Bændablaðið - 11.03.2010, Síða 21

Bændablaðið - 11.03.2010, Síða 21
21 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 HÖFUNDUR VERKSINS er Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður, en bók hans um Vestur-Ísafjarðarsýslu, sem Ferða- félag Íslands gaf út árið 1999 undir sama heiti, var samin sem útdráttur úr þessu handriti. Lesanda er fylgt bæ frá bæ frá Langanestá í Arnarfirði að Mölvík undir fjallinu Öskubak milli Kefla- víkur og Skálavíkur ásamt sam- svarandi leiðsögn um sex hreppa í Barðastrandarsýslum. Bújarðir, hver og ein, fá sinn sérstaka kafla svo og þorpin þrjú, Þingeyri, Flateyri og Suðureyri. Hinir fornu hreppar í Vestur-Ísa- fjarðarsýslu voru fimm og í ritinu er að finna almennan inngangs- kafla um hvern hrepp. Tekið skal fram að úr einum hinna fimm hreppa, Auðkúluhreppi, er text- inn í þessu riti aðeins sá sami og í nýnefndri bók frá árinu 1999. Umfjöllun um hreppa og bújarðir í Barðastrandarsýslum er með sama hætti. Hreppar sem fjallað er um í Barða strandarsýslum eru: Gufu- dals sveit, Múlasveit, Barða- strandar hreppur, Flateyjarhreppur, Rauða sands hreppur og Tálkna- fjarðar hreppur. Vinnuhandritið sem hér um ræð- ir er hátt í 5000 blaðsíður af stærð- inni A4 og er allt efni þess flokkað niður á bújarðir, hreppa og þétt- býliseiningar. Meginefni ritsins er umfjöllun um fólk sem búið hefur á jörðum er við sögu koma eða teng- ist þeim með öðrum hætti. En hér er líka að finna staðháttalýsingar, þjóðsagnaefni, örnefnaumfjöllun og kveðskap. Þetta er alhliða 1000 ára saga hreppanna sem fjallað er um. Erfitt er að skilgreina hvers konar rit þetta er. Segja má að þetta sé ættfræðirit, atvinnusaga, menn- ingarsaga, landfræðisaga, kirkju- saga og örlagasaga fólks, allt í senn. Vinnuhandrit þetta er fróðleiks- brunnur sem allir geta sótt í sér til fróðleiks og skemmtunar. Ritstíll Kjartans er léttur og lipur og hann er fundvís á fágætar sögur um und- arleg örlög fólks sem áhugavert er að kynnast. Í heildina tekið eru efnistök hans þannig að lesturinn á vinnuhandritinu er spennandi auk þess að vera fræðandi. Óhætt er að fullyrða að sam- bærilegt rit hefur ekki verið sett saman um aðra landshluta. Mikil vinna hefur verið lögð í leit að efni frá fyrri tíð, bæði í prent- uðum og óprentuðum heimildum. Elstu heimildirnar eru flestar úr Íslenskum fornritum og Íslensku fornbréfasafni en síðan taka við Annálar frá árunum 1400-1800 og Alþingisbækur frá hinu gamla Öxarárþingi á Þingvöllum. Af óprentuðum heimildum er einkum vert að nefna embættisbækur og önnur gögn presta og sýslumanna, amtmanna og biskupa auk dagbóka og margvíslegra skrifa einstakra manna frá 19. og 20. öld. Alloft er líka stuðst við munnlegar heimildir og enda þótt nafn ritsins sé Firðir og fólk 900–1900 er hér og þar í verkinu einnig fjallað um atburði eða ástand mála á fyrstu áratugum tuttugustu aldar þegar ræturnar liggja aftar í tíma. Við ritun verksins hefur Kjartan gætt þess að hafa tilvísanir í heim- ildir þannig að engin heimild væri undanskilin. Fjöldi tilvísananúmera er því mikill eða 41.897. Kjartan hefur unnið stórvirki með ritun þessa einstæða verks. Það er Útgáfufélag Búnaðar- sam bands Vestfjarða sem stendur með Kjartani að þessari ritsmíð. Vinnu handritið hefur ekki verið gefið út og er það ekki á döfinni. Hins vegar er það allt til á tölvu- tæku formi. Þeir sem kynnu að vilja kaupa það sem þarna er skrifað um ein- stakar jarðir eða landsvæði geta snúið sér til Birkis Friðbertssonar, netfang birkirf@snerpa.is eða í síma 456-6255. Valdimar H. Gíslason sagnfræðingur Mýrum, Þingeyri Ritdómur Firðir og fólk 900–1900 Vestur-Ísafjarðarsýsla og sex hreppar í Barðastrandarsýslum – vinnuhandrit ÞÓR HF | Ármúla 11 | 568-1500| Lónsbakka | Sími 461-1070 Lambamerki ... nú tvær gerðir: Tagomatic Einföld merki á frábæru verði. Helmingsafsláttur af ísetningartöngum með fyrstu pöntun. 31,- án vskÁprentun innifalin Rototag Þessi gömlu góðu. Hert nælon og heit-prentun tryggir gæðin. ATHUGIÐ: Síðustu forvöð til að panta sauðfjármerki svo þau berist fyrir sauðburð er 20. mars n.k. 75,- án vskÁprentun innifalin Pantanir má einnig senda á netfangið einaro@thor.is H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N w w w . h a s k o l a u t g a f a n . h i . i s Lífsbjörg Íslendinga Frá 10.öld til 16.aldar Gunnar Karlsson Önnur bókin sem kemur út í ritröð Gunnars, Handbók í íslenskri miðaldasögu. Hér er safnað saman vitneskju um náttúrulegar aðstæður Íslendinga á miðöldum. Fjallað er um landslags- breytingar, landkosti og loftslag, einnig um fólksfjölda og landnýt- ingu, kvikfjárrækt, jarðyrkju, sjávarútveg, hitagjafa, saltnám, trjáreka, járnvinnslu, brennisteinsnám, fálkaveiðar og verslun. Hér er þess freistað, líklega í fyrsta sinn, að setja fram í tölum heildaryfirlit yfir búfjáreign og sjávarafla landsmanna á tímabilinu, einkum á grundvelli nýlegra fornleifarannsókna. Bændablaðið á netinu... www.bbl.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.