Bændablaðið - 26.05.2011, Síða 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
Ford kynnti fyrst hinar frægu
Fordson dráttavélar árið 1916
og framleiðsla á þeim hófst 1917.
Varð vélin síðan fyrirmynd að
fjöldaframleiðslu dráttarvéla í
heiminum. Sovétríkin urðu fljót-
lega stærsti kaupandi Fordson og
voru m.a. seldar 25.000 Fordson
dráttavélar til Sovétríkjanna á
árunum 1921 til 1927. Síðan hófu
Sovétmenn sjálfir að framleiða
Fordson-Putilovets árið 1924.
650 þúsund Fordson
Ýmsar útgáfur komu fram af Fordson
dráttavélum en Ford hætti traktora-
framleiðslu sinni í Bandaríkjunum
þann 14. febrúar 1928. Í maí 1927
höfðu verið framleiddar um 650
þúsund Fordson dráttavélar. Var
framleiðslan flutt til Cork á Írlandi
og síðar til Englands. Eftir 1964 voru
allar dráttavélar sem Ford framleiddi
seldar undir nafninu Ford.
Ford varð að New Holland
og fór til Fiat
Ford merkið hvarf svo af drátta-
vélamarkaðnum sem sjálfstætt
merki árið 1986 þegar Ford keypti
Sperry-New Holland. Voru drátta-
vélar fyrirtækisins eftir það nefndar
Ford-New Holland. Dráttavéladeild
Ford, þ.e. New Holland NV, var
svo seld til Fiat (Fabbrica Italiana
Automobili Torino) árið 1991. Fiat
hætti að nota Ford nafnið á drátta-
vélar sínar árið 1998 að kröfu Ford
og hafa þær síðan verið seldir undir
merkinu New Holland. Fiat keypti
síðan einnig Case IH dráttavélaverk-
smiðjurnar árið 2004 en IH í nafninu
stendur fyrir hið gamla vinnuvéla-
merki International Harvester sem
var vel þekkt hér á landi. Utan um
New Holland og Case IH stofnaði
Fíat móðurfélag sem fékk nafnið
CNH Global.
Ítalir orðnir afgerandi á
markaðnum
Þar sem Fiatsamsteypan var orðin
mjög umsvifamikil á þessum mark-
aði varð fyrirtækið að sæta sam-
keppnishöftum árið 2000 sem fólust
m.a. í því að Fiat varð að losa sig
við ákveðnar framleiðslueiningar.
Þá fóru út Laverda verksmiðjurnar
á Ítalíu sem framleiddi m.a. þreski-
vélar, ein verksmiðja í Kanada sem
hafði framleitt ákveðna gerð af
Ford dráttavélum og verksmiðju í
Bandaríkjunum. Þar að auki varð Fíat
að gefa eftir International Harvester
verksmiðjurnar í Bretlandi sem m.a.
hafði framleitt mikinn fjölda véla
sem seldar voru til Íslands í marga
áratugi mest í gegnum gamla SÍS,
Samband íslenskra samvinnufélaga.
Undir nafni IH komu hingað bæði
hinar frægu McCormick Farmall
dráttavélar, IH jarðýtur sem og
Scout jeppar.
Þegar Fiat eða CNH losaði sig við
IH hélt það eftir Case vörumerkinu
og er það aðallega notað á vinnuvélar
samsteypunnar í dag en Case drátta-
vélar CNH samsteypunnar eru þó
einnig framleiddar og þá undir nafn-
inu Case IH.
International harvester
líka orðið ítalskt
Það var ítalska fyrir-
tækið Landini sem
keypti International
Harvester af CNH og
fékk það hið gamla
og rótgróna landbún-
aðarvinnuvélanafn McCormick með
í kaupunum en það var bandarískt
að uppruna.
AGCO á Challenger, Fendt,
Massey Ferguson og Valtra
Landini er nú undir hatti móðurfélags
sem heitir Argo S.p.A. sem er í eigu
Morra fjölskyldunnar á Ítalíu. Það
félag hafði einnig keypt Laverda
verksmiðjurnar af Fiat samsteyp-
unni árið 2000 en seldi 50% hlut í
því félagi til AGCO árið 2007. Nú
framleiðir Argo samsteypan drátta-
vélar undir nöfnunum Landini,
McCormick og Valpadana sem eru
meira og minna byggða ár sama
kraminu.
