Bændablaðið - 26.05.2011, Qupperneq 18

Bændablaðið - 26.05.2011, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða (BSV) 2011 var haldinn í Grunnskólanum á Reykhólum 16. apríl s.l. Lýsti fundurinn m.a. yfir fullum stuðningi við fram- komna tillögu Búnaðarþings 2011 varðandi andstöðu við inn- göngu Íslands í ESB. Þá var einnig lýst yfir stuðningi við ályktun Búnaðarþings 2011 um andstöðu við fyrirhugaða sameiningu ráðu- neyta. Fundurinn var vel sóttur en starfs- svæði BSV er frá Gilsfjarðarbotni í suðri, vestur um og inn í botn Ísafjarðar í Djúpi. Í sambandinu eru 208 félagar frá 100 búum. Árni Brynjólfsson formaður sam- bandsins flutti skýrslu stjórnar og gat þess m.a. að Búnaðarfélag Ögurhrepps og Búnaðarfélag Reykjafjarðarhrepps hefðu verið sameinuð í Búnaðarfélagið Vörð í Súðavíkurhreppi. Þá hefðu Búnaðarfélög Þingeyrarhrepps, Mýrahrepps, Önundarfjarðar og Súgandafjarðar samein- ast í Búnaðarfélagið Bjarma í Ísafjarðarbæ. Einnig hafi Búnaðarfélagið Örlygur verið endurvakið og mættu fulltrúar frá þeim á fundinn. Þar með hefur Búnaðarfélögunum fækkað úr 12 í 8. Það þóttu tíðindi að aðalfundurinn nú skyldi haldinn um miðjan apríl en venja hefur verið allt frá stofnun sambandsins 1907 að halda hann ekki fyrr eftir miðjan júní. Er þetta sagt til marks um breyttar samgöngur á milli svæðanna en langt er samt í land að Vestfirðir standi jafnfætis öðrum landshlutum í samgöngu- málum. Í stjórn BSV eru Árni Brynjólfsson Vöðlum Önundarfirði, formaður, Halldóra Ragnarsdóttir Brjánslæk er ritari og Sigmundur H. Sigmundsson frá Látrum er gjaldkeri. Búnaðarþingsfulltrúar BSV eru Gústaf Jökull Ólafsson Miðjanesi A-Barðastrandasýslu, Nanna Jónsdóttir Rauðsdal V-Barðastrandarsýslu og Árni Brynjólfsson. Engin hreindýr til Vestfjarða Hugmyndir um flutning á hrein- dýrum af Austfjörðum á Vestfirði í þeim tilgangi að auka flóru skot- veiðimanna til eflingar ferðaþjónustu í fjórðungnum lagðist illa í þingfull- trúa Búnaðarsambands Vestfjarða. Í ályktun um það mál sem samþykkt var samhljóða sagði: „Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða haldinn á Reykhólum 16. apríl 2011 mótmælir harðlega fram komnum hugmyndum um flutning hreindýra til Vestfjarða. Hreindýr virða engar girðingar og geta hugsanlega borið sjúkdóma milli varnarhólfa. Vestfjarðahólf eystra er laust við riðu- og garnaveiki, sá hreinleiki skapar sauðfjárafurðum þaðan aðgang að vissum erlendum mörkuðum og hólfið er eitt af mikil- vægustu líflambasölusvæðum lands- ins.“ Bændum verði bætt tjón vegna díoxínmengunar Á fundinum voru samþykktar fjöl- margar ályktanir. Í ályktun um vanda bænda vegna mengunar frá sorpeyð- ingarstöðinni Funa segir: „Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða haldinn á Reykhólum 16. apríl 2011 skorar á landbúnaðarnefnd Alþingis að finna leið fyrir bændur sem verða fyrir áföllum af utanað- komandi mengun, sbr. díoxínmálið í Engidal, að þeir fái tjón sitt bætt á fullnægjandi hátt. Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða haldinn á Reykhólum 16. apríl 2011 skorar á stjórn Búnaðarsambands Vestfjarða að beita sér fyrir því að bændum verði bætt það tjón sem þeir hafa orðið fyrir vegna mengunar frá Sorpbrennslunni Funa í Engidal.