Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 10
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR10
FRÉTTASKÝRING: Silíkonfyllingar í brjóstum
Evrópska heilbrigðiseftir-
litið rannsakar nú mögu-
lega skaðsemi sílíkonsins
í brjóstafyllingunum frá
franska fyrirtækinu P.I.P.
Skaðsemi þeirra hefur ekki
verið staðfest. Velferðar-
ráðherra gagnrýnir sam-
spil einkageirans og hins
opinbera í heilbrigðiskerf-
inu. Þúsundir íslenskra
kvenna eru með sílíkonpúða
í brjóstum sínum.
Þúsundir íslenskra kvenna eru
með sílíkonpúða í brjóstunum.
Greinilegt er að aðgerðin nýtur
mikilla vinsælda og virðast lýta-
læknar almennt sammála um að
fyllingarnar geti hjálpað konum við
að öðlast sjálfstraust og líða betur
með líkama sinn.
Nú hefur komið í ljós að hundruð
kvenna hér á landi eru með svokall-
aðar P.I.P. fyllingar í brjóstunum,
sem voru bannaðar hér á landi og
víðar í Evrópu vorið 2010. Púðarnir
eru frá franska fyrirtækinu Poly
Implant Prothèse, sem er nú gjald-
þrota, en í ljós kom að í sílíkonfyll-
ingarnar var notað annað efni en
fyrirtækið hafði áður fengið gæða-
vottað. Má því segja að varan hafi
verið fölsuð eða gölluð.
440 konum veitt þjónusta
Ríkisstjórnin ákvað á þriðjudag
að aðstoða þær konur sem hafa
umræddar fyllingar í brjóstum
sínum með því að bjóða þeim
ókeypis ómskoðun á brjóstum og
taka þátt í kostnaði við að fjar-
lægja púðana reynist þeir lekir.
Nokkur gagnrýni kom fram á
þessa ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar, meðal annars frá Álfheiði Inga-
dóttur, formanni velferðarnefndar
Alþingis og fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra. Sagði Álfheiður sér
vera misboðið að ríkið bjóðist ekki
til þess að láta fjarlægja púðana
konunum að kostnaðarlausu, hvort
sem þeir séu lekir eða ekki. Benti
hún á að þótt þeir leki ekki þann
dag sem þeir eru skoðaðir, geti þeir
farið að leka daginn eftir. Ríkið
ætti svo að sækja kostnaðinn til
fyrirtækisins sem flutti púðana
inn og setti þá í.
Guðbjartur Hannesson velferð-
arráðherra segir það mat sérfræð-
inga, bæði hérlendis og í nágranna-
löndunum, að eins og staðan sé
væri það mun hættumeira að láta
konurnar fara í aðgerð til að fjar-
lægja púða sem ekki eru lekir held-
ur en að hafa þá í.
„Skaðsemi púðanna liggur ekki
fyrir, en það er vissulega ljóst
að þetta hefur angrað þær konur
þar sem púðarnir hafa sprungið,“
segir hann. Til skoðunar sé einnig
að bjóða konunum að koma í reglu-
legt eftirlit á næstu misserum og
fjarlægja þá púða sem leka.
Flutti inn og setti í
Sem kunnugt er var það Jens
Kjartansson, lýtalæknir og yfir-
læknir lýtalækningadeildar Land-
spítalans sem flutti inn P.I.P. púð-
ana sem voru bannaðir í lok mars
árið 2010. Hann ákvað í gær að
segja starfi sínu á Landspítalanum
lausu vegna álags undanfarnar
vikur og veikinda.
Jens fullyrðir að púðarnir hafi
ekki verið notaðir eftir að bannið
var sett og hafi því þurft að losa
sig við birgðirnar sem hann hafði
þegar flutt inn. Eitthvað magn af
P.I.P. púðum á hann þó enn til á
lager.
„Þetta er frekar leiðinlegur
minjagripur,“ segir Jens. Að sögn
hans liggja þó fyrir niðurstöður frá
breska og franska rannsóknareftir-
litinu á innihaldsgreiningu púð-
anna og kemur þar fram að efnið
virðist ekki vera eitrað eða hafa
skaðleg áhrif á heilsu fólks.
„Til að mynda hefur kanadísk
rannsóknarstofa rannsakað 300
týpur af innihaldi brjóstafyllinga.
Þar kom í ljós að það er ómögulegt
að ná sílíkoninu alveg hreinu en
þrátt fyrir það þá hefur það ekki
skaðleg áhrif á líkamann,“ segir
hann. „Sílíkonið í P.I.P. fyllingun-
um hefur ekki skaðleg áhrif, þó það
komi rof á púðann.“
Álfheiður Ingadóttir hefur einn-
ig furðað sig á því að púðarnir hafi
verið bannaðir í tíu ár í Bandaríkj-
unum en samt sem áður verið not-
aðir hér á landi. Jens segir það á
misskilningi byggt, þar sem Banda-
ríkjamenn bönnuðu allar sílíkon-
fyllingar í brjóst árið 1992.
