Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 10
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR10 FRÉTTASKÝRING: Silíkonfyllingar í brjóstum Evrópska heilbrigðiseftir- litið rannsakar nú mögu- lega skaðsemi sílíkonsins í brjóstafyllingunum frá franska fyrirtækinu P.I.P. Skaðsemi þeirra hefur ekki verið staðfest. Velferðar- ráðherra gagnrýnir sam- spil einkageirans og hins opinbera í heilbrigðiskerf- inu. Þúsundir íslenskra kvenna eru með sílíkonpúða í brjóstum sínum. Þúsundir íslenskra kvenna eru með sílíkonpúða í brjóstunum. Greinilegt er að aðgerðin nýtur mikilla vinsælda og virðast lýta- læknar almennt sammála um að fyllingarnar geti hjálpað konum við að öðlast sjálfstraust og líða betur með líkama sinn. Nú hefur komið í ljós að hundruð kvenna hér á landi eru með svokall- aðar P.I.P. fyllingar í brjóstunum, sem voru bannaðar hér á landi og víðar í Evrópu vorið 2010. Púðarnir eru frá franska fyrirtækinu Poly Implant Prothèse, sem er nú gjald- þrota, en í ljós kom að í sílíkonfyll- ingarnar var notað annað efni en fyrirtækið hafði áður fengið gæða- vottað. Má því segja að varan hafi verið fölsuð eða gölluð. 440 konum veitt þjónusta Ríkisstjórnin ákvað á þriðjudag að aðstoða þær konur sem hafa umræddar fyllingar í brjóstum sínum með því að bjóða þeim ókeypis ómskoðun á brjóstum og taka þátt í kostnaði við að fjar- lægja púðana reynist þeir lekir. Nokkur gagnrýni kom fram á þessa ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar, meðal annars frá Álfheiði Inga- dóttur, formanni velferðarnefndar Alþingis og fyrrverandi heilbrigð- isráðherra. Sagði Álfheiður sér vera misboðið að ríkið bjóðist ekki til þess að láta fjarlægja púðana konunum að kostnaðarlausu, hvort sem þeir séu lekir eða ekki. Benti hún á að þótt þeir leki ekki þann dag sem þeir eru skoðaðir, geti þeir farið að leka daginn eftir. Ríkið ætti svo að sækja kostnaðinn til fyrirtækisins sem flutti púðana inn og setti þá í. Guðbjartur Hannesson velferð- arráðherra segir það mat sérfræð- inga, bæði hérlendis og í nágranna- löndunum, að eins og staðan sé væri það mun hættumeira að láta konurnar fara í aðgerð til að fjar- lægja púða sem ekki eru lekir held- ur en að hafa þá í. „Skaðsemi púðanna liggur ekki fyrir, en það er vissulega ljóst að þetta hefur angrað þær konur þar sem púðarnir hafa sprungið,“ segir hann. Til skoðunar sé einnig að bjóða konunum að koma í reglu- legt eftirlit á næstu misserum og fjarlægja þá púða sem leka. Flutti inn og setti í Sem kunnugt er var það Jens Kjartansson, lýtalæknir og yfir- læknir lýtalækningadeildar Land- spítalans sem flutti inn P.I.P. púð- ana sem voru bannaðir í lok mars árið 2010. Hann ákvað í gær að segja starfi sínu á Landspítalanum lausu vegna álags undanfarnar vikur og veikinda. Jens fullyrðir að púðarnir hafi ekki verið notaðir eftir að bannið var sett og hafi því þurft að losa sig við birgðirnar sem hann hafði þegar flutt inn. Eitthvað magn af P.I.P. púðum á hann þó enn til á lager. „Þetta er frekar leiðinlegur minjagripur,“ segir Jens. Að sögn hans liggja þó fyrir niðurstöður frá breska og franska rannsóknareftir- litinu á innihaldsgreiningu púð- anna og kemur þar fram að efnið virðist ekki vera eitrað eða hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks. „Til að mynda hefur kanadísk rannsóknarstofa rannsakað 300 týpur af innihaldi brjóstafyllinga. Þar kom í ljós að það er ómögulegt að ná sílíkoninu alveg hreinu en þrátt fyrir það þá hefur það ekki skaðleg áhrif á líkamann,“ segir hann. „Sílíkonið í P.I.P. fyllingun- um hefur ekki skaðleg áhrif, þó það komi rof á púðann.