Bændablaðið - 11.03.2010, Side 31

Bændablaðið - 11.03.2010, Side 31
31 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 Á TÍUNDA áratug síðustu aldar komu upp tilfelli kúariðu og díoxínmeng- unar í matvælum í Evrópu. Orsök þessa var rakin til fóðurs og því þótti ástæða til að breyta matvæla- löggjöfinni þannig að hún næði yfir allt matvælaferlið, frá fóðri og frumframleiðslu að matborði neyt- enda og tryggði þannig örugg mat- væli. Matvælalöggjöfin nýja um öryggi matvæla og fóðurs felur í sér útvíkkun á því hvað „fóðurfyr- irtæki“ merkir. Samkvæmt henni eru hefðbundin íslensk bændabýli skilgreind sem fóðurfyrirtæki. Reglugerð um fóður nær því yfir öflun, flutning, geymslu og með- höndlun bænda á hvers konar fóðri. Hvað er fóðurfyrirtæki? Í hinum almennu matvælalögum um öryggi og hreinleika fóðurs og matvæla er eftirfarandi skil- greining: „Fóðurfyrirtæki er fyr- irtæki sem starfar við framleiðslu, vinnslu, geymslu, flutning eða dreifingu fóðurs, þ.m.t. framleiðsla, vinnsla eða geymsla framleiðanda á fóðri handa dýrum á eigin bújörð, hvort sem fyrirtækið er rekið í ágóðaskyni eður ei og hvort sem það er einkarekið eða opinbert fyr- irtæki“ Hefðbundin íslensk bændabýli eru því fóðurfyrirtæki. Fyrirtæki eða einstaklingar sem flytja fóður, t.d. bygg frá býli í þurrkstöð eða hey til hestamanna, eru fóðurfyr- irtæki. Fyrirtæki og hver starfsstöð þess, sem þurrkar bygg, blandar fóður eða vinnur annað fóður, eru fóðurfyrirtæki. Fyrirtæki eða ein- staklingar, sem afhenda vöru sem notuð er í fóður, eru fóðurfyrirtæki. Stjórnendur fóðurfyrirtækja eiga að tilkynna Matvælastofnun um alla starfsemi fyrirtækis sem fellur undir skilgreiningu á fóðurfyrirtæki og fá hana skráða. Fóðurfyrirtækjum er aðeins heimilt að fá og nota fóður frá fyrirtækjum sem eru skráð og/eða samþykkt hjá Matvælastofnun. Listi yfir skráð og samþykkt fyrirtæki verður aðgengi- legur á heimasíðu stofnunarinnar. Litlar breytinga hjá bændum Sveitarfélög hafa um langan aldur séð um búfjáreftirlit og forðagæslu auk ýmiskonar eftirlits með fóðri og fóðrun hjá bændum. Árið 2003 var tekin upp gæðastýring í sauð- fjárrækt þar sem sauðfjárbændur, sem taka þátt í henni, skrá ýmsar upplýsingar um beit, bústofn, fóðuröflun, húsakost o.fl., sem búfjáreftirlitsmenn athuga á hverju ári. Auk þessa skoða dýralæknar árlega aðstæður hjá mjólkurfram- leiðendum, á svínabúum og ali- fuglabúum. Bændur og bændabýli eru auk þess skráð á ýmsum listum, bæði hjá Bændasamtökunum og Matvælastofnun. Það verða því litl- ar breytingar hjá bændum, a.m.k. þeim sem hafa þegar komið sér upp gæðahandbók og sinnt skráningum skv. ofangreindu kerfi. Starfsmenn Matvælastofnunar munu kappkosta að samþætta eftirlit vegna nýju lög- gjafarinnar því eftirliti sem fyrir er svo kostnaður og vinna aukist sem minnst. Helstu ákvæði nýrrar reglugerðar Ákvæði um meðferð fóðurs á bændabýlum og skráningu vegna frumframleiðslu á fóðri eru í I. við- auka reglugerðar EB nr. 183/2005 um kröfur varðandi hollustuhætti sem varða fóður. Þar er áhersla lögð á öryggi fóðurs og að bænd- ur geri allt sem hægt er til að koma í veg fyrir að fóður mengist eða skemmist af völdum vatns, jarð- vegs, áburðar, varnarefna, lyfja, úrgangs eða sóttvarnar-/rotvarn- arefna (sæfiefna). Meðal annars er ætlast til að bændur tryggi: Š þrif og sótthreinsun á aðstöðu og öllum búnaði sem fóður kemur nálægt. Š að fóður sé hreint og