daga að setja þau upp og ganga frá þeim að fullu. Jafnlangan tíma tekur að taka þau niður ef ætl- unin er að flytja þau. Smíðatíminn er ekki langur, nokkrar vikur í mesta lagi. Það fer þó eftir því hvernig undirbúningi er háttað á staðnum þar sem þau eiga að rísa, auk þess sem afgreiðslutíminn fer að sjálf- sögðu eftir því hver eftirspurnin verður. Meðalkostnaður við hús er um það bil 200.000 krónur á fer- metrann og er innifalið í því flutn- ingur á staðinn og uppsetning, en ekki annar kostnaður á staðnum, svo sem við grunn eða skipulag lóðar. Verðið getur verið breytilegt eftir því hversu langt þarf að flytja húsin. Ágúst segir að þessi framleiðsla sé fyllilega samkeppnisfær við önnur hús sem á markaðnum eru. Galdurinn á bak við það sé eink- um aðstaðan, að þeir geti unnið allt verkið undir þaki. Það eykur hagræðið og fer betur með hráefn- ið sem unnið er með. Hann vonast eftir því að þegar smíðarnar komast á fullt skrið geti hann verið með 4-5 smiði í vinnu við framleiðsluna. –ÞH Námskeið fyrir þig! Ræktun áhugaverðra krydd-, lauk- og matjurta í eigin garði Kennari: Auður Jónsdóttir garð- yrkjufræðingur Tími: Þrjú námskeið í boði: I: 20. mars, kl. 9-15:30 hjá LbhÍ, Hvanneyri II: 10. apr, kl. 9-15:30 hjá LbhÍ, Reykjum, Ölfusi III: 17. apr, kl. 9-15:30 í Reykja- nesbæ (12.000kr) Verð: 13.000 kr. Ræktum okkar eigin ber Kennarar: Guðríður Helgadóttir forstöðumaður LbhÍ Reykjum og Jón Kr. Arnarson verkefnisstj. LbhÍ Tími: 20. mars, kl. 9-15 hjá LbhÍ á Reykjum, Ölfusi Verð: 12.000 kr. Trjá- og runnaklippingar I Kennari: Einar Friðrik Brynjars- son skrúðgarðyrkjumeistari Tími: Tvö námskeið í boði: I: 20. mars, kl. 9-15:30 hjá LbhÍ á Hvanneyri II: 27. mars, kl. 9-15:30 í Reykjanesbæ (12.000kr) Verð: 13.000 kr. Nýting belgjurta til að auka frjó- semi og afurðargetu jarðvegs Kennari: Jón Guðmundsson plöntulífeðlisfræðingur Tími: 13. apr. kl. 13-15.30 á Egilsstöðum Verð: 6.000kr. Bygging hrossa Kennarar: Þorvaldur Kristjánsson og Eyþór Einarsson kynbóta- dómarar Tími: Þrjú námskeið í boði: I: 13. mars, kl. 9:30-17 á Gauksmýri, Húnavatnssýslu II: 27. mars, kl. 1016:30 á Akureyri III: 17. apríl kl. 10:30-17 á Mið- sitju í Skagafirði Verð: 14.000 kr Notkun varnarefna í landbúnaði og garðyrkju Kennarar: Ýmsir sérfræðingar Tími: 12.-13. apríl kl. 9-16 hjá LbhÍ í Reykjavík Verð: 37.500kr. Allar nánari upplýsingar má finna á www.lbhi.is/namskeid Skráning fer fram á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 Mjaltaþjónar og bætt mjólkurgæði Kennarar: Snorri Sigurðsson sérfræðingur hjá LbhÍ, Gunnar Kjartansson, Hans Egilsson og Kristján Gunnarsson mjólkur- eftirlitsmaður frá SAM Tími: Fimm námskeið í boði: I: 15. mars kl 10-16:30 á Hellu II: 16. mars kl 10-16:30 hjá LbhÍ á Hvanneyri III: 17. mars kl 10:30-17 á Löngumýri í Skagafirði IV: 18. mars kl 10-16:30 í Svein- bjarnargerði, Eyjafirði V: 19. mars kl 10:30-17 á Egils- stöðum Verð: 11.800 kr. Heimavinnsla mjólkurafurða með áherslu á ostagerð Kennari: Þórarinn Egill Sveinsson mjólkurverkfræðingur