Fréttablaðið - 05.01.2012, Side 54

Fréttablaðið - 05.01.2012, Side 54
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR42 Lögin við vinnuna Vinnan mín sem tónlistarmaður og plötusnúður felur í sér að ég þarf að hlusta á músík á hverjum degi. Byrja daginn oftast á að hlusta á dub og/ eða afróbít. Síðan þegar ég er almennilega vaknaður sekk ég mér í leit að góðri elektróník og teknó tónlist. Mér finnst svo alltaf gott að loka deginum með rólegri tónum frá Miles Davis og fleiri djass-og blúslistamönnum. Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson, meðlimur sveitarinnar Captain Fufanu og dúx í Borgarholtsskóla. „Ég hlakka mikið til að koma fram á Íslandi,“ segir indverska prinsessan Leoncie. Leoncie er væntanleg til lands- ins og kemur fram á Gauki á Stöng laugardaginn 28. janúar. Sjö ár eru liðin frá því að Leoncie flutti til Bretlands og hefur hún síðan þá ekki komið fram á Íslandi. Í við- tali við Fréttablaðið segist hún ekki óttast að það hafi fækkað í aðdáendahópnum hér á landi. „Ég á hiklaust fjölmarga aðdáendur á Íslandi vegna þess að lögin mín eru upplífgandi og jákvæð,“ segir hún. „Nýju lögin mín eru hvert öðru fyndnara og jákvæðara. Ég nýt þess að koma fólki til að hlæja. Ég elska að sjá fólk brosa. Það er niðurdrepandi að horfa framan í fúlt fólk. Hvers vegna í veröldinni ætti fólk að vera fúlt og leiðinlegt? Allir aðdáendurnir mínir eru ham- ingjusamt fólk. Húrra!“ Leoncie hyggst flytja mörg ný lög – lög sem hún fór alla leið til Kanada til að taka upp. „Ég mun svo pottþétt flytja klassísk lög eins og Ást á pöbbnum og fleiri,“ segir hún. Hún segist hafa komið víða fram undanfarið, meðal annars í heimalandi sínu Indlandi, Kanada og Bandaríkjunum. „Ég kem fram á risastórum vel borguðum við- burðum á vegum stórfyrirtækja,“ segir hún. Dvöl Leoncie á Íslandi verður ekki löng í þetta skipti, en hún segist vera mikið bókuð á næstunni og bætir við að eftirspurnin sé mikil á meðal skólabarna í Kanada og Bandaríkjunum, sem vilja að hún komi fram á söngkeppnum. „Hversu yndislegt er það? Ég elska það. Þau eru að minnsta kosti að gera eitthvað jákvætt og gott í lífinu, í staðinn fyrir að áreita fólk eins og hatursfullu uppvakningarn- ir í Sandgerði fyrir sjö árum.“ Hún ætlar jafnvel að taka upp ný tón- listarmyndbönd hér á landi ásamt því að skoða fasteigna markaðinn, en hún hyggst festa kaup á húsi hér á landi í náinni framtíð. „Ég á þegar þorp á Indlandi þar sem hamingjusöm börn syngja lögin mín,“ segir Leoncie. Leoncie lofar einstökum tón- leikum í lok janúar. „Ég er ánægð með þá staðreynd að margt fólk sér lífið með sömu augum og ég. Hvort sem ég fæ spilun í útvarpi eða ekki, heimsfrægð eða ekki, stóra samninga eða ekki. Ég er í þessum bransa til að vera,“ segir Leoncie og sendir þjóðinni ára- mótakveðjur. atlifannar@frettabladid.is LEonCiE: Nýju lögiN míN eru hvert öðru fyNdNara og jákvæðara Indverska prinsessan með langþráða tónleika á Íslandi væntanLeg tiL Landsins Leoncie kemur fram á tónleikum á Gauknum í janúar. Hún lofar einstökum tónleikum. „Hann náði einhvern veginn ekki í gegn. Hann fékk ekki þá útvarpsspilun sem hann hefur fengið oft áður og týndist svolítið,“ segir Eiður Arnarsson hjá Senu um fyrstu sólóplötu Ingólfs Þórarinssonar, Ingó, sem kom út fyrir jólin á vegum fyrirtækisins. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðs- ins seldust innan við eitt þúsund eintök af henni, sem er óvenju lítið þegar hinn vinsæli Ingó er annars vegar. „Við vorum að vonast eftir meiri sölu. Við bjuggumst ekki við neinu í líkingu við Veðurguða-plötuna en vorum að vonast eftir um þrjú þúsund seldum plötum,“ segir Eiður. Plata Ingós og Veðurguðanna sem kom út 2009 hefur selst í um fimm þúsund eintökum. Þar hjálpuðu ótrúlegar vinsældir lagsins Bahama sem kom út árið áður. Ingó sjálfur hefur enga eina skýringu á reiðum höndum. „Maður veit víst ekki neitt, það er það eina sem maður veit,“ segir hann. „Hún fékk lélega dóma á nokkrum stöðum, ég veit ekki hvort það hefur haft áhrif. Svo var þetta kannski ekki eins krakkamiðað og á fyrri plötunni. Náði ekki til eins víðs hóps.