Fréttablaðið - 05.01.2012, Síða 44
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR32
folk@frettabladid.is
Fræga fólkið var samankomið á Times Square í New
York um áramótin en þar er allajafna bein útsending í
sjónvarpinu og talið er niður í komu nýs árs. Hinn eini
sanni Ryan Seacrest sá um að kynna herlegheitin ásamt
leikkonunni Jenny McCarthy en þau kynntu meðal annars
til leiks vinsælustu tónlistarmenn ársins 2011, Justin
Bieber og Lady Gaga, sem tóku lagið. Rappararnir Pitbull
og Drake komu einnig fram fyrir mannfjöldann á Times
Square sem fagnaði nýja árinu með tilheyrandi húllumhæi.
Árinu fagnað á
Times square
klæddur í pels Rapparinn
Cee Lo Green mætti á Times
Square í sínu fínasta pússi.
Nýárskoss Borgarstjóri New York, Michael
Bloomberg, fékk góðan koss frá Lady Gaga þegar
nýja árið gekk í garð.
HressaNdi Lady Gaga söng fyrir
áhorfendur.
Góðir samaN Rapparinn Pitbull
og Justin Bieber stilltu sér upp fyrir
ljósmyndara.
stóð siG vel Jenny McCarthy stóð
vaktina á gamlárskvöld sem kynnir
kvöldsins.
viNsæll Ryan Seacrest er orðinn vanur kynnir og vinsæll meðal áhorfenda.
NoRdiCPhoToS/GeTTY
„Þetta leggst vel í mig. Það er gaman að vera kom-
inn þarna aftur,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi.
Hann hefur tekið við hlutverki kráareigandans
Thénardiers í söngleiknum Vesalingarnir sem
verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í mars. 22
ár eru liðin síðan Laddi steig síðast á fjalirnar í
Þjóðleikhúsinu, eða þegar hann lék Fagin í söng-
leiknum Oliver!.
Hringt var í Ladda rétt fyrir áramót og hann
beðinn um að taka að sér hlutverkið eftir að
Örn Árnason heltist úr lestinni vegna anna með
Spaugstofunni. „Það var eiginlega tekin ákvörðun
á gamlársdag. Þetta gerðist svo snöggt að ég hafði
ekki tíma til að segja nei.“
Æfingar fyrir Vesalingana eru nýhafnar og segist
Laddi hafa verið svolítið nervus fyrstu dagana en
allt eigi eftir að fara vel. Aðspurður segist hann
vera í góðu söngformi, enda stóð hann sig með prýði
í áramótaþætti Hljómskálans í Sjónvarpinu. „Það
er búið að hrósa mér fyrir það, bæði fyrir Snjókorn
falla og Búkollu, þannig að ég hlýt að vera í ágæt-
isformi,“ segir hann hógvær. „Maður er svo sem
ekkert sísyngjandi en ég hlýt að komast í gott form
með því að syngja á hverjum degi.“
Með aðalhlutverkið í Vesalingunum fer Þór
Breiðfjörð sem hefur sungið sama hlutverk á West
End í London. Nokkrir leikarar koma fram í fyrsta
sinn í Þjóðleikhúsinu í söngleiknum, eða þau Eyþór
Ingi Gunnlaugsson, Bjarni Snæbjörnsson, Jana
María Guðmundsdóttir og Orri Huginn Ágústsson.
-fb
Leikur óvænt í Vesalingunum
sNýr aftur í þjóðleikHúsið Laddi snýr aftur í Þjóðleikhúsið
eftir 22 ára fjarveru. fRéTTaBLaðið/aNToN
eru liðiN frá fæðingu hinnar bráðhuggulegu
January Jones úr Mad Men-þáttunum. 34
Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn
föstudaginn 13. janúar 2012, kl. 15:00
í húsnæði félagsins í Mosfellsbæ.
Dagskrá:
1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt 15.
grein samþykkta félagsins.
2. Heimild aðalfundar til handa félagsstjórn
til kaupa á eigin hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á
skrifstofunni í Mosfellsbæ viku fyrir aðalfund
hluthöfum til sýnis.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á
skrifstofu félagsins að Völuteig 6 í Mosfellsbæ á
fundardag.
Mosfellsbæ 5. janúar 2012
Stjórn ÍSTEX hf.
Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn
föstudagi n 13. janúar 2012, kl. 15.00
í húsnæði félagsins í Mosfellsbæ.
Dagskrá:
1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt 15.grein samþykkta
félagsins.
2. Heimild aðalfundar til handa félagsstjórntil kaupa á eigin
hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins mun liggja fr mmi á sk ifstofunni í
Mosfellsbæ viku fyrir aðalfund hluthöfum til sýnis.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins
að Völuteig 6 í Mosfellsbæ á fundardag.
Mosfellsbæ 5. janúar 2012
Stjórn ÍSTEX hf.
94DCK296CS
BORVÉL 18V, OG SKRÚFVÉL 10V
13mm patróna | 2 x 1,5Ah Li-Ion | 2 gírar | Led ljós
1/4” Hex | 2 x 1,3Ah Li-Ion | 8 Nm | Sterk taska
109.900 m/vsk
Fullt verð 124.900
www.sindri .is / sími 5 75 0000
ÖFLUGIR VINNUÞJARKAR
Demi Moore tjáir sig á mjög opinskáan hátt um skilnað sinn og
Ashtons Kutcher í viðtali við bandaríska glamúrtímaritið
Harper‘s Bazaar. Þar kemur meðal annars fram að
sambandi þeirra hafi verið lokið í nóvember en þá
höfðu fjölmiðlar velt sér upp úr hjónabandinu og stöðu
þess í nokkrar vikur.
Moore viðurkennir að eftir tvö misheppnuð hjóna-
bönd óttist hún að hinn eini sanni sé ekki til. „Ég
hræðist það mest að þegar ég stend nú á þessum
tímamótum að ég sé ekki þess verð að vera
elskuð,“ segir Moore af mikilli hreinskilni.
„Að ég verðskuldi hreinlega ekki að vera
elskuð, að eitthvað sé að mér.“
Moore segist jafnframt hafa verið niður-
brotin þegar skilnaðurinn var yfirvofandi
en hún sé óðum að jafna sig. „Ég óttaðist
virkilega að vera yfirgefin þar til góður
vinur minn útskýrði fyrir mér að aðeins
börn væru yfirgefin, ekki fullorðið fólk,
það hefði alltaf eitthvert val.“
Moore opnar sig
óttast ástleysið demi Moore óttast
að vera ekki þess verðug að vera elskuð
og að sá eini rétti sé hreinlega ekki til.