Fréttablaðið - 05.01.2012, Side 4
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR4
lAnDbúnAðUR „Er þetta ekki
eignaupptaka, ég spyr. Við missum
töluverðan hluta af okkar tekjum
sem gerir erfiðara fyrir okkur
að halda áfram búskap hér í
eynni. Virði jarðarinnar rýrnar
svo ofan í kaupið,“ segir Salvar
Baldursson, hlunnindabóndi í Vigur
í Ísafjarðardjúpi.
Eins og greint var frá í fréttum
í gær hefur umhverfisráðherra
fengið samþykki ríkisstjórnar til að
breyta lögum svo hægt sé að friða
fimm sjófuglastofna af svartfugla-
ætt. Friðun er ómöguleg ef 20. grein
laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og
veiðar á villtum fuglum og villtum
spendýrum stendur. Greinin fjallar
um hlunnindarétt og sölu afurða.
Salvar segir að veiði á lunda sé
um 15% af tekjum þeirra sem búa í
Vigur. Teknir séu fimm til tíu þúsund
fuglar á ári, eftir aðstæðum. „Flesta
munar um það, en það versta er að ég
kem ekki auga á til ganginn. Lundinn
er í vand ræðum í Vestmanna eyjum
og víðar en það segir ekkert um stöð-
una hérna. Hér hefur lundi sótt í sig
veðrið á undanförnum árum. Ég vil
ekki meira af lunda því hér er stórt
æðar varp, sem fer ekki vel saman
við of mikinn lunda.“
Salvar hefur veitt lunda í 40 ár í
Vigur. Hann segir að á þeim tíma
hafi sést greinilegar sveiflur á
stofninum. „Þú fjölgar ekki lunda
á excel-skjali. Þetta snýst allt um
ætið og hvar fuglinn vill vera þess
vegna,“ segir Salvar. Hann bendir
á til samanburðar að í skýrslunni
komi fram að einn netabátur hafi
skráð 8.000 fugla í skýrslur eitt árið.
Bændasamtökin hafa harðlega
gagnrýnt lagabreytingu til friðunar
og hvetja til þess að gerðir séu
samningar við landeigendur um
veiðihlé eða takmörkun veiða.
Vegna þessa sögðu samtökin
sig frá skýrslu starfshóps
umhverfisráðherra en meirihluti
hans mælir með friðun.
Í úrsagnarbréfi fulltrúa BÍ er
bent á að líka þurfi að horfa til sjálf-
bærrar þróunar byggða í landinu.
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir,
fulltrúi Bændasamtakanna í starfs-
hópnum, segir í viðtali við Frétta-
blaðið að í afskekktum byggðum
séu hlunnindi oft megin uppistaðan
í búskap. Það verði að virða. Einnig
rétt landeigenda til nýtingar á
hlunnindum þótt þeir stundi ekki
búskap á jörðinni.
Þá finna Bændasamtökin að því að
lögum sé breytt vegna þess að laga-
breytingar verði ekki aftur teknar.
svavar@frettabladid.is
bAUGsMál Ríkissaksóknari
hefur áfrýjað dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur í skattahluta
Baugsmálsins til Hæstaréttar.
Hann krefst þyngri refsingar
yfir ákærðu í þeim ákæruliðum
þar sem sakfellt var, og þess að
Hæstiréttur snúi dómi héraðs-
dóms í þeim ákæruliðum þar sem
sýknað var.
„Héraðsdómur sakfelldi fyrir
verulegan hluta af því sem var
ákært fyrir, en við teljum að
það eigi að þyngja refsinguna,“
segir Helgi Magnús Gunnarsson
aðstoðarríkissaksóknari.
Þrír sakborningar í málinu
voru í desember sakfelldir fyrir
skattalagabrot. Það voru þau Jón
Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi
stjórnarformaður Baugs Group,
Kristín Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjárfestingafélags-
ins Gaums, og Tryggvi Jónsson,
fyrrverandi forstjóri Baugs.