Tími: Fjögur námskeið í boði: I: 19. mars kl 10-17 hjá LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík II: 20. mars kl 10-17 á Ísafirði III: 21. mars kl 10-17 á Reyk- hólum IV: 26. mars kl 10:30-17:30 á Húsavík Verð: 12.000kr. Forntraktorarmeira en járn og stál! Í samstarfi við Landbúnaðarsafn Íslands og Verktakafyrirtækið Jörva ehf. Kennarar: Bjarni Guðmundsson prófessor við LbhÍ, Jóhannes Ellertsson kennari við LbhÍ, Haukur Júlíusson framkvæmda- stjóri, Sigurður Skarphéðinsson vélvirki og Erlendur Sigurðsson vélameistari Landbúnaðarsafns Íslands Tími: 20. mars, kl. 10-17 á Hvanneyri Verð: 9.900kr. Hæfileikar hrossa Kennarar: Þorvaldur Kristjáns- son, Jón Vilmundarson og Eyþór Einarsson kynbótadómarar Tími: 28. mars, kl. 10–17 á Akur- eyri Verð: 20.000 kr Námskeið í hellulagningum, stíga- og tröppugerð á golf- völlum Kennarar: Ágústa Erlingsdóttir námsbrautarstjóri skrúðgarð- yrkjubrautar LbhÍ og Einar Friðrik Brynjarsson skrúðgarðyrkju- meistari Tími: 22- 24. mars, kl. 9-16 hjá LbhÍ á Reykjum og á Keldnaholti Verð: 35.700 kr. EKKI ER tryggt að til staðar séu nægjanlegar birgðir af lyfjum og bóluefni vegna dýrasjúkdóma. Þetta kom fram í svari sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra við fyr- irspurn sem ég lagði fram á Alþingi og var svarað 17. febrúar sl. Þetta er alvarlegt umhugsunarefni og staða sem menn verða að finna út úr. Tilefni þessarar fyrirspurnar minnar er það að í lok október sl. kom upp heiftarleg lungnasýking í minkabúinu á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Á þessu búi, sem er eitt hið stærsta í landinu, voru 14.000 minkar og sjúkdómur- inn varð á fjórða þúsund dýra að fjörtjóni. Sjúkdómsins varð líka vart víðar í Skagafirði, búinu á Ingveldarstöðum en þar varð tjón- ið ekki eins mikið. Þetta er kannski þeim mun alvarlegra í ljósi þess að þeir Skörðugils-menn – og þar sem ég þekki nokkuð til – höfðu nýlega stækkað mjög búið sitt, byggt upp gríðarlega myndarlega aðstöðu og eflt bústofninn. Eins og við vitum hefur það komið í ljós upp á síðkastið að menn binda núna miklar vonir við loðdýraræktina sem ákveðinn vaxtarbrodd í okkar samfélagi. Ég var sjálfur nýlega á tveimur þjóðfundum í Bolungarvík og á Sauðárkróki, þar sem sýnd var sérstök kynningarmynd um mögu- leika einmitt á loðdýrarækt sem nýsköpun og vaxtarbroddi í land- búnaðinum, og er ekki ólíklegt að ýmsum komi það á óvart. Tjónið í Skagafirði var mjög til- finnanlegt. Formaður samtaka loð- dýrabænda áætlaði að það hefði numið um 12 milljónum króna og fæst það ekki bætt. Til viðbótar kemur síðan annað tjón þegar rækt- un hrynur. Spurningar vakna Spurningin hefur vaknað í huga mjög margra bænda hvort ekki þurfi að hafa reglur um lágmarks- birgðir af bóluefni og lyfjum til þess að mæta því þegar svona fár kemur upp. Ekki einvörðungu vegna loðdýraræktarinnar heldur vegna annarra bústofna líka. Það er ekki við því að búast að hver og einn og bóndi geti legið með slík- ar lyfjabirgðir á eigin kostnað og eðlilegt að menn velti því a.m.k. fyrir