skilyrði við meðhöndlun þess séu góð. Š að notað sé hreint vatn, Š að varist sé ágangi meindýra og annarra skaðvalda og komið sé í veg fyrir að búfé valdi mengun í fóðri, Š að úrgangur, varnarefni, lyf og önnur varasöm efni séu geymd aðskilin og á öruggum stað, Š að tekið sé mið af hverskon- ar niðurstöðum greininga sem gerðar eru á sýnum úr fóðri. Flest þessarra atriða eru til- greind í gæðastýringu í sauðfjár- rækt. Gæðakerfi sauðfjárrækt- arinnar gæti því orðið fyrirmynd að innra gæðakerfi annarrar búfjár- framleiðslu. Hvað skal skrá? Gert er ráð fyrir að bændur skrái upplýsingar um þær ráðstaf- anir sem þeir grípa til, til að verjast hvers konar mistökum eða meng- un sem orðið getur við fóðurfram- leiðslu, geymslu fóðurs og gjöf. Öll mistök, mengun eða skemmdir á fóðri á að skrá. Ætlast er til að bændur skrái einkum: a) alla notkun plöntuvarnarefna og sóttvarnar-/rotvarnarefna (sæfi- efna), b) öll tilvik skaðvalda eða sjúk- dóma sem koma upp og geta haft áhrif á öryggi fóðurvara, c) niðurstöður hvers kyns grein- inga, sem gerðar eru á sýnum, sem eru tekin úr fóðurvörum, eða öðrum sýnum sem eru tekin til sjúkdómsgreiningar og skipta máli í tengslum við öryggi fóð- urs, d) uppruna og magn fóðurs sem tekið er við ásamt ákvörð- unarstað og magn fóðurs sem er afhent, til að tryggja REKJANLEIKA (eitt skef aftur og eitt skref fram). Fleira nýtt Í nýrri reglugerð um kröfur varð- andi hollustuhætti sem varða fóður er ætlast til að allir þeir sem fóðra dýr sem alin eru til matvælafram- leiðslu starfi eftir III. viðauka reglugerðarinnar: „Góðar starfs- venjur við fóðrun dýra“ . Þar eru ákvæði varðandi beit, gripahús og fóðurgjafarbúnað, fóðrun, vatn, brynningarbúnað og starfsfólk. Einnig eru þar ákvæði um reglu- leg þrif og örugga geymslu hreinsi- og sótthreinsiefna, meindýravarnir og að fóðurleifar og undirburður sé fjarlægður reglulega. Fóðrunarkerfi þarf að vera þannig úr garði gert að tryggt sé að rétt fóður sé gefið á réttum stað. Sá sem ber ábyrgð á fóðrun og hirðingu dýra skal búa yfir tilskil- inni kunnáttu, þekkingu og hæfni. Með viðbótum við gæðahand- bók í sauðfjárrækt má tryggja að öll ofangreind atriði séu tilgreind þar. Gæðahandbók og allar skráningar þurfa að liggja frammi fyrir þá eft- irlitsmenn sem koma á búin. Leiðbeiningar Í nýju matvælalöggjöfinni eru ákvæði um að samdar skuli leið- beiningar um t.d. frumframleiðslu fóðurs og góðar starfsvenjur við fóðrun dýra. Gert er ráð fyrir að starfsgreinasamtök sjái um að útbúa leiðbeiningar vegna nýju lag- anna hvert fyrir sína félagsmenn. Matvælastofnun hvetur samtök bænda til að endurskoða þær leið- beiningar sem þegar eru fyrir hendi með það fyrir augum að þær nái yfir ákvæði nýrra reglugerða. Reglugerðin gildir ekki um: Ný reglugerð um kröfur varðandi hollustuhætti sem varða fóður gild- ir ekki um fóðrun dýra sem alin eru til matvælaframleiðslu séu afurð- irnar ekki afhentar eða seldar held- ur eingöngu neytt á býlinu sjálfu. Einnig er undanþegið í reglu- gerðinni ef bjarga þarf nágranna um lítilræði af fóðri. Hverjir þurfa ítarlegri gæðahandbók? Fyrirtæki eða einstaklingar sem afla fóðurs og selja það þurfa að fara eftir ákvæðum II. viðauka reglugerðar 183/2005 um kröfur varðandi hollustuhætti sem varða fóður. Þar er gert ráð fyrir að slík fyrirtæki komi upp og viðhaldi skriflegu gæðakerfi sem byggist á Haccp meginreglunum (þ.e. grein- ing áhættu