Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 25
26 - Ferðast um landið BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 26. MAÍ 2011
Ferðaþjónusta bænda hlaut í síð-
ustu viku Útflutningsverðlaun for-
seta Íslands 2011. Verðlaunin voru
afhent á Bessastöðum við hátíðlega
athöfn þar sem fjöldi ferðaþjón-
ustubænda mætti til móttöku í
boði Ólafs Ragnars Grímssonar
og Dorritar Moussaieff.
Sævar Skaptason, framkvæmda-
stjóri Ferðaþjónustu bænda hf., tók
á móti verðlaununum fyrir hönd
fyrirtækisins en þau eru glerlista-
verk eftir myndlistarkonuna Ingu
Elínu. Við sama tilefni var Kristni
Sigmundssyni óperusöngvara veitt
heiðursviðurkenning fyrir að hafa í
starfi sínu borið hróður Íslands víða
um heim.
Mikil viðurkenning fyrir
landbúnaðinn
„Þessi verðlaun eru ekki bara til
okkar fyrirtækis í Síðumúlanum.
Þetta er stórt mál fyrir okkar félaga
sem eru margir bændur. Þá finnst mér
þetta vera mikil viðurkenning fyrir
landbúnaðinn í landinu,“ sagði Sævar
í samtali við Bændablaðið. Honum
finnst samt talsvert skorta á það innan
Bændasamtaka Íslands að ferðaþjón-
ustubændur njóti viðurkenningar sem
alvöru bændur. Ferðaþjónusta sé ekk-
ert ómerkilegri en aðrar búgreinar og
fjölmargir bændur sem eru í sauðfjár-
rækt, nautgriparækt og hrossarækt
hafi einmitt nýtt sér uppbyggingu
í ferðaþjónustu til að skjóta fleiri
stoðum undir sinn búskap.
Verðlaun fyrir afburða árangur
Það hefur vakið athygli að
Ferðaþjónusta bænda skuli nú
fá þessi verðlaun, sem fram að
þessu hafa yfirleitt fallið stórum
útflutningsfyrirtækjum í skaut. Í
máli formanns úthlutunarnefndar,
Friðriks Pálssonar, kom fram að
Ferðaþjónusta bænda hlyti verð-
launin fyrir þá forystu sem fyrirtækið
hefur sýnt í þróun ferðaþjónustu í
hinum dreifðu byggðum landsins,
fyrir afburða árangur í sölu- og
markaðsmálum og fyrir þá fram-
sýni sem fyrirtækið hefur sýnt í að
innleiða sjónarmið sjálfbærrar þró-
unar í starfsemi sinni. Hann sagði
að Ferðaþjónusta bænda væri góður
fulltrúi fyrir þann fjölda fyrirtækja
sem laða að erlenda gesti til landsins.
Í hópi með hinum stóru
Útflutningsverðlaun forseta Íslands
eru veitt í viðurkenningarskyni fyrir
markvert framlag til eflingar útflutn-
ingsverslunar og gjaldeyrisöflunar
íslensku þjóðarinnar. Í úthlutunar-
reglum er kveðið á um að þau skuli
veitt fyrirtækjum eða einstaklingum
fyrir árangursríkt starf að útflutningi
á íslenskum vörum eða þjónustu á
erlenda markaði. Þau taka mið af
verðmætisaukningu útflutnings,
hlutdeild hans í heildarsölu og
markaðssetningu á nýjum markaði
ásamt fleiru. Útflutningsverðlaunin
voru fyrst veitt árið 1989, þá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, en
meðal annarra fyrirtækja sem hafa
hlotið þau eru Lýsi, Bláa lónið,
Samherji, Guðmundur Jónasson,
Össur, Kaupþing, Baugur, Atlanta,
Flugleiðir, Marel og hugbúnaðar-
fyrirtækið CCP.
