Bændablaðið - 11.03.2010, Page 31
31 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010
Á TÍUNDA áratug síðustu aldar komu
upp tilfelli kúariðu og díoxínmeng-
unar í matvælum í Evrópu. Orsök
þessa var rakin til fóðurs og því
þótti ástæða til að breyta matvæla-
löggjöfinni þannig að hún næði
yfir allt matvælaferlið, frá fóðri og
frumframleiðslu að matborði neyt-
enda og tryggði þannig örugg mat-
væli.
Matvælalöggjöfin nýja um
öryggi matvæla og fóðurs felur í
sér útvíkkun á því hvað „fóðurfyr-
irtæki“ merkir. Samkvæmt henni
eru hefðbundin íslensk bændabýli
skilgreind sem fóðurfyrirtæki.
Reglugerð um fóður nær því yfir
öflun, flutning, geymslu og með-
höndlun bænda á hvers konar fóðri.
Hvað er fóðurfyrirtæki?
Í hinum almennu matvælalögum
um öryggi og hreinleika fóðurs
og matvæla er eftirfarandi skil-
greining: „Fóðurfyrirtæki er fyr-
irtæki sem starfar við framleiðslu,
vinnslu, geymslu, flutning eða
dreifingu fóðurs, þ.m.t. framleiðsla,
vinnsla eða geymsla framleiðanda
á fóðri handa dýrum á eigin bújörð,
hvort sem fyrirtækið er rekið í
ágóðaskyni eður ei og hvort sem
það er einkarekið eða opinbert fyr-
irtæki“
Hefðbundin íslensk bændabýli
eru því fóðurfyrirtæki. Fyrirtæki
eða einstaklingar sem flytja fóður,
t.d. bygg frá býli í þurrkstöð eða
hey til hestamanna, eru fóðurfyr-
irtæki. Fyrirtæki og hver starfsstöð
þess, sem þurrkar bygg, blandar
fóður eða vinnur annað fóður, eru
fóðurfyrirtæki. Fyrirtæki eða ein-
staklingar, sem afhenda vöru sem
notuð er í fóður, eru fóðurfyrirtæki.
Stjórnendur fóðurfyrirtækja
eiga að tilkynna Matvælastofnun
um alla starfsemi fyrirtækis
sem fellur undir skilgreiningu á
fóðurfyrirtæki og fá hana skráða.
Fóðurfyrirtækjum er aðeins heimilt
að fá og nota fóður frá fyrirtækjum
sem eru skráð og/eða samþykkt hjá
Matvælastofnun. Listi yfir skráð og
samþykkt fyrirtæki verður aðgengi-
legur á heimasíðu stofnunarinnar.
Litlar breytinga hjá bændum
Sveitarfélög hafa um langan aldur
séð um búfjáreftirlit og forðagæslu
auk ýmiskonar eftirlits með fóðri
og fóðrun hjá bændum. Árið 2003
var tekin upp gæðastýring í sauð-
fjárrækt þar sem sauðfjárbændur,
sem taka þátt í henni, skrá ýmsar
upplýsingar um beit, bústofn,
fóðuröflun, húsakost o.fl., sem
búfjáreftirlitsmenn athuga á hverju
ári. Auk þessa skoða dýralæknar
árlega aðstæður hjá mjólkurfram-
leiðendum, á svínabúum og ali-
fuglabúum. Bændur og bændabýli
eru auk þess skráð á ýmsum listum,
bæði hjá Bændasamtökunum og
Matvælastofnun. Það verða því litl-
ar breytingar hjá bændum, a.m.k.
þeim sem hafa þegar komið sér upp
gæðahandbók og sinnt skráningum
skv. ofangreindu kerfi. Starfsmenn
Matvælastofnunar munu kappkosta
að samþætta eftirlit vegna nýju lög-
gjafarinnar því eftirliti sem fyrir er
svo kostnaður og vinna aukist sem
minnst.
Helstu ákvæði nýrrar reglugerðar
Ákvæði um meðferð fóðurs á
bændabýlum og skráningu vegna
frumframleiðslu á fóðri eru í I. við-
auka reglugerðar EB nr. 183/2005
um kröfur varðandi hollustuhætti
sem varða fóður. Þar er áhersla
lögð á öryggi fóðurs og að bænd-
ur geri allt sem hægt er til að koma
í veg fyrir að fóður mengist eða
skemmist af völdum vatns, jarð-
vegs, áburðar, varnarefna, lyfja,
úrgangs eða sóttvarnar-/rotvarn-
arefna (sæfiefna).