og mikilvægir stýristað- ir). Sama á við um fóðurfyr- irtæki sem nota aukefni eða for- blöndu aukefna (að undanskildum íblöndunarefnum til votheysverk- unar) í fóðurblöndur. Þau þurfa, auk Haccp, sérstakt samþykki Matvælastofnunar. Frá Matvælastofnun Þjónustuauglýsingar X Þjónustuauglýsingar X Þjónustuauglýsingar X Þjónustuauglýsingar X Þjónustuauglýsingar Gleráreyrar 2 600 Akureyri sími 464-7960 www.k2m.is Hágæða olíur fyrir vélsleða ATH: einu vélsleðaolíurnar sem innihalda ester , leitið nánari uppl. Gleráreyrar 2 600 Akureyri sími 464-7960 www.k2m.is Olíur fyrir búvélar Eigum til á lager Motul gæðaolíur fyrir bú- og vinnuvélar Hafið samband og fáið frekari uppl. Minnum á föst verðtilboð á viðgerðum búvéla í sími 464-7930 Gleráreyrar 2 600 Akureyri sími 464-7960 www.k2m.is Öflug þjónusta við bændur Þjónustum allar gerðir mjaltakerfa. Eigum mikið af varahlutum á lager. Útvegum varahluti og gerum við allar gerðir bú- og vinnuvélar. Erum með viðgerðarbíl á ferðinni alla daga. Ingvar Olsen er okkar sérfræðingur í mjaltakerfum. Neyðarþjónusta, Ingvar Olsen í síma 840-7954 DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS · Tekur 12 Kg · Hljóðlátur · Stórt op > auðvelt að hlaða · Sparneytinn 12 kg Þurrkari Til sölu Aðstöðuhús, gestahús,sumarhús. Verð kr. 800.000. Uppl. í síma 861-9437. Íslenskar Æðardúnssængur Til sölu íslenskar æðardúnssængur Náttúruleg afurð Saumaðar úr dúnheldu lerefti Tilvalið til fermingargjafa Nánari uppl. gefur Helga 4524163/Merete 8470575 Gerður hefur verið samningur á milli Ifor Williams Trailers Ltd. og eigenda Víkurvagna ehf. þess efnis að fyrirtækið taki að sér sölu, varahluta-og viðgerðarþjónustu fyrir Ifor Williams kerrur á Íslandi. Samningurinn styrkir stöðu beggja fyrirtækja á íslensk- um markaði og með honum er tryggt að eigendur á Ifor Williams kerrum og vögnum á Íslandi fái nauðsynlega vara- hluta- og verkstæðisþjónustu í framtíðinni. Víkurvagnar eru með áratuga reynslu og þekkingu á kerrum, varahlutaþjónustu og viðgerð- um. Fyrirtækið er með aðsetur að Dvergshöfða 27 í Reykjavík með stórt verkstæði og úrvals starfs- fólk sem hefur mikla þekkingu og reynslu á þessu sviði. Ifor Williams trailers Ltd. er stærsti kerruframleiðandi í Bretlandi á kerrum upp að 3500kg. heildarþyngd. Kerru framleiðsla þeirra er fjölbreytt, þar má nefna Livestcok kerrur, hestakerrur, flatvagnar, kerrur með sturtum, yfirbyggðar kerr- ur, bílavagnar og heimiliskerrur. Einnig bjóða þeir varahluti í allar kerrur sem þeir framleiða. Víkurvagnar munu keppast við að eiga flesta varahluti á lager þannig að þjónustan við Ifor Williams kerrueigendur muni vera snögg og örugg. Víkurvagnar ehf. er gróið fyr- irtæki sem hefur starfað í rúm 30 ár, fyrstu árin í Vík í Mýrdal, en nú er öll starfsemi í Reykjavík. Víkurvagnar er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í framleiðslu á drátt- arbeislum, kerrum og vögnum á Íslandi. Öll starfsemi Víkurvagna er að Dvergshöfða 27, þar sem allt er til staðar, framleiðsla, verkstæðisvinna og ásetning á dráttarbeislum, innflutningur, skrifstofuhald og verslun. Verið velkomin í verslun okkar og sýn- ingarsvæði að Dvergshöfða 27 Reykjavík. Opið er alla virka daga frá 08:00-18:00. Fréttatilkynning Víkurvagnar með umboð fyrir Ifor Williams kerrur Ný íslensk matvælalög Bændur og breytingar á fóðurlöggjöfinni

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.