Standa sig vel í þjónustunni
Sævar segir að uppbygging hjá
ferðaþjónustubændum hafi almennt
gengið vel á undanförnum árum. „Ég
tel að ferðaþjónustubændur standi
almennt þokkalega þó auðvitað séu
einhverjir að glíma við meiri vanda-
mál en aðrir. Það virðist þó vera að
þeir sem hafa verið að byggja upp af
skynsemi á undanförnum árum hafi
farið ágætlega út úr því bakslagi sem
hér varð. Í þjónustunni hafa menn
staðið sig mjög vel en við höfum
verið með í gangi þjónustukannanir
og annað til að meta það.
Gisting hjá bændum úti á landi er
líka orðin mjög föst í sessi hjá okkar
viðskiptavinum.“
Væntingarnar oft full
hástemmdar
Þjónustustigið hjá ferðaþjónustu-
bændum er mjög mismunandi.
Sumir hafa nær eingöngu verið að
selja gistingu en það hefur verið
að færast í vöxt, að sögn Sævars,
að bændur séu farnir að bjóða upp
á margvíslega þjónustu í kringum
þetta. Þar má nefna hestaferðir,
jeppaferðir, gönguferðir og kynn-
ingar á búrekstrinum sjálfum þar
sem gestir geta fengið innsýn í líf
íslenskra bænda. Sveitaheimsóknir
almennings og skólabarna á vorin
eru t.d. að skapa umtalsverðar tekjur
í sveitum og hjá ferðaþjónustuaðilum
eins og rútufyrirtækjum.
Á tyllidögum hefur ferðaþjónustu
mjög verið haldið á lofti sem einni
helstu máttarstoðinni í endurreisn
íslensks atvinnulífs eftir hrunið 2008.
„Auðvitað eru þessar væntingar
svolítið hástemmdar. Það er reyndar
heilmikið af tækifærum í þessari
grein en maður vill samt sem áður
vara við of hástemmdum væntingum.
Góður árangur byggist á því að verið
sé að selja samsetta þjónustu og
þannig pakka þessu inn í umbúðir
sem innihalda meira en gistingu.
Utan háannatímans eru menn svo
farnir að bjóða upp á aðstöðu fyrir
námskeiðahald og fleira.“
Vaxandi möguleikar
Sævar er sannfærður um að starfsemi
ferðaþjónustubænda eigi eftir að
vaxa áfram. Íslendingar séu aðeins
að fá til sín lítið brot af þeim ferða-
mannastraumi sem flakkar um heim-
inn. Vissulega sé samkeppnin um
ferðamennina hörð en þá skipti líka
máli að menn séu að gera góða hluti
sem spyrjast vel út og ferðamennirnir
séu að upplifa eitthvað sérstakt.
„Fyrir fjórum eða fimm árum
vorum við ekki að fá til okkar nema
300 þúsund ferðamenn. Þeir voru um
500 þúsund á síðasta ári. Greinin er
því augljóslega í vexti. Vandamál
okkar er þó stuttur nýtingatími. Þar
hafa samt líka verið að eiga sér stað
breytingar. Ég er búinn að vera í
þessu fyrritæki í 13 ár og enn lengur í
greininni og þar hefur orðið heilmikil
breyting. Jaðartíminn hefur verið að
færast lengra inn á haustin og framar
á vorin. Það er stöðugt að verða meiri
ásókn ferðamanna hingað um vetrar-
tímann. Norðurljósin eru þar talsvert
aðdráttarafl. Þá er það vaxandi þörf
stórborgarbúans að komast í frelsið
og kyrrðina í sveitunum. Upplifa þar
frið og ró náttúrunnar. Það er orðið
mun eftirsóknarverðara en við gerum
okkur kannski grein fyrir.“
Ferðaþjónustubændur eru líka
alvöru bændur
„Það er með ólíkindum hvað
ferðaþjónustubændur hafa verið
að leggja mikið á sig. Það er hörð
vinna að byggja þetta upp og það
þarf dugnað til að standa vaktina
ef vel á að vera. Mér sýnist þó að
margir séu að hafa af þessu ágætt
viðurværi og margir hafa verið að
færa sig úr hefðbundnum búskap
og yfir í ferðaþjónustu. Ég ligg því
ekkert á skoðun minni varðandi það
að ég hefði viljað sjá bændafor-
ystuna líta á ferðaþjónustuna meira
sem sína grein. Að menn fari að
líta á ferðaþjónustu í dreifbýli sem
rekin er undir ákveðnum merkjum
og markmiðum sem alvöru búskap.