Þó að héraðsdómur hafi sakfellt
þremenningana fyrir skatta-
lagabrot var þeim ekki gerð refsing
haldi þeir skilorð í eitt ár. Ástæðan
er sú að dómurinn taldi drátt sem
varð á rannsókn málsins brot á
stjórnarskrárvörðum réttindum
sakborni nga og ákvæðum
mannréttindasáttmála Evrópu um
réttláta málsmeðferð. - bj
GenGið 04.01.2012
Gjaldmiðlar kaup sala
Heimild: seðlabanki Íslands
217,7503
GenGisvísitala krónunnar
121,72 122,30
190,44 191,36
158,52 159,40
21,318 21,442
20,564 20,686
17,841 17,945
1,5870 1,5962
187,65 188,77
Bandaríkjadalur
sterlingspund
evra
dönsk króna
Norsk króna
sænsk króna
japanskt jen
sdr
AUGLÝSinGADeiLDiR FRÉTTABLAðSinS – AUGLÝSinGASTJÓRi: jón laufdal jonl@frettabladid.is ALMennAR SÍMi 512-5401: einar davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur steingrímsson hlynurs@365.is, laila awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMi 512-5402: jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, snorri snorrason snorris@365.is SÉRBLÖð SÍMi 512-5016: Benedikt jónsson benediktj@365.is, sigríður sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAðAUGLÝSinGAR /FASTeiGniR SÍMi 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar pétursson vip@365.is ÞJÓnUSTUAUGLÝSinGAR SÍMi 512-5407: sigurlaug aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, arna kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYnninGARSTJÓRi: einar skúlason einar.skulason@365.is
ranglega var sagt að Viðskiptaráð
hafi lagt fram hugmyndir um hvernig
„lækka mætti skatta minna“ og skera
meira niður í Fréttablaðinu í gær. Þar
átti að standa „hækka skatta minna“.
LeiðRÉTT
Ný námskeið hefjast 16. janúar
Viltu losna við verkina?
Námskeið fyrir þá sem glíma við einkenni
frá stoðkerfi svo sem bakverki,
eftirstöðvar slysa eða gigt.
Skráðu þig núna
í síma 560 1010 eða á
mottaka@heilsuborg.is
Faxafeni 14 • www.heilsuborg.is
HeLGi MAGnúS
GUnnARSSon
JÓn ÁSGeiR
JÓHAnneSSon
saksóknari áfrýjar dómi Héraðsdóms reykjavíkur í skattahluta Baugsmálsins:
Telur að þyngja eigi refsinguna
Á KJÖRSTAð egyptar greiddu atkvæði í
gær í síðasta áfanga kosninga til neðri
deildar þingsins. NordicpHotos/aFp
EGypTAlAnD, Ap Egyptar luku í
gær kosningum til neðri deildar
þingsins, sem staðið hafa yfir
í áföngum frá því í byrjun
desember. Kosningar til efri
deildar eru þó enn ekki hafnar.
Veraldlega sinnaðir stjórnar-
andstæðingar, sem voru eitt
helsta aflið í mótmælunum í
Egyptalandi í byrjun síðasta árs,
hafa vaxandi áhyggjur af því að
flokkar á vegum Bræðralags mús-
líma, sem spáð er góðum sigri í
kosningunum, geti nú myndað
stjórn með stuðningsmönnum her-
foringjastjórnarinnar, sem farið
hefur með völdin frá því að Hosni
Mubarak hraktist frá völdum. - gb
síðasti kosningadagur:
Líkur á sigri
múslímaflokks
Ríkisútvarpið heyrist illa
mælingar þróunarsviðs ríkisúvarpsins
vegna hlustunarskilyrða í sandgerðisbæ
sýna að styrkur Fm sendinga er nokkru
fyrir neðan eða í neðri kanti þess
sem æskilegt er fyrir góða þjónustu.
Bæjarstjórnin vill að unnið verði hratt
að nauðsynlegum úrbótum.
SAnDGeRði
bEIjInG, Ap Milljarðamæringurinn
Long Liyuan lést eftir að
hafa borðað hægeldaða
kattakjötskássu þegar hann
fór í hádegismat með tveimur
viðskiptafélögum sínum þann 23.
desember síðastliðinn. Fljótlega
eftir matinn fór Long að finna
fyrir svima og ógleði og var
fluttur á spítala þar sem hann
fékk hjartastopp og dó.
