Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 12.01.2012, Blaðsíða 52
12. janúar 2012 FIMMTUDAGUR36 bio@frettabladid.is Fyrsta Prúðuleikara-mynd- in í tólf ár, The Muppets, verður frumsýnd hér á landi um helgina. Hún hefur verið gagnrýnd af bandarískum íhaldsmönn- um fyrir kommúnisma og öfga-umhverfisvernd á meðan gagnrýnendur og áhorfendur hafa lýst yfir einskærri ást sinni á þessum höfuðpersónum hins sáluga Jim Henson. The Muppets er sjöunda kvikmynd- in um Prúðuleikarana sem ratar á hvíta tjaldið. Að þessu sinni njóta þeir lífsins lystisemda þegar þráð- urinn er tekinn upp, Svínka stýrir tískutímariti, Kermit sleikir sól- ina í villu sinni og Dýri er kominn í reiðimeðferð fyrir fræga fólkið. Þegar þrír aðdáendur Prúðuleikar- anna komast að því að hinn illi Tex Richman ætli sér að rífa hið forn- fræga Prúðuleikhús og bora fyrir olíu verða þeir að sameina gengið fræga og fá þá til að berjast gegn illvirkjum olíubarónsins. The Muppets-myndin er að mestu leyti hugmynd og hugarverk gaman leikarans Jason Segel sem margir ættu að kannast við úr How I Met Your Mother-gamanþáttunum og kvikmyndinni Forgetting Sarah Marsall. Hann kynnti forsvars- mönnum Disney hugmynd sína um að endurvekja brúðurnar snemma árs 2008 en Disney hafði þá ekki framleitt Prúðuleikaramynd frá því að Muppet Treasure Island var frumsýnd árið 1996 (hún fékk mis- jafnar viðtökur og slappa aðsókn). Disney leist vel á hugmyndina og veitti honum styrk til að þróa hand- rit og Variety greindi frá því að samningar hefðu náðst í mars það sama ár. Fyrsta uppkasti var skilað inn á skrifstofur framleiðsludeild- arinnar í júní og fljótlega eftir það fór boltinn að rúlla. Snemma varð ljóst að Segel myndi leika eitt aðal- hlutverkanna en meðhöfundur hans að handritinu, Nicholas Stoller, átti að leikstýra. Hins vegar var fall- ið frá þeirri hugmynd og James Bobin fenginn til að taka það hlut- verk að sér. Hann hafði leikstýrt gamanþáttum fyrir gríntvíeyk- ið The Flight of the Conchords og sjónvarpsseríunni um alter-egó Sacha Baron Cohen, Ali G. Amy Adams var síðan ráðin í aðalkven- hlutverkið og gæðaleikarinn Chris Cooper tók að sér hlutverk þrjótsins Richman. Handritshöfundarnir boðuðu að nýja Prúðuleikaramyndin yrði gerð í anda sjónvarpsþáttanna sem sýnd- ir voru frá 1976 til 1981 þar sem svartur húmor fengi að leika laus- um hala. Vinnutitill myndarinnar var þannig The Greatest Muppet Movie of All Time!!! Snemma lak það út að mörgum þekktum leik- urum myndi bregða fyrir í mynd- inni. Og það kom á daginn; Emily Blunt, Billy Crystal, Jack Black og Alan Arkin bregður vissulega fyrir en hins vegar vekur listinn af þeim stjörnum sem voru klippt- ar út vegna tímamarka enn meiri athygli. Á honum má finna nöfn Lady Gaga, Ben Stiller, Ed Helms og Milu Kunis auk Ricky Gervais. En Gervais sést reyndar bregða fyrir í lokaatriði myndarinnar. The Muppets hefur fengið ótrúlegar við- tökur gagnrýnenda en samkvæmt rottentomatoes.com hafa 96 prósent gagnrýnenda gefið henni jákvæða umsögn. Þá er hún aðsóknarmesta Prúðuleikaramyndin hingað til, hefur halað inn rúmum 93 