Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 6
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR6 Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - benni@benni.is - www.benni.is Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333 NJARÐARBRAUT 9 - REYK JAN ES BÆ FIS KIS LÓÐ 3 - REYKJAVÍK Lady’s Style Í fyrsta sinn á Íslandi Luca Aceto, prófessor við Háskólann í Reykjavík, mun kynna frumkvöðulinn Alan Turing og framlag hans til þróunar tölvunarfræðinnar. Fimmtudaginn 12. janúar kl. 16:30 – 17:30 Stofa M101 í HR ALAN TURING: Faðir tölvunarfræðinnar Í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu Turings sem var einn helsti frumkvöðull gervigreindar en árið 1936 lýsti hann svokallaðri Turing-vél, sem hefur minni og getur framkvæmt skipanir geymdar í minninu. Fyrirlestra og atburði má sjá nánar hér: http://icetcs.ru.is/turingyear2012RU.html Tölvunarfræðideild HR efnir til fyrirlestraraðar af þessu tilefni. KAUPMANNAHÖFN, FRÉTTABLAÐIÐ Morten Bødskov, dómsmálaráð- herra Danmerkur, ætlar að beita sér fyrir að samkomulag náist á fyrri hluta ársins um að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að Schengen- vegabréfasamstarfinu. Danmörk er nú í forsæti Evrópusambandsins. Holland stendur eitt aðildarríkja ESB gegn Schengen-aðild Rúmen- íu og Búlgaríu, eftir að Finnland lét af andstöðu sinni. Afstaða hol- lenzkra stjórnvalda byggist á því að löndin tvö hafi ekki náð nægi- legum árangri í baráttunni við spillingu og skipulagða glæpa- starfsemi og réttarkerfið sé of veikt. Þau séu því ekki í stakk búin að gæta ytri landamæra Schengen- svæðisins. „Ég vona að lausn finnist fljót- lega. Það á að meta öll ríki út frá sömu skilyrðum og ekki beita tvö- földu siðgæði, þar sem sum ríki þurfa að uppfylla strangari skil- yrði en önnur,“ sagði Bødskov á fundi með blaðamönnum frá ýmsum Evrópuríkjum í Kaup- mannahöfn í gær. „Búlgaría og Rúmenía hafa lagt mikið á sig að uppfylla skilyrði Schengen-aðildar og Danir munu, á meðan þeir eru í formennsku ESB, halda áfram að reyna að finna lausn sem allir geta sætt sig við.“ Ríkisstjórn vinstriflokkanna í Danmörku hefur aðra afstöðu til Schengen-samstarfsins en hægri- stjórnin sem sat á undan henni og lét það verða eitt sitt fyrsta verk að aflétta á ný eftirliti á landa- mærunum að Svíþjóð og Þýzka- landi, sem komið var á í fyrra. - óþs Dómsmálaráðherra Danmerkur vill beita sér fyrir samkomulagi: Vill að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að Schengen á árinu SÖMU SKILYRÐI FYRIR ALLA Morten Bødskov, dómsmálaráðherra Danmerk- ur, vill hleypa Rúmeníu og Búlgaríu inn í Schengen-samstarfið sem fyrst. MYND/LARS SVANKJÆR DÓMSMÁL Slitastjórn Glitnis mun á allra næstu dögum stefna níu manns til greiðslu skaðabóta að upphæð sex og hálfur milljarður króna vegna víkjandi láns sem veitt var til Baugs í desember 2007. Heimildir Fréttablaðsins herma að um sé að ræða Lárus Welding, þáverandi forstjóra bankans, Jón Ásgeir Jóhannesson, þáverandi aðaleiganda Baugs og stjórnarfor- mann FL Group, og alla sjö manna stjórn bankans á þeim tíma. Í stjórninni sátu þá formaðurinn Þorsteinn M. Jónsson, kenndur við Coke, Jón Sigurðsson, þá glænýr forstjóri FL Group, Skarphéð- inn Berg Steinarsson, fyrrver- andi stjórnarformaður FL Group, Pétur Guðmundarson, lögmaður hjá Logos, Björn Ingi Sveinsson, forstjóri Saxbygg, Haukur Guð- jónsson og Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis. Stefnan hafði ekki verið birt neinum nímenninganna í gær en hún hafði verið boðuð í samtölum við lögmenn sumra þeirra. Málið snýst um fimmtán millj- arða víkjandi lán sem áhættunefnd bankans samþykkti að veita Baugi 20. desember 2007. Lánið fékk Baugur til að taka þátt í hlutafjár- útboði FL