Skilur konurnar vel
Forstjóri franska framleiðandans
P.I.P. hefur sakað konurnar sem
sækjast eftir skaðabótum vegna
púðanna í Frakklandi um að vera
bara á höttunum eftir peningum.
Jens deilir ekki því sjónarmiði.
„Ég er svo hjartanlega sam-
mála þessum konum sem ekki vilja
vera með þessa púða. Ætli ég sé
ekki sá sem mundi þrá það mest að
það væri hægt að taka þetta allt í
burtu.“
Ráðherra gagnrýnir samspil
Velferðarráðherra telur það afar
óeðlilegt að yfirlæknir á Land-
spítala flytji inn læknavörur fyrir
sína einkareknu stofu.
„Við þurfum að taka spurninguna
um ábyrgðina lengra í þessu öllu
saman,“ segir Guðbjartur varðandi
hlutverk starfandi heilbrigðisstétta
fyrir hið opinbera. „Getur það undir
einhverjum kringumstæðum verið
eðlilegt að viðkomandi sé í við-
skiptasambandi við framleiðenda
vöru eða söluaðila? Við munum að
sjálfsögðu skoða það. Mér finnst
þetta sjálfum mjög óeðlilegt.“
Hagsmunir mega ekki ráða
Guðbjartur segir heilbrigðisyfir-
völd hafa verið að taka fyrir að
heilbrigðisstarfsfólk á vegum hins
opinbera taki þátt í boðsferðum
vegna sölu á vöru eða lyfjum.
„Vegna þess að menn eru þá ekki
lengur óháðir gagnvart því sem er
notað,“ segir hann. „Við sem rekum
heilbrigðiskerfið viljum að það sé
alltaf notuð hagkvæmasta og besta
varan og það má aldrei ráðast af
hagsmunum einstakra starfsmanna
sem við erum að fjármagna, þó svo
að svo hafi ekki verið í þessu ein-
staka tilviki.“
Alþjóðlegt hneyksli
Hundruð þúsunda kvenna frá 65
löndum, flestum í Suður-Ameríku
og Vestur-Evrópu, hafa fengið púð-
ana í brjóst sín. Heilbrigðiseftirlit-
ið í Frakklandi hefur gefið það út
að öllum þeim 30 þúsund frönsku
konum sem hafa fyllingarnar skuli
láta fjarlægja þær. Þó hefur ekki
verið sýnt fram á að sílíkonið valdi
heilsutjóni, leki það úr púðunum,
en evrópska heilbrigðisrannsókn-
arstofnunin rannsakar nú mögu-
lega skaðsemi efnisins. Niðurstöður
munu liggja fyrir í lok mánaðar-
ins, en hingað til hefur ekki verið
sýnt fram á skaðsemi efnisins með
óyggjandi hætti.
Svíar, Norðmenn og Bretar hafa
tilkynnt að ríkið muni ekki koma að
fjarlægingu eða skoðun á púðum
þeirra kvenna sem eru með þá,
þar sem niðurstöður um mögulega
skaðsemi innihaldsins liggi ekki
fyrir.
Skaðsemi púðanna rannsökuð í Evrópu
Jens Kjartansson óskaði í gær eftir
fjögurra mánaða leyfi frá störfum
á Landspítalanum vegna veikinda
sem hefðu ágerst við álagið
undanfarnar vikur. Þetta tilkynnti
hann á fundi með forstöðu-
mönnum spítalans síðdegis.
Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að afar óeðlilegt
væri að yfirlæknir á spítalanum
ræki læknastofu og flytti inn
lækningavörur.
Farinn í leyfi
Ég er svo hjartanlega sammála þessum konum sem
ekki vilja vera með þessa púða. Ætli ég sé ekki sá
sem mundi þrá það mest að það væri hægt að taka þetta allt
í burtu.
JENS KJARTANSSON
FYRRVERANDI YFIRLÆKNIR LÝTALÆKNINGA Á LSH
Silíkon er unnið úr kísil (e. silicone), sem er eitt af algengustu frumefnum
jarðar. Silíkon í brjóstapúðum er unnið úr kísil og súrefni, ásamt ýmsum
olíum og geli sem finna má í hreinsiefnum og snyrtivörum. Kísillinn fer
í gegn um mikið og strangt hreinsunarferli áður en hann er notaður í
silíkonið. Hann er eitt af fáum frumefnum sem mannslíkaminn hafnar ekki
við ígræðslu.
Unnið silíkon er einnig notað í gúmmí, smurefni, eldhúsáhöld og einangr-
unarefni. Heimild: Vísindavefurinn
Notað í brjóst, einangrun og eldhústæki
Sunna
Valgerðardóttir
sunna@frettabladid.is
PÚÐARNIR FJARLÆGÐIR Fjöldi franskra
kvenna hefur nú þegar látið fjarlægja
P.I.P. púðana. Ríkið mun taka þátt í
kostnaði við aðgerðina hérlendis séu
púðarnir lekir.
NORDICPHOTOS/AFP