Mér finnst ekki ásættanlegt að ekki
sé litið á þessa bændur sem alvöru
bændur því þarna er fólk í atvinnu-
rekstri í sveitum af fullri alvöru. Í
Noregi er gjarnan sagt að menn geri
ekki greinarmun á því hvort bændur
yrki jörðina með því að beita á hana
búfénaði eða túristum.“
Breyttar aðstæður í sveitum
„Við höfum því líka verið að endur-
skoða okkar markmið og gildi.
Staðan í dag er allt önnur en fyrir
tuttugu árum þegar bændur voru mun
fleiri. Það hefur verið mjög mikil
ásókn í að komast inn í okkar mark-
aðs- og sölukerfi og þá oft af aðilum
sem eru staðsettir utan þeirra svæða
sem við viljum skilgreina sem sveit.
Áður komust engir inn í okkar
kerfi nema vera ábúendur á lög-
býlum. Nú hefur það verið að ger-
ast að unga kynslóðin hefur verið
að kaupa sig inn í ferðaþjónustuna
og landið undir það sem er þá ekki
lengur lögbýli. Við höfum því verið
að endurskoða ákveðna hluti í þessu
en reynum þó að halda í okkar sér-
stöðu hvað sveitirnar varðar. Allir
okkar meðlimir eru félagar í Félagi
ferðaþjónustubænda. Félagið á
síðan um 25% í skrifstofunni þar
sem margir bændur eru síðan sjálfir
hluthafar í. Þannig má segja að þetta
sé lokað hagkerfi innan þessa hóps
og að því koma engir utanaðkom-
andi aðilar sem geta hirt hagnaðinn.
Í okkar rekstri náum við því að skapa
ákveðið fjármagn til uppbyggingar
innan þessarar hringrásar og erum
hvergi á styrkjum.“
Bændur í lykilhlutverki við
lengingu ferðamannatímans
„Í kringum þetta allt er mikil atvinnu-
sköpun og um leið gjaldeyrissköpun
sem skiptir máli fyrir þjóðfélagið.
Möguleikarnir í greininni felast ekki
síst í að skapa ýmsa afþreyingu í
kringum gistinguna. Stóru mögu-
leikarnir í framtíðinni felast síðan í
því að ná fram betri nýtingu á jaðar-
tímanum utan háannatímans. Þar eru
bændur í lykilhlutverki, því þeir eru
að vinna þetta heima hjá sér,“ segir
Sævar. /HKr.
Ferðaþjónusta bænda hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2011:
Ferðaþjónusta í sveitum er líka alvöru búskapur
Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri segir verðlaunin mikla viðurkenningu fyrir landbúnaðinn
Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda hf., Bryndís Óladóttirdóttir eiginkona Sævars, Dorrit
Moussaieff forsetafrú og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands við hlið verðlaunagripsins sem er eftir Ingu
Elínu. Myndir / Tjörvi Bjarnason..
Fríður hópur starfsfólks Ferðaþjónustu bænda með forsetahjónunum við verðlaunaafhendinguna á Bessastöðum.
Hundur Dorritar vakti mikla kátínu í
boðinu á Bessastöðum.
Sævar segir verðalunin ekki síður
vera viðurkenningu fyrir íslenskan
landbúnaði.
Sævar Skaptason tekur við viður-
kenningunni úr hendi Ólafs Rag-
nars Grímssonar forseta Íslands.
Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda hf., tók á
móti verðlaununum fyrir hönd fyrirtækisins en þau eru glerlistaverk eftir
mynd-listarkonuna Ingu Elínu. Við sama tilefni var Kristni Sigmundssyni
borið hróður Íslands víða um heim.