Bændablaðið - 11.03.2010, Page 32
Hjónin Þórður G. Halldórsson
og Karólína Gunnarsdóttir eiga
garðyrkjustöðina Akur í Laug-
ar ási sem þau hafa byggt upp
og rekið í hartnær 20 ár. Þar er
stunduð lífræn ræktun á gúrk-
um, tómötum og papriku ásamt
ýmiss konar tilraunastarfsemi,
svo sem ræktun á chilialdinum.
Einnig reka þau vefverslunina
Græna hlekkinn þar sem fólk
getur keypt lífrænt ræktaðar
vörur.
Þórður og Karólína eru ekki
sveitafólk að uppruna heldur kem-
ur hann frá Reykjavík og hún
frá Keflavík. Áhugi þeirra fyrir
holl ustu og heilsu leiddi þau til
Hvera gerðis þar sem Þórður fór í
nám við Garðyrkjuskóla ríkisins
og Karólína vann við matreiðslu-
störf á Heilsustofnun NLFÍ. Á
árunum 1984-1987 dvöldu þau í
Svíþjóð við nám í Rudolf Steiner
Seminariet þar sem Þórður fór í
framhaldsnám með sérhæfingu í
lífrænni ræktun og Karólína stund-
aði textílnám.
„Eftir dvölina í Svíþjóð fengum
við bæði vinnu á Sólheimum, Þórður
í garðyrkjustöðinni og ég á vefstof-
unni en ég hafði sérhæft mig í vefn-
aði. Eftir að hafa starfað þar í þrjú ár
langaði okkur að fara út í meiri fram-
leiðslu á grænmeti og festum þá kaup
á Akri haustið 1991 og höfum verið
hér síðan. Reksturinn er í stöðugri
þróun og við erum alltaf í einhverri
tilraunastarfsemi ásamt fleiru svo
starfið er fjölbreytt og mjög gefandi,
enda á okkar áhugasviði,“ útskýrir
Karólína.
Kirsuberjatómatar og chilialdin
Grænmeti frá Akri fer í sölu um
allt land, í stórmarkaði, heilsubúðir
og í netáskriftinni. Einnig eru þau
hjón í samstarfi við Sólheima og
Heilsustofnun NLFÍ um að selja
lífrænt ræktaðar afurðir frá þessum
stöðum.
„Við sjáum um að halda magn-
inu í umferð en það kemur fyrir
að skortur er á afurðum frá okkur
en þá er ekkert annað að gera en
að bíða næstu uppskeru. Það má
segja að við höfum verið brautryðj-
endur hér með lífrænu ræktunina
og við erum dugleg að gera til-
raunir og prófa nýjar tegundir eins
og kirsuberjatómata, chilialdin,
mjólkursýrðar gulrætur og hvítkál.
Við búum til ýmiss konar mauk og
þurrkum ýmislegt svo fátt eitt sé
nefnt. Markmið okkar og stefna er
að reyna að nýta allt hráefni sem til
er og ef það er ekki söluhæft fyrir
búðir gerum við eitthvað annað úr
því. Sem dæmi má nefna vínber
sem eru að renna út, þau sjóðum
við í gufupotti og fáum úr dýrindis
vínberjasafa sem er svo góður að
við tímum eiginlega ekki að selja
hann. En annað, eins og chiliald-
in-mauk og fleira, er allt í netversl-
uninni. Við búum enn að þeim góða
tíma sem við áttum á Sólheimum
en þar er meiri áhersla lögð á fjöl-
breytta starfsemi fyrir íbúa sam-
félagsins frekar en hámarks arð-
semi og því var hægt að vera með
fjölbreytta ræktun á óhefðbundnum
afurðum eins og maís og fleira. Hér
stöndum við frammi fyrir því að
vera í rekstri og verðum að lifa af
ræktuninni og þannig verða áhersl-
urnar aðrar en við reynum enn að
viðhalda fjölbreytninni og sköp-
uninni,“ segir Þórður brosandi.
Netverslunin eykst mikið
Síðastliðin 15 ár hefur á vegum
Græna hlekksins verið boðið upp
á grænmeti í áskrift í samstarfi við
ýmsa aðila í gegnum heimasíð-
una www.graenihlekkurinn.is og
hefur það sölufyrirkomulag gengið
vonum framar að sögn þeirra hjóna.
