Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 Frá birtingu síðasta þáttar,hef-ur tíð daprast verulega, í það minnsta hér fyrir norðan. Nokkur kuldabragur verður því á fyrstu vísu þessa þáttar sem kemur úr smiðju Erlendar Hansen á Sauðárkróki, og hann nefnir ein- faldlega „Haust“: Fátt er nú um fuglahljóm, fjöll í þoku standa. Í grænum halla blikna blóm, blöðin hætt að anda. Haglega samið ljóðabréf barst mér frá Sigurði Óttari Jónssyni, Einbúablá 22 á Egilsstöðum. Vísur eftir Sigurð hafa birst hér áður í þessum þáttum. Næstu vísur eru vel ortar og ekki við ýkja þröngan „efnahag“. Fyrri vísuna nefnir Sigurður siðaskipti: Siðar heiðins hafið skeið hratt út breiðist trúin. Vegur greiður lífsins leið liggur reiðubúinn. Og til ónefnds fyllirafts yrkir Sigurður: Þjórar vínið grátt með grín gáfna- sýnist tregur. Ygglir trýnið eins og svín ekki frýnilegur. Tveir kunnir hagyrðingar og rit- höfundar á Akureyri tóku að kvöldlagi hús á skáldbróður sínum Heiðreki Guðmundssyni frá Sandi. Gerðust gestir þaulsætnir úr hófi, svo gætti syfju hjá hús- ráðanda. Þegar nokkuð var liðið á nótt kvað Heiðrekur til þeirra: Ef ég hrundið af mér fæ ykkur förusveinum, aldrei mun ég opna bæ oftar fyrir neinum. Annar gestanna var sjálfur Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli. Voru þeir orðnir nokkuð bjúgeygð- ir eftir viðgjörningi, sem þeim þótti í kortara lagi. Einar svarar því vísu Heiðreks um hæl: Hrintu frá þér sorg og sút senn mun batna hagur. Hungrið rekur okkur út áður en rennur dagur. Eins og frá var greint í síðasta þætti, var Einar Kolbeinsson staddur um stund í Boston í Bandaríkjahreppi. Fjarveru hans gætti því nokkuð í síðasta þætti. Þá ég vissi hann kominn til landsins, sendi ég honum fal- lega vorverkavísu, en ég var þá við jarðyrkjustörf hjá grönnum mínum á Halllandi. Til að raska ekki samhengi næstu vísna, brýt ég það loforð sem ég gaf hér við upphaf þáttagerðar, að birta ekki eigin hugverk. Vísan var svona: Tæti ég gráan tyrfinn svörð, torfið hráa saxa. Fræin smáu fel í jörð fljótt svo nái að vaxa. Þessu sinnti Einar ekki, svo ég brýndi hann frekar: Árla dags gekk út að sá - orku moldin býr að, því seinnipartinn sé ég þá að sáðkornið var spírað. Við þetta vaknar Einar ágætlega: Á þér hef ég tröllatrú, og tel að langt þú náir þó ekki frjóvgist allt sem þú ötullega sáir. Umsjón: Árni Jónsson kotabyggd1@simnet.is Í umræðunni MÆLT AF MUNNI FRAM Bóndi og ábúandi á Ytra-Bjargi í Miðfirði, Þorvaldur Pálsson og Helena Margrét Áskelsdóttir, aðstoðarkona hans við sauðburð- inn á sauðburðinn, urðu heldur betur undrandi þann 10. maí. Þá kom í heiminn sannkallað risa- lamb. Það kom fljótt í ljós þegar Golíat fæddist að um óvenju stórt lamb væri að ræða en hversu stór hann var grunaði engan, svona í fyrstunni allavega, segir Helenda í tölvupósti til blaðsins. „ Sökum stærðar þurfti hann tals- verða aðstoð til að komast í heiminn og taka þurfti ansi fast á honum til þess að ná honum frá kindinni. Lambinu var því vart hugað líf þegar það loksins var fætt í heiminn eftir að hafa verið teygt og togað svona mikið en garpurinn var þó sterkari en svo og varð fljótlega hinn sprækasti, þó að hann þyrfti að skreppa í smá heimsókn til dýralæknisins til að láta sauma smá skinnsprettu sem hann fékk við fæðinguna.“ Þar sem Golíat var greinilega stærri en önnur lömb var hann vigt- aður rétt eftir fæðingu. Reyndist hann þá vera hvorki meira né minna en 10 kg að þyngd. Til samanburðar getur „venjulegt“ lamb en samt af góðri stærð verið um 4-5 kg við fæðingu. Fyrstu dagana þurfti Golíat nokkra aðstoð við að komast á spena. Átti hann í mestu vandræðum með að beygja sig undir kindina til að finna spenann. „Þrem dögum síðar var hann þó farinn að hjálpa sér sjálfur og minnir nú helst á folald þegar hann beygir hausinn undir kindina til að ná sér í mjólkursopa. Golíat var einnig nokkuð seinni til gangs en önnur lömb því það var ekki auðvelt fyrir óvana og óharðnaða fætur að standa undir svona þungum og miklum skrokk. Merkilegt má einnig teljast að hið sama á við um móðurina sem stóð strax á fætur eftir þessa erfiðu fæðingu til að láta vel að þessum nýfædda risa sínum og á henni var ekki annað að sjá en að hún hefði fætt ósköp venjulegt lamb og kenndi hún sér einskis meins. Í dag eru mæðginin bæði alveg bráðhress og Golíat verður liprari með hverjum deginum, farinn að hoppa um króna eins og aðrir jafn- aldrar hans, þó að hann beri höfuð og herðar yfir þá alla,“ segir í pistlinum Golíat - sannkallaður risi sem fæddist á Ytra-Bjargi í Miðfirði í V-Húnavatnssýslu: Var ríflega tvöfalt stærri við fæðingu en „eðlilegt“ lamb - Var heil tíu kíló við fæðingu og minnti helst á folald að sögn ábúenda

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.