Bændablaðið - 26.05.2011, Síða 31

Bændablaðið - 26.05.2011, Síða 31
32 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 Utan úr heimi Hvað eiga Willie Nelson, Neil Young, John Mellencamp og Dave Matthews sameiginlegt, fyrir utan þá augljósu staðreynd að þeir eru allir heimsþekktir tónlistarmenn? Jú, þeir eru allir áhugamenn um viðgang fjölskyldubúskapar í Bandaríkjunum og sitja í stjórn félagsskapar sem nefnist Farm Aid. Upphaf Farm Aid má rekja til samnefndra tónleika sem haldnir voru 22. september 1985 í Illinois í Bandaríkjunum. Markmiðið með tónleikahaldinu var að vekja athygli á þeirri staðreynd að fjölskyldubúum í bandarískum landbúnaði hefði farið ört fækkandi og einnig að safna fé til að styðja við og styrkja bandarískar bændafjölskyldur til að halda áfram búskap á jörðum sínum. Tónleikarnir voru skipulagðir af Young, Nelson og Mellencamp og hefur því verið haldið fram að athugasemd sem Bob Dylan lét falla á Live Aid tón- leikunum í júlí sama ár hafi verið kveikjan að tónleikahaldinu. Dylan sagði þá eitthvað í þá átt að hann vonaðist til að eitthvað af þeim pen- ingum sem söfnuðust á Live Aid, sem haldnir voru til að safna fram- lögum til að bregðast við hungurs- neyðinni í Eþíópíu, yrðu nýttir til að borga niður lán bandarískra bænda. Dylan var reyndar harðlega gagn- rýndur fyrir taktleysi og vanskilning á markmiðum Live Aid tónleikanna vegna þessara ummæla sinna. 80.000 manna áheyrendaskari Allt um það. Farm Aid voru hins vegar haldnir í september 1985 og voru tónlistarmennirnir sem tróðu upp ekki af verri endanum. Auk þeirra Young, Nelson og Mellencamp komu fram heimsþekktir lista- menn á borð við áðurnefndan Bob Dylan, Joni Mitchell, Johnny Cash, Emmylou Harris, The Beach Boys, Roy Orbison og Jon Bon Jovi auk fjölda annarra. Um 80.000 manns sóttu tónleikana og söfnuðust 9 millj- ónir dollara til styrktar fjölskyldubú- skap í Bandaríkjunum. Á þeim 25 árum sem liðin eru frá fyrstu Farm Aid tónleikunum hafa viðlíka tónleikar verið haldnir 23 sinnum, en árin 1988 og 1991 féllu tónleikarnir niður af ýmsum ástæðum. Fjöldi listamanna hefur lagt málstaðnum lið á þessum árum en meðal þeirra þekktustu má nefna Guns N‘ Roses, Elthon John, Sheryl Crow, Lou Reed og Noruh Jones. Búið er að tilkynna að næstu Farm Aid tónleikar fari fram í Kansasborg 13. ágúst næstkomandi og munu stjórnarmennirnir fjórir koma fram þar en enn á eftir að kynna aðra listamenn sem taka munu þátt. Farm Aid hefur áhrif Fyrstu Farm Aid tónleikarnir vöktu talsverða athygli og ollu umræðum um stöðu fjölskyldubúskapar í Bandaríkjunum. Meðal annars beittu Nelson og Mellencamp áhrifum sínum og fengu áheyrn fyrir bændur fyrir þinginu þar sem þeir vitnuðu um stöðu fjölskyldubúskapar í Bandaríkjunum. Síðar, eða árið 1987, lögleiddi þingið svokallað Agricultural Credit Act, lög sem eiga að hjálpa til við að forða fjölskyl- dubúum frá nauðungaruppboðum vegna vanefnda á skuldum. Mikilvægi fjölskyldubúskapar Farm Aid þróaðist svo og varð að félagasamtökum sem vinna að því að vekja athygli á mikilvægi fjöl- skyldubúskapar í Bandaríkjunum. Á 25 árum hafa samtökin safnað ríflega 39 milljónum