Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 22
Á Gili í Skagafirði er rekin lítil verslun með handunnum vörum og afurðum beint frá býli. Pálína Skarphéðinsdóttir segir að hún hafi opnað verslunina 1. júní 2008 og kallað hana Gott frá Gili. Þau hjónin hafi þá verið hætt sínum blandaða búskap í um fjögur ár og sonur þeirra Ómar tekin við. „Eftir að börnin fluttu af heiman varð ansi tómlegt í húsinu hjá okkur og því ákváðum við að gera hluta af hús- inu að séríbúð sem í fyrstu var ætluð því vinnufólki sem starfar hér á búinu á Gili. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á handaverki og matargerð og hafði ég um nokkurt skeið bakað og selt bakkelsi í frystitogara hér í nágrenn- inu. Einnig tók ég reglulega þátt í sveitamörkuðum og öðru mörkuðum þar sem ég seldi handavinnuna mína og brauð. Gekk sú sala vel og hafði ég það mikinn áhuga að ég ákvað að prófa að opna þessa litlu verslun heima hjá mér,“ segir Pálína um aðdragandann. „Árið 2009 fórum við svo í miklar endurbætur innan og utan. Byggðum stóra sólstofu sem nú hýsir verslunina og breyttum bílskúr í bakarí. Árið 2010 gekk ég til liðs við samtökin „Beint frá býli“ þar sem mér fannst hugsjónir þeirra samtaka passa vel við það sem ég hef að leiðarljósi hjá Gott frá Gili; að vinna vöruna sem mest úr því hráefni sem ég hef hér heima. Árið 2010 fékk ég svo þann heiður að geta merkt matvörunar frá mér með gæðamerki Beint frá býli „Frá fyrstu hendi“, en sú viðurkenning gerir það að verki að maður reynir ávallt að standa sig. Heimafengið hráefni Ég er með gróðurhús þar sem ég nota affall af heita vatninu til upphitunar. Þar rækta ég m.a. gúrkur, tómata og paprikur, en úr því hef ég meðal annars gert Pickles (súrsað grænmeti) sem hefur verið vinsælt hjá mér. Undan farið hef ég einnig verið að leika mér að gera ýmsar kökur og eftirrétti úr rabarbara. Allt er þetta hráefni sem ég hef unnið með frá því byrjaði að búa en eftir ég byrjaði með baksturinn hef ég verið lagt kapp í að prófa mig áfram með þau. Jens maðurinn minn veiðir silung í Miklavatni sem við seljum reyktan.“ Pálína segir að verslun og gisting hafi farið hægt af stað í byrjun en aðsókn hafi smám saman aukist. „Vonandi verður sumarið gott, sér- staklega þar sem reiknað er með metaðsókn ferðamanna til Íslands þetta árið. Ég hef haft lokað á veturna og ekki opnað fyrr en 1. maí á vorin. Við sjálf bjóðum ekki upp á neina afþreyingu en það er ekki langt að leita hér í Skagafirði, góð upplýsingamiðstöð er rekin í Varmahlíð sem ég hef gjarnan vísað á og stutt er til Sauðárkróks eða um sex kílómetrar. “ „Ég tel þetta alveg þess virði að fara í ferðaþjónustu ef bændur hafa húsnæði og löngun til þess. En fyrst og fremst þarf að vera fyrir hendi þjónustulund og gefa ferðamann- inum nægan tíma, án þess þó að vera uppáþrengjandi,“ segir Pálínu þeim sem eru í þessum hugleiðingum. Þá er þetta mjög bindandi starf og svona rekstur þolir ekki mikla fjárfestingu eins og er, en vonandi á þetta eftir að dafna á Íslandi í framtíðinni.“ Gott frá Gili er með facebook- síðu sem finnst með leitarorðunum „Gott frá gili“. /smh Gott frá Gili í Skagafirði: Handunnar vörur og afurðir beint frá býli Gauti Gunnarsson og Guðbjörg Jóns- dóttir, bændur á Læk í Flóahreppi, ætla að opna nýja sveitaverslun í húsnæði gamla barnaskólans í Þing- borg núna um helgina, eða föstudag- inn 27. maí, sem er sama helgi og Fjör í Flóa verður. Verslunin hefur fengið nafnið Búbót en þar verða sunnlenskar afurðir frá bændum til sölu, t.d. nautakjöt, lambakjöt, græn- meti, lax og silungur – og rúsínan í pylsuendanum verður Búbótarís frá Læk, nýr ís sem Gauti og Guðbjörg eru að byrja að framleiða úr mjólk- inni úr kúnum á Læk. Ísinn kemur þó ekki í sölu alveg strax. „Við höfum gengið með þennan draum í mörg ár og ákváðum að láta slag standa núna, eftir að hafa verið á vaxtar- sprotanámskeiði í vetur. Þingborg er rétti staðurinn fyrir svona starfsemi en meðalumferð framhjá staðnum er 3.600 bílar á dag,“ segir Gauti. /MHH Gauti á Læk með Þingborg í baksýn. Verslunin Búbót verður þar staðsett á neðri hæðinni, þar sem gamli bar- naskólinn var og Gauti gekk sjálfur í. Nú opnar hann verslun í gömlu kennslustofunni sinni. 22 - Ferðast um landið BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 26. MAÍ 2011 Ferðaþjónusta er ekki einungis gisting og afþreying. Veigamikill hluti hennar er maturinn sem ferðafólki stendur til boða. Vitað er að áhugi ferðamanna stendur til þess að bragða á staðbundnum mat sé hann í boði – og þetta á sérstaklega við um erlenda ferða- menn sem eru vanir slíku frá sínum heimalöndum. Íslendingar eru hins vegar vanir sjoppumenn- ingunni við þjóðvegina og litlar kröfur gerðar um meira í bili, en það er þó að breytast – hægt og sígandi. Það skýtur í raun skökku við að Ísland – sem maður skyldi ætla að væri gósenland fyrir mat- artengda ferðaþjónustu – skuli vera svo svifaseint sem raun ber vitni. Árið 2008 var félagið Beint frá býli stofnað, en það er félagsskapur bænda sem stunda eða hyggjast stunda heimavinnslu og sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Þegar landbúnaðarverðlaunin voru afhent á síðasta Búnaðarþingi féllu þau Beint frá býli og Ferðaþjónustu bænda í skaut. Vissulega hefur félagsskapur- inn Beint frá býli unnið gott starf á þessum þremur árum. Félagið hefur gert sitt til að vekja fólk til með- vitundar um þennan mikilvæga þátt ferðaþjónustunnar á Íslandi og hvatt bændur til dáða á þessu sviði Hæg uppbygging En betur má ef duga skal. Þegar Bændablaðið fór á stúfana í þeim tilgangi að hafa uppi á nýjum og áhugaverðum sveitaverslunum, var ekki um auðugan garð að gresja. Svo virðist sem uppbygging sveitaversl- ana á Íslandi gangi fremur hægt. Þó eru fáeinir hugsjónamenn þarna úti í sveitunum að sýsla við að láta drauma nokkur dæmi um slíkt. /smh Matarbúrið á Hálsi í Kjós Dæmi um vel heppnaða sveitaverslun. Þórarinn Jónsson og kona hans Lisa Boije reka verslunina Mynd | smh Er Ísland gósenland fyrir matartengda ferðaþjónustu? Bændurnir á Læk í Flóahreppi Opna nýja sunnlenska sveitaverslun í Þingborg

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.