Bændablaðið - 26.05.2011, Side 21

Bændablaðið - 26.05.2011, Side 21
21Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 26. MAÍ 2011 Anna ekki vaxandi eftirspurn Ferðast um landið 26 Blaðauki 26. maí 2011 Ferðaþjónusta í sveitum er alvöru búskapur Forvitnileg saga vélvæðingar í íslenskum landbúnaði sýnd í safninu á Hvanneyri Opið daglega í júní, júlí og ágúst frá klukkan 12 til 17 Upplýsingar í síma 844-7740 Bleikjuseiði til sölu Fjallableikja ehf. að Hallkelshólumí Grímsnesi hefur til sölu bleikjuseiði. Upplýsingar: Jónas 862-4685 og Guðmundur 8939-777 eða fjallableikja2010@gmail.com Tvær nýjar sýningar voru opnaðar í Safnahúsinu á Húsavík í liðinni viku. Þær eru gjörólíkar en eiga það þó sam- eiginlegt að vettvangur umfjöllunar- efnisins er Þingeyjarsýslur. Önnur sýningin er um æfingar geimfara og hin um fornleifar og fornleifarann- sóknir. Fornleifar í Þingeyjarsýslum Á síðustu árum hafa víðtækar og umfangsmiklar fornleifarannsóknir farið fram í Þingeyjarsýslum. Með rannsóknum þessum hefur eflst þekk- ing á búsetu fyrr á öldum – ekki síst á söguöld og fengist skýrari mynd af því hvernig fólk lifði fyrir um 1000 árum. Markmið sýningarinnar er að birta yfirlit yfir helstu fornleifarann- sóknir í Þingeyjarsýslum, með sér- stakri áherslu á síðustu 25 árin og efla áhuga fólks á fornminjum á svæðinu. Á sýningunni verða fornmunir sem fundist hafa við fornleifarannsóknir í héraðinu. Bátskumlið á Litlu-Núpum í Aðaldal sem fannst árið 2007 er afar merkur fornleifafundur og er á sýn- ingunni fjallað sérstaklega um hann. Að sýningunni standa Menningarmiðstöð Þingeyinga, Hið þingeyska fornleifafélag og Fornleifastofnun Íslands. Sýningarstjórar eru Sigrún Kristjánsdóttir, Guðrún Alda Gísladóttir, Ásgeir Böðvarsson og Sif Jóhannesdóttir. Sýningin stendur til septemberloka. Geimfarar í Þingeyjarsýslum Árið 1965 kom hópur starfsmanna bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hingað til lands. Í hópnum voru geimfaraefni stofnunarinnar, þeirra á meðal Buzz Aldrin sem steig annar manna fæti á tunglið. Þeir fóru til æfinga og skoðuðu náttúru í Þingeyjarsýslum, sérstaklega við Mývatn og í Öskju. Tveim árum síðar, árið 1967, kom annar hópur frá NASA og meðal geimfaraefna í þeim hóp var Neil Armstrong. Af þeim 12 mönnum sem stigu fæti á tunglið komu 9 í Þingeyjarsýslur til að æfa sig og læra jarðfræði undir handleiðslu íslenskra jarðvísinda- manna. Á sýningunni eru munir sem geimfaraefnin skildu eftir og ljós- myndir frá dvöl þeirra hér auk mynda og muna sem tengjast geimferðum. Sýningarstjóri er Örlygur Hnefill Örlygsson. Sýningin stendur til júní- loka. /MÞÞ Tvær nýjar sýningar opnaðar í Safnahúsinu á Húsavík: Fornleifar og geimfarar í Þingeyjarsýslum Myndirnar tvær hér að ofan eru frá dvöl tunglfaraefnanna hér á landi. Myndirnar tók Sverrir Pálsson fyrrv. fréttaritari Morgunblaðsins á Akureyri. Mynd af kumli á Daðastaðaleiti í landi Lyngbrekku í Reykjadal. Fornleifa- stofnun Íslands á myndina. Mynd frá uppgreftri á Litlu-Núpum. Myndina á Fornleifastofnun Íslands. Margt í boði uppi í sveit 2423

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.