“ Sjálfur segist hann vera ánægður með plötuna og vonast til að fleira fólk gefi henni gaum. „Maður fer ekkert á taugum þó að platan seljist illa,“ segir hann og er hvergi af baki dottinn. - fb „Þetta voru töluvert margar senur en ég er ekkert svekktur og skil mjög vel að þetta skyldi hafa verið gert. Auðvitað var leiðinlegt að sjá á eftir þessum atriðum enda í fyrsta skipti sem ég leik í Skaupinu,“ segir leikarinn Atli Þór Albertsson. Flest öll atriði með leikaranum voru klippt út úr Áramótaskaupinu en Atli átti að leika Egil Einars- son eða Gillz. Honum bregður stuttlega fyrir í hlut- verki Egils í einu af upphafsatriðum spéspegils- ins, þá ber að ofan með hár á bringunni, þar sem sjónvarpsþátturinn Með okkar fallegu augum er kynntur til leiks. Þátturinn var gegnumgangandi í öllu Skaupinu en stjórnendur hans voru nafntogaðir einstaklingar á borð við Hildi Líf, Kristrúnu Ösp og Tobbu Marinós. „Upphafsatriðið var ekki alveg eins og það átti að vera en ég veit ekkert hvernig það var klippt til.“ Að sögn Atla voru þetta töluvert margar senur, þar á meðal ein þar sem hann stendur, ber að ofan, að taka viðtal uppi á Hellisheiði í skítakulda. Ákvörðun um að klippa út grínatriði með persónu Egils Ein- arssonar var tekin eftir að sjónvarpsmaðurinn var kærður ásamt kærustu sinni fyrir nauðgun. Rann- sókn á því máli er nú á lokastigi. -fgg Klipptur út úr fyrsta Skaupinu sýnir skiLning Atli Þór Albertsson er ekkert sár þótt hann hafi verið klipptur út úr Skaupinu, hann skilji ákvörðunina mjög vel í ljósi aðstæðna. Atli átti að leika Gillz í Áramótas- kaupi Sjónvarpsins. FréttABLAðið/HEiðA Þrátt fyrir að rapparinn og fjölmiðlamaðurinn Erpur Eyvindarson sé staddur á Kúbu og ætli að dvelja þar næstu vikur heldur Gróa á Leiti áfram að láta gamminn geisa um kappann. Kjaftasagan um endurkomu Johnny national, persónu sem Erpur lék eftirminnilega í þáttum á Skjá einum, hefur verið lífseig og ekki alveg að ástæðu lausu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur möguleg endurkoma verið rædd í gegnum tíðina, þótt ekkert sé í hendi. Hinn kjaftfori Johnny naz fær því að hvíla sig aðeins lengur. - afb fréttir af fóLki Ingó týndist en fer ekki á taugum vonbrigði Salan á fyrstu sólóplötu ingólfs Þórarinssonar var minni en búist var við. Starfsmöguleikar: Innkaupastjóri Útlitsráðgja Stílisti Verslunarstjóri 1. Önn 2. Önn Fatastíll Fatasamsetning Textill UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 Erna, stílisti Ég hef unnið við förðun á Stöð 2 í 6 ár, þar á meðal við förðun keppenda í Idol og annarra sjónvarpsþátta hjá 365. Einnig vinn ég við auglýsingar, mynbönd og myndatökur. Það er óhætt að segja að námið hefur hjálpað mér mikið í star mínu í förðun og stíliseringu. Skjöldur Mio, tískuráðgja Ég taldi mig vita est allt um tísku og útlit áður en ég fór í skólann. En annað kom á daginn. Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu, textil, litafræði, líkamsbyggingu og est allt um útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég er að gera. Ú T L I S T - O G F Ö R Ð U N A R S K Ó L I w w w . u t l i t . i s VILTU VERÐA STÍLISTI? The Academy of Colour and Style er skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám fá nemendur diplóma í útlitsráðgjöf (fashion consultant). Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum. Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu. Kennsla fer fram í Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22. Litgreining Förðun út frá litgreiningu Litasamsetning Svartur hundur prestsins (Kassinn) Heimsljós (Stóra sviðið) Lau 7.1. Kl. 19:30 4. sýn. Sun 8.1. Kl. 19:30 5. sýn. Lau 14.1. Kl. 19:30 6. sýn. Sun 15.1. Kl. 19:30 7. sýn. Lau 21.1. Kl. 19:30 8. sýn. Sun 22.1. Kl. 19:30 9. sýn. Lau 28.1. Kl. 19:30 10. sýn. Sun 29.1. Kl. 19:30 11. sýn. Lau 4.2. Kl. 19:30 12. sýn. Sun 5.2. Kl. 19:30 13. sýn. Lau 11.2. Kl. 19:30 1. Aukas. Sun 12.2. Kl. 19:30 2. Aukas. Lau 18.2. Kl. 19:30 14. sýn. Sun 19.2. Kl. 19:30 15. sýn. Lau 25.2. Kl. 19:30 16. sýn. Sun 26.2. Kl. 19:30 17. sýn. Hreinsun (Stóra sviðið) Fim 5.1. Kl. 19:30 16. sýn. Fös 13.1. Kl. 19:30 17. sýn. Sun 8.1. Kl. 13:30 6. sýn. Sun 8.1. Kl. 15:00 7. sýn. Sun 15.1. Kl. 13:30 Sun 15.1. Kl. 15:00 Sun 22.1. Kl. 13:30 Sun 22.1. Kl. 15:00 Sun 29.1. Kl. 13:30 Sun 29.1. Kl. 15:00 Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan) Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U U U U U Sun 8.1. Kl. 19:30 33. sýn. Fim 12.1. Kl. 19:30 34. sýn. Fös 20.1. Kl. 19:30 37. sýn. Lau 21.1. Kl. 19:30 38. sýn. Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 8.1. Kl. 16:00 Fös 13.1. Kl. 22:00

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.