“ Álfheiður Ingadóttir hefur einn- ig furðað sig á því að púðarnir hafi verið bannaðir í tíu ár í Bandaríkj- unum en samt sem áður verið not- aðir hér á landi. Jens segir það á misskilningi byggt, þar sem Banda- ríkjamenn bönnuðu allar sílíkon- fyllingar í brjóst árið 1992. Skilur konurnar vel Forstjóri franska framleiðandans P.I.P. hefur sakað konurnar sem sækjast eftir skaðabótum vegna púðanna í Frakklandi um að vera bara á höttunum eftir peningum. Jens deilir ekki því sjónarmiði. „Ég er svo hjartanlega sam- mála þessum konum sem ekki vilja vera með þessa púða. Ætli ég sé ekki sá sem mundi þrá það mest að það væri hægt að taka þetta allt í burtu.“ Ráðherra gagnrýnir samspil Velferðarráðherra telur það afar óeðlilegt að yfirlæknir á Land- spítala flytji inn læknavörur fyrir sína einkareknu stofu. „Við þurfum að taka spurninguna um ábyrgðina lengra í þessu öllu saman,“ segir Guðbjartur varðandi hlutverk starfandi heilbrigðisstétta fyrir hið opinbera. „Getur það undir einhverjum kringumstæðum verið eðlilegt að viðkomandi sé í við- skiptasambandi við framleiðenda vöru eða söluaðila? Við munum að sjálfsögðu skoða það. Mér finnst þetta sjálfum mjög óeðlilegt.“ Hagsmunir mega ekki ráða Guðbjartur segir heilbrigðisyfir- völd hafa verið að taka fyrir að heilbrigðisstarfsfólk á vegum hins opinbera taki þátt í boðsferðum vegna sölu á vöru eða lyfjum. „Vegna þess að menn eru þá ekki lengur óháðir gagnvart því sem er notað,“ segir hann. „Við sem rekum heilbrigðiskerfið viljum að það sé alltaf notuð hagkvæmasta og besta varan og það má aldrei ráðast af hagsmunum einstakra starfsmanna sem við erum að fjármagna, þó svo að svo hafi ekki verið í þessu ein- staka tilviki.“ Alþjóðlegt hneyksli Hundruð þúsunda kvenna frá 65 löndum, flestum í Suður-Ameríku og Vestur-Evrópu, hafa fengið púð- ana í brjóst sín. Heilbrigðiseftirlit- ið í Frakklandi hefur gefið það út að öllum þeim 30 þúsund frönsku konum sem hafa fyllingarnar skuli láta fjarlægja þær. Þó hefur ekki verið sýnt fram á að sílíkonið valdi heilsutjóni, leki það úr púðunum, en evrópska heilbrigðisrannsókn- arstofnunin rannsakar nú mögu- lega skaðsemi efnisins. Niðurstöður munu liggja fyrir í lok mánaðar- ins, en hingað til hefur ekki verið sýnt fram á skaðsemi efnisins með óyggjandi hætti. Svíar, Norðmenn og Bretar hafa tilkynnt að ríkið muni ekki koma að fjarlægingu eða skoðun á púðum þeirra kvenna sem eru með þá, þar sem niðurstöður um mögulega skaðsemi innihaldsins liggi ekki fyrir. Skaðsemi púðanna rannsökuð í Evrópu Jens Kjartansson óskaði í gær eftir fjögurra mánaða leyfi frá störfum á Landspítalanum vegna veikinda sem hefðu ágerst við álagið undanfarnar vikur. Þetta tilkynnti hann á fundi með forstöðu- mönnum spítalans síðdegis. Guðbjartur Hannesson vel- ferðarráðherra sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að afar óeðlilegt væri að yfirlæknir á spítalanum ræki læknastofu og flytti inn lækningavörur. Farinn í leyfi Ég er svo hjartanlega sammála þessum konum sem ekki vilja vera með þessa púða. Ætli ég sé ekki sá sem mundi þrá það mest að það væri hægt að taka þetta allt í burtu. JENS KJARTANSSON FYRRVERANDI YFIRLÆKNIR LÝTALÆKNINGA Á LSH Silíkon er unnið úr kísil (e. silicone), sem er eitt af algengustu frumefnum jarðar. Silíkon í brjóstapúðum er unnið úr kísil og súrefni, ásamt ýmsum olíum og geli sem finna má í hreinsiefnum og snyrtivörum. Kísillinn fer í gegn um mikið og strangt hreinsunarferli áður en hann er notaður í silíkonið. Hann er eitt af fáum frumefnum sem mannslíkaminn hafnar ekki við ígræðslu. Unnið silíkon er einnig notað í gúmmí, smurefni, eldhúsáhöld og einangr- unarefni. Heimild: Vísindavefurinn Notað í brjóst, einangrun og eldhústæki Sunna Valgerðardóttir sunna@frettabladid.is PÚÐARNIR FJARLÆGÐIR Fjöldi franskra kvenna hefur nú þegar látið fjarlægja P.I.P. púðana. Ríkið mun taka þátt í kostnaði við aðgerðina hérlendis séu púðarnir lekir. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.