Fréttablaðið - 05.01.2012, Side 28
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR2 l fréttablaðið l flutningar
l notið tækifærið til að grisja Þarftu virkilega á fjórum
tappatogurum að halda? Og hvað með fjarstýringuna sem stendur alltaf á
sér? Að flytja í nýtt húsnæði gefur gullið tækifæri til að taka skurk
í því að losa sig við hluti sem enginn notar lengur.
Það sem er nothæft og í góðu standi er tilvalið
að gefa í Góða hirðinn eða Hjálpræðis herinn,
nú eða selja það á ebay og nota féð til að
skreyta nýja heimilið. Það sem er orðið úr sér
gengið og ónothæft setjið þið í endurvinnslu
– ef það er hægt – eða setjið í þar til gerða
ruslagáma. Ónýt rafmagnstæki, málning og
annað sem ekki flokkast undir heimilissorp
verður að fara í Sorpu sem veitir svör við því
hvert tiltekið dót á að fara.
l þegar flytja þarf píanó Kallaðu til fjóra sterka vini til aðstoðar og settu
tvo á hvorn enda píanósins. Passaðu að enginn þeirra sé slæmur í baki. Allir ættu að
vera í vinnuvettlingum.
Passaðu að lokið á píanóinu þarf að vera læst. Vefðu plasti eða dúk um
píanóið og límdu vel saman svo engir lausir endar þvælist fyrir fótum
flutningsmanna.
Með samstilltu átaki skal síðan lyfta píanóinu upp á hjóla-
bretti. Munið að beygja hnén og hafa bakið beint svo átakið
lendi á lærvöðvum.
Þá er píanóinu rúllað á brettinu fram að dyrum, haldið
allan tímann um öll horn og farið varlega yfir þröskulda.
Ef flytja þarf píanó milli hæða gæti verið vissara að hringja í
flutningaþjónustu. Eins ef píanóið er mjög stórt og þungt gæti verið
vissara að fá fagmenn í verkið.
Karl Berndsen, hárgreiðslu-
og förðunarmeistari, tók
álfana til fyrirmyndar
og flutti búferlum um
áramótin. Hann hefur búið í
Grafarvoginum undanfarið
en tók sig upp og settist að í
hjarta Reykjavíkur.
„Ég flutti úr Grafarvoginum niður
í Lækjargötu. Bjó í þessu sama
húsi fyrir átján árum en ekki samt
á þessari hæð sem ég er á núna.
Er búinn að flytja upp um nokkrar
hæðir og kemst ekkert hærra.
Þetta er bara toppurinn enda er
ég með glæsilegt útsýni.“
Ekkert ónæðissamt?
„Nei, alls ekki. Mér finnst
æðislegt að vera í miðju hringið-
unnar. Það hentar mér mjög vel.“
Þú hefur verið eins og uppi í
sveit í Grafarvogi.
„Já, núna er ég þannig að þegar
ég ek þangað upp eftir þá hugsa ég:
Djö… er langt hingað. Allt í einu
fer allt að snúast við. Samt fannst
mér það ekkert mál þegar ég bjó
þar. En þetta á mun betur við mig.
Ég þarf að vera í lífæðinni.“
Ertu búinn að koma þér fyrir?
„Engan veginn. Enda er ég
bara búinn að vera hér síðan á
nýársdag. Nýársnótt var nótt
númer eitt. Álfarnir flytja um
áramótin og ég var með þeim í
því. Þetta er mjög góð byrjun á
nýju ári. Bara alger unaður.“
Hvar er vinnustaðurinn þinn?
„Í Borgartúninu. Ég er bara
tvær mínútur í vinnuna. Þar er
ég á annarri hæð í turninum og
með flott útsýni þar líka.“
Fannst þér mikið átak að
flytja?
„Eiginlega ekki (hlær). Við
skulum segja að ég hafi verið
svona skipulagður. Nei, annars.
Ég var bara með svo marga til
aðstoðar. Á mjög góða að og þeir
voru allir boðnir og búnir að
hjálpa mér. En svo á ég eftir að
mublera upp og fleira.“
Þurftuð þið að bera dótið upp
marga stiga?
„Nei, nei. Það er lyfta í húsinu
þannig að dótið fór beint inn af
götunni og upp.“
Nú má Karl ekki vera að
því að masa öllu lengur því
viðskiptavinur bíður eftir
hársnyrtingu en ekki er hægt
að sleppa honum úr símanum
öðruvísi en að óska honum til
hamingju með nýja þáttinn, Í
nýju ljósi, sem fór í loftið í gær.
Þar er hann að hjálpa konum að
upplifa sig í nýju ljósi, eða eins
og hann orðar það, að fara í
gegnum vaxtarlag og klæðaburð
og hvernig á að hafa hlutföllin
rétt. „Ég held þetta verði
skemmtilegt,“ segir hann. „Bland
af húmor og fræðslu og ég vona
að ég finni réttu hlutföllin þar á
milli.“ - gun
Flutti búferlum um
nýár eins og álfarnir
„Þetta er mjög góð byrjun á nýju ári. Bara alger unaður,“ segir Karl um flutninginn niður í miðbæ. Fréttablaðið/Valli
Til greina koma allir sem hafa lagt umtalsvert af mörkum til að
bæta íslenskt samfélag. Skorað er á lesendur Fréttablaðsins að
senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið
virðingarvott fyrir verk sín. Allir koma til greina, jafnt óþekktir
einstaklingar sem vinna störf sín í hljóði, félagasamtök og
þjóðþekktir karlar og konur sem hafa með gjörðum sínum og
framgöngu verið öðrum fyrirmynd.
Hvunndagshetjan
Einstaklingur sem sýnt hefur sérstaka óeigingirni eða hugrekki,
hvort sem er í tengslum við einn atburð eða með vinnu að
ákveðnum málaflokki í lengri tíma.
Frá kynslóð til kynslóðar
Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar eða aðrir
uppfræðarar sem skarað hafa fram úr á einhvern hátt. Einnig
koma til greina félagasamtök sem sinna börnum af sérstökum
metnaði og alúð.
Til atlögu gegn fordómum
Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því
að eyða fordómum í samfélaginu.
Heiðursverðlaun
Einstaklingur sem með ævistarfi sínu hefur stuðlað að betra
samfélagi.
Samfélagsverðlaunin
Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða
náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt
samfélag betra fyrir okkur öll.
HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ
ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL SAMFÉLAGS-
VERÐLAUNA FRÉTTABLAÐSINS 2012
GÓÐVERKI?
SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS
ERU VEITT Í FIMM FLOKKUM.
1
2
3
4
5
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
Sendið tilnefningar á hlekknum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins
á visir.is/samfelagsverdlaun, með tölvupósti á netfangið samfelags-
verdlaun@frettabladid.is, eða bréfleiðis merkt: Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Dómnefnd tekur allar
innsendar tillögur til skoðunar. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða
veitt í mars.
að senda t
ilnefninga
r
er til miðn
ættis þann
Frestur til
31. janúar