dollara, sem nýttar hafa verið til að stuðla að sterkum og öfl- ugum rekstri fjölskyldubúskapar í bandarískum landbúnaði. Það hefur meðal annars verið gert með því að vekja athygli á matvælum fram- leiddum á fjölskyldubúum, bæði með auglýsingaherferðum og á Farm Aid tónleikunum sjálfum. Til að fjöl- skyldubúskapur geti áfram þrifist þarf að vinna nýja markaði fyrir afurðir og það hafa Farm Aid samtökin reynt að gera með því að styrkja markaðsstarf og vinna að því að koma afurðum þeirra í sölu í héraði, hvort sem er í kjörbúðum, á veitingastöðum eða hjá opinberum stofnunum. Þá hafa sam- tökin einnig haldið úti neyðarsíma til að bregðast við óvæntum áföllum hjá bændum með stuðningi við þá, bæði lögfræðilegum og með öðrum hætti. Samtökin reka jafnframt styrktarsjóð sem úthlutað er úr árlega. Enginn er eyland Farm Aid er afar virðingarvert fram- tak eins og sjá má af umfjölluninni hér að ofan. Ekki einasta styðja sam- tökin við bandaríska bændur heldur hafa þau í 25 ár boðið upp á frábæra tónlist á árlegum risatónleikum. Því er Farm Aid til umræðu hér, að síðustu misseri hefur fjölskyldubúskapur verið talsvert í deiglunni á Íslandi. Er þar skemmst að minnast skýrslu starfshóps landbúnaðarráðherra um eflingu svínaræktar frá því í febrúar 2010 þar sem segir: „Það er umhugsunarvert hvort ekki eigi með einhverjum hætti að stuðla að fjölgun smærri svínabúa og gera þannig svínarækt á Íslandi líkari öðrum greinum landbúnaðar þar sem fjölskyldurekstur er algengastur.“ Svipaðar hugmyndir eru reifaðar í skýrslu um eflingu alifuglaræktunar frá því í apríl síðastliðnum. Þá byggja drög að nýjum jarðalögum að sumu leyti á því að grunngildi í íslenskum landbúnaði verði fjölskyldurekstur. Að lokum má nefna að í umræðu síðustu missera um dýravelferð hefur ítrekað verið bent á að verk- smiðjubúskapur svokallaður sé ekki falleg framtíðarsýn. Geirmundur og Guðni? Hver veit því? Kannski mun íslensk- ur landbúnaðarráðherra í framtíðinni ávarpa tónleikagesti á tónleikum til stuðnings íslenskum fjölskyldubú- rekstri. Hverjir myndu spila á slíkum tónleikum er ómögulegt að spá fyrir um en blaðamaður telur þó ljóst að enginn væri betur til þess fallinn að loka slíkum tónleikum annar en Geirmundur Valtýsson, í syngjandi sveiflu. Kannski Guðni Ágústsson kynni? /fr. Tónlist notuð til að vekja athygli á fjölskyldubúskap: Farm Aid í 25 ár Heimsfrægir listamenn leggja bændum lið 25 ára afmælistónleikar Farm Aid í Miller Park í Milwaukee, Wisconsin í Bandaríkjunum í október 2010. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er ekki að syngja á Farm Aid tónleikum á þessari mynd, heldur að halda ræðu á Búnaðarþingi 2011, - tónleikarnir koma kannski seinna. Hann virðist þó í nýju jarðalagafrumvarpi að sumu leyti vera að feta inn á slóð þeirrar hugmyndafræði sem varð kveikjan að Farm Aid tónleikunum í Banda- ríkjunum árið 1985. Mynd / HKr. Willie Nelson í hörku stuði á Farm Aid tónleikum 1985. Neil Young mætti í sparibuxunum á tónleikana1985. Sheryl Crow lagði sín lóð á vogar- skálarnar til styrktar fjölskyldubú- skap á Farm Aid tónleikum 2003

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.