„Við áttum von á því að þetta
dytti upp fyrir þegar aðgengi að líf-
rænum vörum jókst meðal annars í
stórmörkuðum en svo var ekki og
fólk virðist kunna að meta þetta
sölufyrirkomulag. Það er misjafnt
eftir árstíma hversu margir eru í
áskrift en að jafnaði eru þetta um
100 manns á viku. Mesti annatím-
inn er á haustin þegar útigrænmet-
ið er komið. Við höfum sent vörur
víða um land eins og til Ísafjarðar
og Patreksfjarðar en vegna þess
hversu hár flutningskostnaður er
orðinn er salan minni þangað en
mætti vera. Þetta ætti ekki síst að
höfða til fólks á landsbyggðinni
því hér syðra fær fólk ferskvörur
frá fyrstu hendi. Fyrir áskrifend-
ur erum við einnig með ýmislegt
grænmeti frá öðrum bændum í
útiræktun og kryddjurtir,“ segir
Karólína og Þórður bætir við:
„Fyrir fjórum árum hófum við
innflutning á lífrænum ávöxtum frá
fyrirtækinu Eosta í Hollandi en það er
eingöngu með lífrænar afurðir. Í upp-
hafi var það til að auka fjölbreytnina
í netversluninni en þetta hefur vaxið
mjög mikið svo við komum okkur
upp aðstöðu í Reykjavík fyrir þrem-
ur árum til að halda betur utan um
dreifinguna. Þar sem við erum núna
í Nethyl höfum við nýverið opnað
bændamarkað og þar getur fólk keypt
það sem er í boði í netversluninni og
meira til. Við vorum á báðum áttum
þegar efnahagshrunið reið hér yfir
hvað myndi gerast en það er greini-
leg hugarfarsbreyting hjá fólki sem
við finnum vel fyrir. Nú horfir fólk
meira inn á við en áður og hugsar um
sjálfbærni og umhverfisvernd. Það
skilar sér svo áfram í auknum áhuga
fyrir lífrænum afurðum og gæðavör-
um.“
Hitabeltisræktun í bígerð
Yfir háannatímann á Akri eru Þórður
og Karólína með fimm starfsmenn í
vinnu, enda ærið starf að sinna inni-
ræktun sem þekur rúmlega tvö þús-
und fermetra undir gleri.
„Lífræn ræktun er á margan
hátt frábrugðin hefðbundinni rækt-
un þó í framkvæmd sé þessu mjög
svipað háttað. Við stundum skipti-
ræktun þannig að sama tegundin
er aldrei ár eftir ár í sama húsi og
sem jarðvegsáburð notum við fyrst
og fremst sveppamassa, fiskimjöl
og þörungamjöl en auk þess ýmis
jurtaseyði og fleira sem við úðum
á plönturnar. Við pössum okkur á
að keyra plönturnar ekki stíft áfram
þannig að þær nái að mynda bragð
og hollustuefni en á móti kemur að
uppskeran er minni. Nýverið fórum
við út í vetrarræktun undir ljósum
en það er enn ein tilraunin okkar.
En þar er sama hugsunin að yfir-
keyra ekki plönturnar heldur finna
jafnvægið milli gæða og magns,“
segir Þórður og Karólína bætir við:
„Áhugi fyrir hráfæði hefur stór-
aukist hér á landi og við sjáum
ýmis tækifæri í framleiðslu á ýms-
um afurðum sem tengjast þeirri
matar menningu. Við stefnum á að
stækka hér hjá okkur og auka fram-
leiðsluna á því sem við erum með.
En þar að auki erum við búin að
veltast með gæluverkefni undan-
farin misseri sem er framleiðsla
afurða af hitabeltisplöntum og þar
erum við að tala um bananaræktun
og fleiri spennandi afurðir en þetta
er hugmynd sem er í vinnslu. Það
er allt hægt en tekur auðvitað tíma
og við sjáum ýmsa möguleika hér
á Íslandi sem hafa lítt verið reyndir
áður.“ ehg
5. tölublað 2010 Fimmtudagur 11. mars
Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út
25. mars
Ýmsir möguleikar í
lífrænni garðyrkju
Hjónin Þórður G. Halldórsson og Karólína Gunnarsdóttir eiga og reka
garðyrkjustöðina Akur í Laugarási þar sem stunduð er lífræn ræktun.
Dóttir Þórðar og Karólínu, Elma Rut, hefur verið dugleg að hjálpa foreldr um
sínum á bændamarkaðnum sem þau opnuðu nýverið við Nethyl í Reykja vík.
Editha Kirch, tappar volgum vínberjasafa á flöskur í vinnslueldhúsinu á Akri.