Bændablaðið - 26.05.2011, Page 26

Bændablaðið - 26.05.2011, Page 26
BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 26. MAÍ 2011 Ferðast um landið- 27 Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir er félagsskapur karla og kvenna sem stundar aðallega ferðalög á fjórhjólum og götu- skráðum torfærumótorhjólum. Félagið var stofnað í janúar 2008 og er að hefja sitt fjórða starfsár. Á dagskrá félagsins eru um 15 misstórar og mislangar ferðir árlega og er þátttakan á bilinu fimm til fjöru- tíu félagar í ferð. Dæmigerð ferð er undirbúin þannig að oftast er pöntuð gisting í skála eða hjá ferðaþjónustu og er ekið út frá gististaðnum. Þegar búið er að bóka gistingu er reynt að ákveða fyrirfram skemmtilegar, fáfarnar leiðir með því að hafa sam- band við heimamenn og athuga hvort slóðar og fjallvegir séu færir. Ef þeir eru í einkalandi er fengið leyfi til að fara þá, en oftast reyna Slóðavinir að fá heimamenn, sem þekkja vel til, til að ferðast með í þessum ferðum. 13 Slóðavinir og tveir Strandamenn Hér eftir fer stutt saga af 13 Slóðavinum og tveim strandamönn- um sem hjóluðu með þeim í ferð sem farin var í september 2009 út frá Hólmavík. Gist var á Kirkjubóli (ferðaþjónustu bænda) í ljómandi aðstöðu með góðri eldunaraðstöðu fyrir svanga maga. Fyrri keyrsludagur Á laugardagsmorgni var mæting við Vegagerðarhúsið í Hólmavík kl. 10.00 um morguninn, en keyra átti yfir Trékyllisheiði jarðýtuslóða sem kemur niður fyrir ofan Ingólfsfjörð. Við skiptum tvíhjólunum í tvo hópa og fjórhjólin þrjú komu svo á eftir. Þegar við komum þangað var verið að smala rollum í Ingólfsfirði og ákváðum við að fara út á Munaðarnes og þaðan fórum við í Norðurfjörð til að taka bensín. Síðan var farið að Felli og alla leið upp á fjallið fyrir ofan Fell, en þaðan er ótrúlegt útsýni til allra átta. Þegar við komum til baka var safnið komið í réttina og hluti af hópnum fór í Ingólfsfjörðinn og alla leið í Ófeigsfjörð og síðan aftur yfir Trékyllisheiðina, en tveir fóru ströndina til baka. Í tómu brasi Fjórhjólaþrenningin var í tómu brasi og endalausum viðgerðum, en þeir náðu hraða hópnum við verk- smiðjurústirnar í Ingólfsfirði þar sem verið var að laga sprungið dekk. Ferðin til baka yfir Trékyllisheiðina gekk vel hjá öllum tvíhjólunum, en fjórhjólin ætluðu ströndina. Um kl 21.00 var sameiginlegur matur fyrir þá 8 sem komnir voru á Kirkjuból, en þá hringdi einn fjór- hjólarinn og sagði að þeir hefðu skilið eitt fjórhjól eftir, fjórhjólið hjá honum væri bilað, og bað um björgun. Gripinn var næsti bíll og þeir sóttir, undir miðnætti komum við til baka og var farið frekar seint að sofa miðað við Slóðavini. Seinni keyrsludagur: Sunnudagsmorgun var aftur hittingur við Vegagerðina og var hópurinn komin niður í 8 hjól, en tveir voru búnir með hjólakvótann og tvö af þrem fjórhjólum úr leik svo að fjór- hjólarar fóru í jeppaleik, en hinir á Galdrasafnið á Ströndum. Gamla póstleiðin Þeir sem eftir voru fóru ævintýra- lega leið upp úr Steingrímsfirðinum og gamla póstleið sem liggur af Þorskafjarðarheiðinni niður Þorgeirsdal, sem er vestan til í Þorskafirði (hjá Múla), en þessi leið var frábær í alla staði þrátt fyrir að vera seinfarin og grýtt á köflum (góð leið fyrir fjórhjól og létt tvíhjól og örugglega gaman að fara hana á hesti, varla fær fyrir jeppa, en fyrir nokkru las ég einhversstaðar að til stæði að gera nýjan fjallveg nánast í þessu forna vegarstæði). Frábær helgi á fáförnum gömlum götuslóðum í sérstöku vestfirsku landslagi. /H. Líklegur Dagur 1 í Trékyllisheiði. Myndin er tekin í jarðýtuslóðanum beint fyrir ofan Hótel Djúpuvík. Dagur 1, fjórhjólin að koma niður að Eyrarhálsi fyrir ofan Ingólfsfjörð Dagur 2, síðasti spölurinn niður Þorgeirsdalinn sem er kjarri vaxinn að Dagur 2, grýttur slóðinn upp Bröttubrekku upp úr Sóteyjardal. Dagur 2, rústir sæluhússins vestan við Gedduvatn. Slóðavinir á fáförnum slóðum: Á Ströndum og í Reykhólasveit

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.