Mennirnir þrír deildu sama
réttinum og veiktust allir,
Long borðaði þó töluvert stærri
skammt en hinir sem gerði það
að verkum að hann var sá eini
sem lést. Talið er að annar hinna
tveggja, Huang Guang, hafi
eitrað matinn en þeir Long höfðu
átt í deilum. - trs
Milljarðamæringur deyr:
Eitur í katta-
kjötskássu
Bóndi í Vigur segir
bannið ógna búskap
Hlunnindabóndi í Vigur í Ísafjarðardjúpi missir 15% af heildartekjum sínum
vegna veiðibanns á lunda. Hann efast um rök fyrir banni þar sem stofn lunda í
eynni sé stærri en fyrri ár. Veiðin er áþekk skráðri veiði frá einum netabáti.
lÖGREGlUMál Lögreglunni
á Selfossi var í vikunni
tilkynnt um innbrot og
þjófnað í sumarbústað við
Sogsbakka sem stendur á milli
Ljósafossvirkjunnar og Stein-
grímsstöðvar í Grímsnes- og
Grafningshreppi. Atvikið hefur
átt sér stað á tímabilinu frá 18.
desember síðastliðnum til 2.
janúar. Þjófurinn eða þjófarnir
stálu Philips flatskjá, fartölvu og
ýmsum öðrum munum. Þeir fóru
um bústaðinn og ollu þar nokkru
tjóni á innanstokksmunum.
Ógreinileg skóför voru í
snjónum við húsið en fennt hafði
í þau svo líkur eru til að nokkrir
dagar hafi verið liðnir frá inn-
brotinu þar til það uppgötvaðist.
Lögreglan á Selfossi biður þá
sem veitt geta upplýsingar um
innbrotið að hafa samband í síma
480 1010. - jss
lögregla leitar upplýsinga:
Þjófar á ferð í
sumarbústað
LAnDSÝn Í Vigur hafa verið veiddir fimm til tíu þúsund lundar á ári.
myNd/BjÖrN BaldurssoN
Í skýrslu starfshóps er lögð áhersla á að hér við land sé einn stofn af lunda,
álku, langvíu, stuttnefju og teistu þannig að staðbundin áhrif og breytingar
hafi áhrif á viðkomandi stofn um allt land.
rannsóknir sýna viðvarandi viðkomubrest hjá um 75% af lundastofninum í
nokkur ár og algjört hrun var í varpi hans árið 2011 nema á Norðurlandi hjá
um 20% af stofninum, þar sem varp var viðunandi.
starfshópurinn telur helstu orsakir hnignunar stofnanna vera fæðuskort en
telur að tímabundið bann við veiðum og nýtingu muni flýta fyrir endurreisn
þeirra.
Rök meirihluta starfshóps fyrir friðun
VEðURspá
alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
kaupmannahöfn
las palmas
london
mallorca
New york
orlando
Ósló
parís
san Francisco
stokkhólmur
HeiMURinn
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
10°
5°
5°
8°
5°
5°
5°
22°
10°
18°
4°
18°
1°
11°
15°
5°
Á MoRGUn
8-13 m/s.
LAUGARDAGUR
5-10 m/s.
-10
0
-4
-2
-2
-2 1
0
-5
-2-1
3
2
1
2
3
8
6
15
5
7
5
2
4
5
-1
-1
1
2
0 -2
-2
LæGð Á Leiðinni
til landsins en
áhrifa hennar fer
að gæta í kvöld
með vaxandi suð-
austanátt og snjó-
komu fyrst sunnan
og vestan til. Það
dregur smám
saman úr frosti og
á föstudag má víða
búast við 0-6 stiga
hita og skúrum
eða éljum en vægu
frosti norðaustantil.
elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
slys Fimmtán íslensk skip
strönduðu eða tóku niðri í fyrra
og er það fjölgun úr átta frá
árinu áður. Árið 2009 voru þau
ellefu.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
Rannsóknarnefndar sjóslysa
(RNS) fyrir árið 2011. Þar segir
einnig að engin banaslys urðu
á sjónum, en það gerðist síðast
árið 2008.
Fjölda skipa sem sökkva
fækkar verulega milli ára, úr
sex í tvö. Þá lentu fleiri skip í
árekstri í fyrra en árið áður. - sv
Mun færri skip sökkva:
Fleiri íslensk
skip strönduðu