Group, en Baugur var stærsti eigandi FL Group á þeim tíma. Slitastjórnin metur skaðann af lánveitingunni hóflega á 6,5 milljarða króna. Sérstakur saksóknari hefur lánveitinguna og sölutryggingu Glitnis á hlutafjárútboðinu til rannsóknar. Sú rannsókn lá meðal annars til grundvallar gæsluvarð- haldsúrskurðunum yfir Lárusi og tveimur öðrum Glitnismönnum fyrir jól. Slitastjórn krefur níu manns um milljarða Lárusi Welding, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og allri fyrrverandi stjórn Glitnis stefnt vegna fimmtán milljarða víkjandi láns til Baugs í árslok 2007. Lánið er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Tjónið er metið á sex og hálfan milljarð. Fjórir þeirra sem stefnt verður í þessu máli, Lárus, Jón Ásgeir, Þor- steinn og Jón, voru meðal stefndu í 250 milljarða skaðabótamáli sem slitastjórnin höfðaði í New York í fyrra. Því máli var vísað frá dómi og í kjölfarið boðaði slitastjórnin að höfðuð yrðu sambærileg skaða- bótamál hér á landi, hugsanlega í annarri mynd, í mörgum hlutum og að einhverju leyti á hendur öðru fólki. Slitastjórnin hefur þegar höfð- að eitt stórt skaðabótamál hér heima, svokallað Aurum-mál, þar sem Lárus, Jón Ásgeir, Pálmi Har- aldsson í Fons og þrír fyrrverandi starfsmenn Glitnis eru krafðir um sex milljarða. stigur@frettabladid.is Stýrðu og tengdust Glitni náið Hér má sjá sjö þeirra sem verður stefnt, réttsælis að ofan; Lárus Welding, Jón Ásgeir Jóhannesson, Þorstein M. Jónsson, Katrínu Pétursdóttur, Björn Inga Sveinsson, Skarphéðin Berg Steinarsson og Jón Sigurðsson. Slitastjórn hyggst stefna tveimur fyrrverandi stjórnarmönnum að auki, þeim Pétri Guð- mundarsyni og Hauki Guðjónssyni. Málið verður höfðað á allra næstu dögum. DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært fimm menn fyrir rán. Fjórir mannanna eru í kringum tvítugt en sá fimmti er á fertugs- aldri. Fjórum þeirra er gefið að sök að hafa að kvöldi föstudagsins 11. febrúar 2011 tekið ákvörðun um að fremja rán. Þrír þeirra fóru inn á Domino’s Pizza í Spönginni með andlit sín hulin. Sá fjórði beið í bíl fyrir utan, eftir að hafa ekið þeim þangað. Einn mannanna tók vaktstjórann kverkataki, þrýsti honum upp að vegg og krafðist þess að hann upplýsti hvar pen- ingarnir væru geymdir, sem hann gerði. Hinir tveir fóru því næst inn í vaktherbergi og tóku þaðan tæplega 200 þúsund í reiðufé og höfðu á brott með sér. Bílstjórinn ók mönnunum á brott og útvegaði lambhúshettur sem notaðar voru við ránið. Þeir skiptu ránsfengnum með sér. Þá eru mennirnir allir ákærð- ir fyrir rán á Domino’s Pizza við Hjarðarhaga. þeir höguðu rán- inu eins og í fyrra skiptið. Starfs- manni var svo ógnað með kúbeini og náðu þeir með þeim hætti 85 þúsund krónum. Einn mannanna er svo ákærð- ur fyrir að hafa amfetamín í íbúð sinni. - jss Fimm menn ákærðir fyrir þaulskipulögð rán á tveimur veitingastöðum: Ákærðir fyrir tvö rán í Domino’s DOMINO’S Mennirnir eru ákærðir fyrir tvö rán á veitingastöðum Dominos. DÓMSMÁL Karlmaður um tvítugt hefur verið krafinn um rúmlega 2,6 milljónir króna af manni sem hann réðst á árið 2010 fyrir utan skemmtistað í Vestmannaeyjum. Fórnarlambið margbrotnaði á kinnbeini og gengu brotin upp í augntóftina á nokkrum stöðum þannig að hann þurfti að fara í aðgerð. Þá er sami maður ákærð- ur fyrir að hafa ráðist í félagi við annan mann á karlmann á skemmtistað í Vestmannaeyjum. Það fórnarlamb krefst 400 þús- unda króna. - jss Tvær líkamsárásir: Krefst 2,6 millj- óna eftir árás Stundar þú ólöglegt niðurhal? Já 81% Nei 19% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætti stangveiðileyfum að vera úthlutað til almennings úr pottum? Segðu skoðun þína á Visir.is. KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.