Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 19
19Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Bað og sturta! Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum 26.900 12.995 NAPOLI hitastýrð blöndunar- tæki f. baðkar SAFIR sturtusett 2.595 NAPOLI hitastýrð blöndunartæki fyrir sturtu 10.900 NAPOLI hitastýrt sturtusett Álfheiður Sverrisdóttir tók við formennsku í nemenda- félagi Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri nú í febrúar. Hún er vel kunnug á Hvanneyri þar sem hún er fædd og uppalin. Hún segir námið við skólann bæði skemmtilegt og gott og félagslífið í miklum blóma. Þó próf séu nú í gangi er strax farið að huga að föst- um viðburðum í félagslífinu næsta haust. „Ég tók við af Iðunni Hauksdóttur sem var búin að standa sig frábærlega vel. Það hefur verið dálítið mikil keyrsla á mér þar sem ég hef verið að taka við þessu, en þetta lærist. Viskukýrin er t.d. árleg spurningakeppni sem er mjög skemmtileg. Í vor erum við búin að fara í búfjárræktar- ferð og hér var fótboltamót í síðustu viku (í lok apríl – innskot blaðamanns) og grillaðar hreðjar.“ Álfheiður útskýrar þetta síðast- nefnda nánar og segir að á haustin sé haldið hrútauppboð þar sem félagið kaupir hlut í hrút sem síðan er grill- aður vorið eftir. Hér eru allir góðir vinir „Það er ótrúlegt hvað allir eru góðir vinir hér í þessum skóla. Ég hef ekki kynnst einni einustu pirrandi manneskju í þessu námi. Hér eru allir félagar og mjög heilsteyptir og skemmtilegir. Háskólanám snýst líka um að læra á lífið, það er ekki bara bóknám. Það er því afar gott að vera í svona góðum hópi og sérstaða skólans felst einmitt í því hvað við erum lítil eining.“ Álfheiður segir námið við skólann mjög fjölbreytt og opni möguleika í ólíkar áttir. „Ég er t.d. í almennri náttúrufræði, sem er lína í náttúru- og umhverfisfræði. Eftir þetta nám hef ég ýmsa möguleika. Ég get farið í mastersnám, beint inn á vinnumarkaðinn eða tekið kennsluréttindi, en nú er verið að vinna að gerð samnings sem leiða mun til þess að það tekur aðeins eitt ár fyrir mig að ná mér í kennslu- réttindi. Fjölbreytnin er því mjög mikil í náminu. Þar er m.a. umhverf- isfræðin, búvísindin og margt fleira. Það er því engin spurning að þetta er góður kostur fyrir þá sem eru að leita að góðu námi, frábærri aðstöðu og góðum kennurum.“ Öflugt og skemmtilegt félagslíf „Félagslífið er líka æðislegt og ég hef hvergi heyrt talað um eins öflugt og skemmtilegt félagslíf og hér. Ef fólk er að sækjast eftir slíku er þetta klárlega málið. Hér ríkir mjög mikil samkennd og þó hér sé hver braut fyrir sig, þá heldur fólk sig ekki út af fyrir sig. Vinahópurinn minn samanstendur t.d. af fólki úr skógfræði, umhverfisskipulagi, búvísindum og raunar úr öllum áttum. Maður er því ekkert að einangrast eingöngu með því fólki sem er á sömu braut. Þetta gefur lífinu hér mikið gildi og eykur manni víðsýni. Þá hef ég kynnst hér fólki hvað- anæva að af landinu. Í gegnum það hefur maður lært ansi mikið í landafræði og fengið innsýn í ólíkar aðstæður fólks. Þá eru líka nemend- ur hér með mikla starfsreynslu og langan starfsferil að baki og mikla þekkingu. Við grænjaxlarnir lærum auðvitað af þeim líka. Svo þykir mér bara afskaplega vænt um þennan skóla. Ég er fædd og uppalin hér á staðnum, pabbi minn var kennari hér og mamma mín vinnur hér. Mér finnst ég því vera svolítið heima hjá mér í skólan- um,“ segir Álfheiður Sverrisdóttir./ HKr. „Hef hvergi heyrt talað um eins öflugt og skemmtilegt félagslíf" Álfheiður Sverrisdóttir Formaður nemendafélags Landbúnaðarháskólans Íslands:

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.