Bændablaðið - 26.05.2011, Page 30

Bændablaðið - 26.05.2011, Page 30
31Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011         !"#$$$%&%                        '( ( )     **     + , *      -  (. + /   0  & * 1 0 + (%                                        Verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá undirrituð: Sýning um samspil hrauns og vatns opnuð í Mývatnsstofu Verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá var undirrituð af umhverf- isráðherra Svandísi Svavarsdóttur við hátíðlega athöfn í gestastofu Umhverfisstofnunar að Hraunvegi 8 í Reykjahlíð í Mývatnssveit fyrir skömmu. Meginmarkmið vernd- aráætlunarinnar fyrir Mývatn og Laxá er að draga fram verndar- gildi svæðisins og marka stefnu um verndun þess með tilliti til þeirra markmiða sem sett hafa verið í lögum um verndarsvæðið. Við sama tækifæri var opnuð ný sýning í gestastofu Umhverfisstofnunar á sama stað. Höfundar sýningarinnar eru Dr. Árni Einarsson, forstöðumaður Rannsóknarstöðvarinnar við Mývatn og Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir hönnuður. Leiðarstef sýningarinnar er samspil vatns og hrauns og veitir sýningin gestum frábært tækifæri til að gera sér grein fyrir jarðfræði svæðisins sem og lífríki Mývatns. „Það er mikilvægt að hafa gesta- stofur á verndarsvæðum þar sem sett er fram skýr og góð fræðsla um sérstöðu verndarsvæðisins, lands og þjóðar,“ sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra við athöfnina. Hún benti á að gesta- stofur væru ferðaþjónustu í landinu mikilvægar og hefði það m.a. sýnt sig í Mývatnssveit. Árið 2009 komu yfir 73 þúsund gestir í Mývatnsstofu á tímabilinu frá byrjun maí til loka september og var það 25% aukning frá fyrra ári. Nokkur fækkun varð á síðastliðnu ári. Umhverfisráðherra sagði opnun Mývatnsstofu lið í aðgerðum stofnunarinnar til að auka fræðslu og auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum um náttúrufar og menn- ingu Mývatns og Laxár í nútíð og þátíð. „Um leið ætti skilningur fólks á mikilvægi góðrar umgengni að vakna því eins og landverðir benda oft á þá leiðir þekking til virðingar og virðing til verndunar,“ sagði Svandís. „Mývatnssvæðið hefur alþjóðlegt verndargildi en Mývatn og Laxá, alls um 20.000 ha, voru fyrsta vot- lendissvæði landsins sem tilnefnt var á Ramsar-listann, þ.e. samþykkt um votlendi með alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf.“ /MÞÞ - Myndir / Finnur Baldursson . -

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.