Meðal annars er ætlast til að
bændur tryggi:
þrif og sótthreinsun á aðstöðu og
öllum búnaði sem fóður kemur
nálægt.
að fóður sé hreint og skilyrði við
meðhöndlun þess séu góð.
að notað sé hreint vatn,
að varist sé ágangi meindýra og
annarra skaðvalda og komið sé í
veg fyrir að búfé valdi mengun í
fóðri,
að úrgangur, varnarefni, lyf og
önnur varasöm efni séu geymd
aðskilin og á öruggum stað,
að tekið sé mið af hverskon-
ar niðurstöðum greininga sem
gerðar eru á sýnum úr fóðri.
Flest þessarra atriða eru til-
greind í gæðastýringu í sauðfjár-
rækt. Gæðakerfi sauðfjárrækt-
arinnar gæti því orðið fyrirmynd
að innra gæðakerfi annarrar búfjár-
framleiðslu.
Hvað skal skrá?
Gert er ráð fyrir að bændur skrái
upplýsingar um þær ráðstaf-
anir sem þeir grípa til, til að verjast
hvers konar mistökum eða meng-
un sem orðið getur við fóðurfram-
leiðslu, geymslu fóðurs og gjöf. Öll
mistök, mengun eða skemmdir á
fóðri á að skrá.
Ætlast er til að bændur skrái
einkum:
a) alla notkun plöntuvarnarefna og
sóttvarnar-/rotvarnarefna (sæfi-
efna),
b) öll tilvik skaðvalda eða sjúk-
dóma sem koma upp og geta
haft áhrif á öryggi fóðurvara,
c) niðurstöður hvers kyns grein-
inga, sem gerðar eru á sýnum,
sem eru tekin úr fóðurvörum,
eða öðrum sýnum sem eru tekin
til sjúkdómsgreiningar og skipta
máli í tengslum við öryggi fóð-
urs,
d) uppruna og magn fóðurs sem
tekið er við ásamt ákvörð-
unarstað og magn fóðurs
sem er afhent, til að tryggja
REKJANLEIKA (eitt skef aftur
og eitt skref fram).
Fleira nýtt
Í nýrri reglugerð um kröfur varð-
andi hollustuhætti sem varða fóður
er ætlast til að allir þeir sem fóðra
dýr sem alin eru til matvælafram-
leiðslu starfi eftir III. viðauka
reglugerðarinnar: „Góðar starfs-
venjur við fóðrun dýra“ . Þar eru
ákvæði varðandi beit, gripahús og
fóðurgjafarbúnað, fóðrun, vatn,
brynningarbúnað og starfsfólk.
Einnig eru þar ákvæði um reglu-
leg þrif og örugga geymslu hreinsi-
og sótthreinsiefna, meindýravarnir
og að fóðurleifar og undirburður sé
fjarlægður reglulega. Fóðrunarkerfi
þarf að vera þannig úr garði gert
að tryggt sé að rétt fóður sé gefið á
réttum stað.
Sá sem ber ábyrgð á fóðrun og
hirðingu dýra skal búa yfir tilskil-
inni kunnáttu, þekkingu og hæfni.
Með viðbótum við gæðahand-
bók í sauðfjárrækt má tryggja að öll
ofangreind atriði séu tilgreind þar.
Gæðahandbók og allar skráningar
þurfa að liggja frammi fyrir þá eft-
irlitsmenn sem koma á búin.
Leiðbeiningar
Í nýju matvælalöggjöfinni eru
ákvæði um að samdar skuli leið-
beiningar um t.d. frumframleiðslu
fóðurs og góðar starfsvenjur við
fóðrun dýra. Gert er ráð fyrir að
starfsgreinasamtök sjái um að
útbúa leiðbeiningar vegna nýju lag-
anna hvert fyrir sína félagsmenn.
Matvælastofnun hvetur samtök
bænda til að endurskoða þær leið-
beiningar sem þegar eru fyrir hendi
með það fyrir augum að þær nái
yfir ákvæði nýrra reglugerða.
Reglugerðin gildir ekki um:
Ný reglugerð um kröfur varðandi
hollustuhætti sem varða fóður gild-
ir ekki um fóðrun dýra sem alin eru
til matvælaframleiðslu séu afurð-
irnar ekki afhentar eða seldar held-
ur eingöngu neytt á býlinu sjálfu.
Einnig er undanþegið í reglu-
gerðinni ef bjarga þarf nágranna
um lítilræði af fóðri.
Hverjir þurfa ítarlegri
gæðahandbók?
Fyrirtæki eða einstaklingar sem
afla fóðurs og selja það þurfa að
fara eftir ákvæðum II. viðauka
reglugerðar 183/2005 um kröfur
varðandi hollustuhætti sem varða
fóður. Þar er gert ráð fyrir að slík
fyrirtæki komi upp og viðhaldi
skriflegu gæðakerfi sem byggist á
Haccp meginreglunum (þ.e. grein-
ing áhættu og mikilvægir stýristað-
ir).