“ BSV vill samræmt kerfi í refa- og minkaeyðingu Eyðing refs og minks er sem fyrr ofarlega á baugi hjá vestfirskum bændum og í ályktun um þau mál segir: „Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða haldinn að Reykhólum 16. apríl 2011 beinir því til sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga að hlutast til um að komið verði á samræmdu kerfi á landsvísu, er tekur á greiðslum og eyðingu á ref og mink og skráningu á unnum dýrum. Jafnframt verði unnið að því að sam- ræma greiðslur vegna eyðingar á ref og mink um land allt.“ Í greinargerð með þessari ályktun segir: „Ófremdar ástand er að skapast varðandi eyðingu á ref og mink í landinu og skapast það meðal annars af því að víða er alls ekkert unnið í þessum málum en einnig vegna þess að ríkið hefur verið að skerða fjár- framlög til þessa málaflokks og er nú svo komið að hið opinbera er alveg hætt að veita framlög til eyðingar á ref. Það er því fyrirsjáanlegt að mikil fjölgun mun verða á ref á næstu misserum ef ekkert er að gert og mun það án efa skaða fuglalíf sem meðal annars ferðaþjónusta á lands- byggðinni hefur nú orðið verulegar tekjur af.“ Þá leggur aðalfundur Búnaðar- sambands Vestfjarða til við sveitar- félög á starfssvæði sambandsins að finna hagkvæmar lausnir til förg- unar hræja og sláturúrgangs sem til fellur á lögbýlum. Með því er hægt að koma í veg fyrir að bændur séu óviljandi að leggja út æti fyrir ref og vargfugl. Formaður BÍ hvatti menn til að skoða vel jarðalagafrumvarpið Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands sat fundinn og flutti m.a. erindi um afstöðu gegn inngöngu Íslands í ESB, frumvarp að jarðalögum, sameiningu ráðu- neyta, o.fl. Varðandi frumvarp landbúnaðar- ráðherra til breytinga á jarðalögum sagði hann það mjög stórt mál sem gert væri ráð fyrir að mælt yrði fyrir á þinginu í haust. Hvatti hann fundarmenn til að ígrunda það vel. Þá væri þörf á að kynna vel þessar fyrir- huguðu lagabreytingar og hvað þær þýddu fyrir menn. Þá fordæmdi hann viðbrögð samtaka landeigenda við þessu frumvarpi og sagði að bújarðir þyrftu að vera aðgengilegar til mat- vælaframleiðslu. Karl Kristjánsson tók undir orð Haraldar um að gæta þyrfti að í hvað bújarðir væru not- aðar. Hreinn Þórðarson áréttaði að lögbýli verði ekki hlutuð niður, taldi að ekki þyrfti aðild að ESB til að breyta lögunum til betri vegar. Árni Brynjólfsson taldi tilvalið fyrir bún- aðarfélögin að kynna málið hvert á sínu svæði. Einnig ávarpaði fundinn fulltrúi ungra bænda, Jóhanna María Sigmundsdóttir frá Látrum í Djúpi, en hún er nú í starfsnámi frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, á Hríshóli í Eyjafirði. Þriðji gestur fundarins var Sigríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Búnaðarsamtaka Vesturlands, sem BSV hefur verið í samstarfi við undanfarin ár um leiðbeiningaþjón- ustuna (ráðunautaþjónustuna). Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða lýsir fullri andstöðu við inngöngu í ESB: Mótmælir harðlega hugmyndum um flutning hreindýra til Vestfjarða - Vill að bændum verði bætt tjón vegna díoxínmengunar frá Funa Frá aðalfundi Búnaðarsambands Vestfjarða. Fundarmenn voru ekki hrifnir Haraldur Benediktsson formaður BÍ í ræðustól en hann fjallaði m.a. í erindi sínu um afstöðu Bændasamtakanna til inngöngu Íslands í ESB. Hreindýr eru eitt af einkennis- merkjum Austurlands. Þangað koma hundruð veiðimanna árlega og þjónusta við veiðimenn er vaxandi atvinugrein, bæði hvað varðar gistingu og leiðsögn. Eina tegund þjónustu þarf þó að auka á Austurlandi og það eru löglegar verkunarstöðvar fyrir hrein- dýrakjöt. Allmargir leiðsögumenn með hreindýraveiðum hafa komið sér upp aðstöðu þar sem unnt er að flá bráðina og verka kjötið, en aðeins ein slík verkunarstöð hefur starfs- leyfi frá Matvælastofnun, verkunar- stöðin í Skóghlíð á Fljótsdalshéraði. Löggilt sláturhús eru auðvitað einnig valkostur, ef þar er vilji og tækni- búnaður til að taka við villibráð, t.d. sláturhúsin á Vopnafirði og Höfn í Hornafirði. Löggilt verkunarstöð ekki skilyrði fyrir kjöt til eigin neyslu Veiðimönnum er ekki skylt að fara með bráð sína í löggilda verkunar- stöð, enda er kjötið þá eingöngu til eigin neyslu. Vilji þeir hins vegar eiga þess kost að selja hluta kjöts- ins ber þeim að fara með bráðina í löggilta aðstöðu innan 24 klst. frá því dýrið var fellt. Þangað verður dýrið að koma óflegið og í heilu lagi. Þar er aðstaða til fláningar, kælingar og annarrar meðhöndlunar kjötsins viðurkennd og gæði neysluvatns í aðstöðunni einnig. Í slíkum stöðv- um skoðar dýralæknir bráðina og stimplar kjötið með viðurkenndum stimplum sem heimila sölu kjötsins í matvælafyrirtæki. Sala á kjöti háð vottunum Veitingastaðir og verslanir mega því aðeins taka við og selja kjöt af hrein- dýrum að þeim fylgi veiðinúmer og staðfesting á að umrætt dýr hafi verið heilbrigðisskoðað á löggiltri verkunarstöð. Hreindýrakjöt sem er löglega flutt inn hefur verið heil- brigðisskoðað og verkað og um það gilda sömu reglur og um aðra mat- vöru, m.a. reglur um rekjanleika. Gögn sem sýna fram á uppruna kjöts eiga að vera aðgengileg heilbrigðis- fulltrúum í eftirliti með matvæla- fyrirtækjum. Innan við sjötti hluti í sölu Á árinu 2010 voru veidd um 1.200 dýr, en innan við 200 voru skoðuð og stimpluð í löggiltri verkunarstöð. Margir veitingastaðir hafa áhuga á að geta keypt meira af hreindýrakjöti til að hafa á matseðlum og allmargir veiðimenn vilja fjármagna sína veiðiferð með sölu kjöts af bráðinni. Því er augljóst að aukin þörf er fyrir löggiltar verkunarstöðvar nálægt veiðislóð. Hér er atvinnutækifæri t.d. fyrir bændur eða kjötiðnaðarmenn á Austurlandi, sem vilja bjóða veiði- mönnum frekari þjónustu. Vaxandi atvinnugrein Framleiðsla afurða úr hreindýrum, hvort sem er kjöt, innmatur, húðir eða horn, er vaxandi atvinnugrein á Austurlandi. Handverksfólk og matreiðslumenn, listamenn, leið- sögumenn með hreindýraveiðum og ekki síst veiðimenn eru hvattir til að tryggja gæði vörunnar í hvívetna, enda vilja allir Austfirðingar vera stoltir af sínu einkennismerki hrein- dýrunum. Samstarfshópur um hreindýrakjöt: Matvælastofnun: Hákon Hansson, Kjartan Hreinsson, Sigurður Örn Hansson Heilbrigðiseftirlit Austurlands: Leifur Þorkelsson, Helga Hreinsdóttir. Umhverfisstofnun: Jóhann Guttormur Gunnarsson. Hreindýr – austfirsk gæðaafurð

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.