sér með hvaða hætti það eigi að hafa reglurnar um þetta. Hver eigi að bera þennan kostnað og þar fram eftir götunum. Heilbrigðisyfirvöld geta sam- kvæmt lyfjalögum skikkað lyfja- heildsölur til þess að eiga nægar birgðir lyfja sem veitt hefur verið markaðsleyfi fyrir. En einungis ef um lyf er að ræða sem hafa fengið markaðsleyfi og slíkt á aðeins við um fáein dýralyf. Þau lyf sem slíkt leyfi hafa ekki eru ekki undirorpin slíkri lagakvöð. Í máli ráðherra kom fram að yfirdýralæknir telur æskilegt að til væru í landinu ákveðnar birgð- ir af nokkrum tegundum sýkla- lyfja fyrir dýr, til að geta brugð- ist hratt við ef á þyrfti að halda vegna óvæntra sjúkdóma í dýrum hér á landi. Vandinn er hins vegar tvenns konar. Þessu fylgir kostn- aður og taka þarf afstöðu til þess hver stendur af honum straum. Og síðan hitt að lyfjabirgðir sem ekki eru nýttar úreldast og því þarf að endurnýja þau reglulega til að þau haldi virkni sinni. Lærum af biturri reynslunni Alþjóðlegi dýralyfjaheimurinn er stór og Ísland er mjög lítill notandi í alþjóðlegu samhengi. Þeim mun mikilvægara er að allir ferlar að innflutningi lyfja og allt í kringum það hér á landi sé sem skjótvirk- astir og skilvirkastir hverju sinni. Einnig er eðlileg krafa að tryggt sé að ákveðinn lyf séu til í landinu þó vissulega verði aldrei hægt að sjá fyrir öllu. Að fenginni þessari bitru reynslu er afar mikilvægt að menn setjist rækilega yfir þetta mál. Að því þurfa að koma bændur, vísindamenn, dýralæknar og stjórnsýslan, svo hægt sé að kanna til þrautar hvað best sé að gera til þess að afstýra tjóni í landbúnaðinum. Og eins og bent hefur verið á þá væri mikilvægt til staðar sé viðbragðsáætlun varð- andi hættulega dýrasjúkdóma. Við erum svo heppin að eiga á að skipa frábæru fólki sem getur tekist á við vandamál af þessu tagi. Krafta og þekkingu þessa fólks þurfum við þess vegna að nýta eins og frekast er unnt til þess að lágmarka skaða. Aðalatriðið núna er að læra af reynslunni; dýrkeyptri reynslunni. Lærum af dýrkeyptri reynslu Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður, fyrrverandi sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra Dýraheilbrigði Smáhýsi smíðuð í Búðardal Ágúst Magnússon húsasmíðameistari býður fram hagkvæma leið til þess að auka við húsakost ferðaþjónustubæja Á þessari tölvumynd má sjá hvernig hægt er að raða húsunum saman. Nýlega setti Mjólkursamsalan á markað nýjan prótein- drykk sem nefnist Hleðsla og inniheldur prótein og kol- vetni. Fyrstu viðbrögð við drykknum hafa verið afar já kvæð meðal íþróttafólks og almennings. Að sögn Björns S. Gunnarssonar, næringarfræðings og vöruþró- unarstjóra MS er Hleðsla nýr ferskur íþróttadrykkur sem inniheldur 100% hágæða mysuprótein, framleitt úr íslenskri mjólk. Skammturinn inniheldur 22 g af pró- teini. Hleðsla er jafnframt án hvíts sykurs og sætuefna og inniheldur agavesafa. Hleðsla hentar vel eftir æfing- ar og milli mála. Hleðsla – nýr pró- teindrykkur frá MS

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.