Sama á við um fóðurfyr-
irtæki sem nota aukefni eða for-
blöndu aukefna (að undanskildum
íblöndunarefnum til votheysverk-
unar) í fóðurblöndur. Þau þurfa,
auk Haccp, sérstakt samþykki
Matvælastofnunar.
Frá Matvælastofnun
Þjónustuauglýsingar X Þjónustuauglýsingar X Þjónustuauglýsingar X Þjónustuauglýsingar X Þjónustuauglýsingar
Gleráreyrar 2 600 Akureyri sími 464-7960 www.k2m.is
Hágæða olíur fyrir vélsleða
ATH: einu vélsleðaolíurnar sem innihalda ester , leitið nánari uppl.
Gleráreyrar 2 600 Akureyri sími 464-7960 www.k2m.is
Olíur fyrir búvélar
Eigum til á lager Motul gæðaolíur
fyrir bú- og vinnuvélar
Hafið samband og fáið frekari uppl.
Minnum á föst verðtilboð á
viðgerðum búvéla í sími 464-7930
Gleráreyrar 2 600 Akureyri sími 464-7960 www.k2m.is
Öflug þjónusta við bændur
Þjónustum allar gerðir mjaltakerfa. Eigum mikið
af varahlutum á lager.
Útvegum varahluti og gerum við allar
gerðir bú- og vinnuvélar.
Erum með viðgerðarbíl á ferðinni alla daga.
Ingvar Olsen er okkar sérfræðingur í
mjaltakerfum.
Neyðarþjónusta, Ingvar Olsen í síma 840-7954
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlátur
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Sparneytinn
12 kg
Þurrkari
Til sölu
Aðstöðuhús,
gestahús,sumarhús.
Verð kr. 800.000.
Uppl. í síma 861-9437.
Íslenskar Æðardúnssængur
Til sölu íslenskar æðardúnssængur
Náttúruleg afurð
Saumaðar úr dúnheldu lerefti
Tilvalið til fermingargjafa
Nánari uppl. gefur Helga 4524163/Merete 8470575
Gerður hefur verið samningur
á milli Ifor Williams Trailers
Ltd. og eigenda Víkurvagna
ehf. þess efnis að fyrirtækið
taki að sér sölu, varahluta-og
viðgerðarþjónustu fyrir Ifor
Williams kerrur á Íslandi.
Samningurinn styrkir stöðu
beggja fyrirtækja á íslensk-
um markaði og með honum
er tryggt að eigendur á Ifor
Williams kerrum og vögnum á
Íslandi fái nauðsynlega vara-
hluta- og verkstæðisþjónustu í
framtíðinni.
Víkurvagnar eru með áratuga
reynslu og þekkingu á kerrum,
varahlutaþjónustu og viðgerð-
um. Fyrirtækið er með aðsetur að
Dvergshöfða 27 í Reykjavík með
stórt verkstæði og úrvals starfs-
fólk sem hefur mikla þekkingu
og reynslu á þessu sviði.
Ifor Williams trailers Ltd.
er stærsti kerruframleiðandi
í Bretlandi á kerrum upp að
3500kg. heildarþyngd. Kerru
framleiðsla þeirra er fjölbreytt,
þar má nefna Livestcok kerrur,
hestakerrur, flatvagnar, kerrur
með sturtum, yfirbyggðar kerr-
ur, bílavagnar og heimiliskerrur.
Einnig bjóða þeir varahluti í allar
kerrur sem þeir framleiða.
Víkurvagnar munu keppast
við að eiga flesta varahluti á lager
þannig að þjónustan við Ifor
Williams kerrueigendur muni
vera snögg og örugg.
Víkurvagnar ehf. er gróið fyr-
irtæki sem hefur starfað í rúm 30
ár, fyrstu árin í Vík í Mýrdal, en
nú er öll starfsemi í Reykjavík.
Víkurvagnar er leiðandi fyrirtæki
á Íslandi í framleiðslu á drátt-
arbeislum, kerrum og vögnum á
Íslandi. Öll starfsemi Víkurvagna
er að Dvergshöfða 27, þar sem
allt er til staðar, framleiðsla,
verkstæðisvinna og ásetning á
dráttarbeislum, innflutningur,
skrifstofuhald og verslun. Verið
velkomin í verslun okkar og sýn-
ingarsvæði að Dvergshöfða 27
Reykjavík. Opið er alla virka
daga frá 08:00-18:00.
Fréttatilkynning
Víkurvagnar með umboð
fyrir Ifor Williams kerrur
Ný íslensk matvælalög
Bændur og breytingar á fóðurlöggjöfinni