Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 34
35Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011 Um síðustu helgi buðu tvö kúabú gestum og gangandi að fylgjast með þegar kúnum á bæjunum var hleypt úr fjósi eftir vetrarinni- stöðu. Fjöldi fólks gerði sér ferð til að fylgjast með þessum við- burðum, sem heppnuðust vel og voru gerð ágæt skil í fjölmiðlum. Annað þessara búa, Helluvað í Rangárþingi ytra, hefur gert þetta í nokkur ár og með því lagt sitt lóð á vogarskálarnar í að viðhalda tengslum bænda og neytenda, ásamt því að viðhalda jákvæðri ímynd greinarinnar. Viðbrögðin við tiltækinu segja aðeins eitt; fleiri býli ættu að bjóða upp á slíkt hið sama. Undanfarnar vikur hefur verið uppi talsverð umræða í samfélaginu um aðbúnað og velferð búfjár. Mest hefur þar borið á umræðu um aðbúnað svína og varphæna. Aðeins hefur nautgriparæktina borið á góma, þá helst í tengslum við útivist nautgripa. Nú er stunduð framleiðsla á nautgripaafurðum á tæplega eitt þúsund búum hér á landi. Á síðasta ári áminntu yfir- völd níu framleiðendur fyrir brot á því ákvæði reglugerðar um aðbún- að nautgripa sem lýtur að útivist þeirra. Það eru rétt um 1% fram- leiðenda. Það má því ljóst vera, að ekki þarf marga til að hafa neikvæð áhrif á ímynd greinarinnar, sem bitnar á allri heildinni. Fyrir rúmum áratug stóðu vel- flestar kýr landsmanna í básafjós- um, nú er það hlutfall komið niður fyrir helming. Kúm í lausagöngu hefur fjölgað að sama skapi. Ný fjós hafa verið byggð og þau eldri endurbætt. Aðbúnaður nautgripa hefur því tekið miklum framförum á undanförnum árum og þeir hafa það betra en áður fyrr. Því heyrast þau sjónarmið, að litlu skipti hvort nautgripir séu inni eða úti, árið um kring. Útivistarumræðan snýst bara ekkert um það. Hún snýst um ímynd framleiðslunnar. Það er almennt viðhorf í samfélaginu, að það sé eðlilegur hluti af naut- gripahaldi að gripirnir séu úti við yfir sumarmánuðina. Þar fyrir utan eru vel hirtir gripir í góðum haga ein besta auglýsingin sem greinin getur fengið; fyrir yfirgnæfandi hluta framleiðenda er hún sjálf- sagður hluti af framleiðsluferlinu. Á vegum bænda og samtaka þeirra eru í gangi ýmis verk- efni sem lúta að tengslamyndun og ímyndarsköpun greinarinnar. Þar má nefna verkefni á borð við Opinn landbúnað, þar sem almenn- ingi gefst kostur á að heimsækja bændabýli og kynnast þeim störf- um sem þar eru unnin. Búin sem þátt taka í því verkefni taka einnig á móti fjölda leik- og grunnskóla- barna ár hvert. Dagur með bónda, þar sem bóndi heimsækir 7. bekk grunnskóla og fer í gegnum skipu- lagða fjögurra kennslustunda dag- skrá, er gott dæmi um vel heppnað verkefni á þessu sviði. Fyrir nokkr- um árum var haldinn hér á landi dagurinn Bændur bjóða heim, þar sem fáeinir tugir bændabýla buðu almenningi í heimsókn við góðar undirtektir. Jákvæð hliðaráhrif af því verkefni voru að víða var ráðist í mikil þarfaverk á sviði umhverf- ismála. Þá býður mjólkuriðnaður- inn 10-12 ára grunnskólabörnum í heimsókn ár hvert. Ónefndar eru landbúnaðarsýningar sem haldnar eru í héraði og vekja jafnan tals- verða athygli. Öll framangreind verkefni lúta að því að komast í bein tengsl við almenning og byggja upp skilning á stöðu og starfi bænda, ásamt því að beina athyglinni að uppruna þeirra afurða sem eru mikilvægur hluti af fæðu þjóðarinnar. Af og til kemur upp tillaga um að samtök bænda ráði sérstakan talsmann, sem tali máli greinarinnar þannig að allir skilji. Ég hef lengi haft sannfæringu fyrir því, að bændur sjálfir séu bestu talsmenn greinarinnar. Uppákoma á borð við þá sem nefnd var í upphafi kostar smávegis vinnu en lítið af peningum. Góð og jákvæð ímynd verður hins vegar vart metin til fjár. /BHB Raddir kúabænda Útivist og ímyndarmál Sláturfélag Suðurlands svf. Fosshálsi 1 IS-110 Reykjavík Sími 575 6000 Fax: 575 6090 www.ss.is Verðskrá 2011 Sáðmagn Sekkur Verð án vsk Verð pr. sekk Tegund Stofn kg/ha kg kr/kg án vsk. Grasfræ: Vallarfoxgras Engmo 25 25 512 12.800 Vallarsveifgras Sobra 18 25 566 14.150 Vallarsveifgras Balin 18 25 566 14.150 Túnvingull Gondolin 20 - 25 15 340 5.100 Grænfóðurfræ: Sumarrýgresi Barspectra (4n) 35 25 355 8.875 Vetrarrýgresi Dasas (4n) 35 25 382 9.550 Vetrarrepja Barcoli 10 25 495 12.375 Vetrarrepja Hobson 10 25 422 10.550 Sáðvara Gras- og grænfóðurfræ frá viðurkenndum framleiðendum Viðskiptakjör: 3% staðgreiðsluafsláttur eða reikningsviðskipti með eindaga 15. næsta mánaðar eftir útgáfu reiknings. Baldur H. Benjamínsson Framkvæmdastjóri LK Dalvegi 6-8 201 Kópavogur Sími 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is Kynntu þér hvað T5000 línan hefur upp á að bjóða. Einn ódýrasti kosturinn í nýjum dráttarvélum í dag. NEW HOLLAND T5000 línan T5040 86 hestafla T5050 97 hestafla T5060 106 hestafla T5070 113 hestafla

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.