AGCO Corporation samsteypan
sem keypti Laverda af Argo er enn
eitt risafyrirtækið í framleiðslu land-
búnaðartækja. Undir þess hatti eru
m.a. Challenger, Fendt, Massey
Ferguson og Valtra, allt þekkt nöfn
hér á landi.
Þýska stoltið Deutze
einnig komið í eigu Ítala
Þýska nafnið Deutze AG er einnig
komið með ítalskt eignarhald eftir
að ítalski dráttavélaframleiðandinn
SAME náði þar yfirhöndinni árið
2003. Það gerðist í kjölfar vandræða
Deutz-Fahr á níunda áratugnum
eftir kaup á bandaríska vinnuvéla-
framleiðandanum Allis Chalmers
Company árið 1985. Þetta fyrirtæki
framleiddi m.a. margar af fyrstu
jarðýtunum sem komu til Íslands.
Þessi kaup reyndust Deutze mikið
ólán og var Allis Chalmers selt til
AGCO árið 1990.
Nú heita Deutze dráttavélarnar
Deutz Fahr en Fahr nafnið var tekið
upp eftir sameiningu við Fahr drátta-
véla og heyvinutækjaverksmiðjurnar.
Allt er þetta nú undir hatti Same
Deutz-Fahr Group (SDF) sem fram-
leiðir einnig Laborghini sportbílana
og þýsku Hürlimann dráttavélarnar.
Same Deutz-Fahr mun einnig hafa
verið í náinni samvinnu við AGCO
samteypuna um dráttavélafram-
leiðslu.
John Deere enn bandarískt
Það eru því fá dráttavélafyrirtæki sem
ekki eru á einn eða annan hátt með
ítalskt eignarhald. John Deere mun
þó enn vera hreint og klárt bandarískt
fyrirtæki með höfuðstöðvar í Moiline
í Illinois. Það er mjög stórt fyrirtæki
og var í 107. sæti yfir 500 stærstu
fyrirtæki heims á lista Fortune 2010.
/HKr.
Gamli Fordson traktorinn varð fyrirmyndin af fjöldaframleiðslu dráttavéla:
Þróaðist yfir í New Holland
– Flestir þekktustu dráttavélaframleiðendur heims nú komnir í eigu Ítala
Sovéskur Fordson-Putilovets.
Ford árgerð 1965.
Ford New Holland árgerð 1991.
Massey Ferguson er nú undir hatti
ítölsku AGCO samsteypunnar.
International Harvester - McCormick
Farmall dráttavélar.
Framtíðarsýn New Holland á vetni-
sknúinni dráttavél sem tilraunir hafa
verið gerðar með.
Valtra er líka í eigu AGCO sam-
steypunnar.
Deutz Fahr.
Þessi John Deere dráttavél er sögð
vera stærsta dráttavél í heimi.
Stórutjarnaskóli í Ljósavatnsskarði
fékk á dögunum afhentan Grænfána
Landverndar, en það var Orri Páll
Jóhannsson sem kom færandi hendi
og afhenti fulltrúum skólans fánann.
Efnt var til samkomu í skólanum
af þessu tilefni, þar sem nemendur
ávörp og foreldrar færðu skólanum
reyniviðarhríslur að gjöf.
Þrjú ár eru nú liðin frá því skólinn
víðasta skilningi og stefna að því að
fá Grænfánann, en oft tekur tíma að
breyta hugsunarhætti fólks og vekja
áhuga þess á málum sem ekki eru
alltaf í brennidepli.
Sigrún Jónsdóttir, formaður umhver-
á að allir bera ábyrgð á sinni afstöðu,
hver sem hún er. Aðgerðaleysi ge-
tur verið afdrifaríkt en hvert sem
viðhorf fólks er hefur það áhrif með
einum eða öðrum hætti. Það er því
mikilvægt að börn læri snemma að
láta sér annt um náttúruna og umh-
af mörkum, láti gott af sér leiða og
hugsi hnattrænt til framtíðar.
Það voru margir afar stoltir og
ánægðir er þeir loksins gátu horft
upp til þessa fallega, græna fána
blakta við hún við skólann.
Stórutjarnaskóli
flaggar Grænfána
Landverndar