milljón- um dollara í miðasölu vestanhafs. freyrgigja@frettabladid.is ENDURKOMA PRÚÐULEIKARA EINSTAKAR BRÚÐUR Prúðuleikarar Jim Henson eru vaknaðir af værum blundi og fara á kostum í sinni fyrstu kvikmynd í tólf ár. Gamanleikarinn Jason Segel er einna helst ábyrgur fyrir því að heimsbyggðin fær nú aftur að njóta krafta þeirra Kermits og Svínku. Robert Downey Jr. er þess fullviss að þriðja myndin um vopnasölukóng- inn Tony Stark og ofurhetju-skyldur hans sem Iron Man verði jafnvel besta ofurhetjukvikmynd allra tíma. Downey lét þessi stóru orð falla í við- tali við vefsíðuna Omelete og bætti því við að hann hlakkaði mikið til að vinna með leikstjóranum Shane Black, sem hefur gert kvikmyndir á borð við Kiss Kiss Bang Bang og Leathal Weapon 4. Önnur myndin um Stark og ævin- týri hans þótti frekar mislukkuð og hlaut dræmar viðtökur gagnrýnenda eftir að fyrsta myndin hafði slegið rækilega í gegn. Og Downey viður- kennir það fúslega. „Við höfum ein- stakt tækifæri með þriðju Iron Man- myndinni og nú er lag að gera bestu myndina í seríunni. Og ef til vill bestu ofurhetju-mynd allra tíma,“ segir Downey. Hann bætir því við að lykillinn að velgengninni sé að líta til þess hvað gerði fyrstu Iron Man-myndina svona góða. „Hún var keyrð áfram af persónum myndarinnar og var mjög sérstök. Við verðum að hafa hugrekki til að fylgja þeirri leið sem var ofur- svöl. Og hafa þá trú að áhorfendur séu það svalir að þeir kunni að meta það.“ - fgg Downey ánægður með Iron Man 3 HLAKKAR TIL Robert Downey Jr. er spenntur fyrir þriðju myndinni um Tony Stark sem verður leikstýrt af Shane Black. Steven Spielberg hefur viðurkennt að kvikmyndir sínar hafi orðið dekkri eftir árásirnar á Tvíbura- turnana 2001. Spielberg hefur í gegnum árin verið þekktur fyrir frekar fjölskylduvænt bíó með E.T, Indiana Jones og Jurassic Park í broddi fylkingar. Í viðtali við breska blaðið Inde- pendent kemur fram að Spielberg hafi fundist hann verða að breyta um stíl eftir árásirnar þar sem hátt í þrjú þúsund manns féllu. „9/11 breytti mér og þessir atburðir breyttu heiminum. Myndir mínar urðu dekkri.“ Spielberg nefnir þar sérstaklega tvær myndir, annars vegar Minority Report og hins vegar War of the Worlds. Báðar skörtuðu þær Tom Cruise í aðal- hlutverkum. „Minority Report var mjög dökk sýn á fram- tíðina á meðan War of the Worlds talaði beint inn í atburðina. Hún átti ekki að gera það en útkoman varð bara þannig.“ - fgg UNDIR ÁHRIF- UM Steven Spielberg segist hafa gert dekkri kvikmyndir eftir árásirnar á Tví- buraturnana 2001. Allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi um helgina í kvikmyndahúsum borgarinnar. Krabbamein, Margaret Thatcher og Prúðuleikararnir eru viðfangs- efnin að þessu sinni. Óþarfi er að hafa fleiri orð um Prúðuleikarana en eflaust væri hægt að skrifa margar lærðar greinar um Margaret Thatcher, umdeildan forsætisráðherra Breta. Það er sjálf Meryl Streep sem leik- ur Járnfrúna og hefur leikkonan fengið einróma lof fyrir frammi- stöðu sína. Myndin sjálf er hins vegar umdeild og David Cameron, forsætisráðherra Breta, gerði hana meðal annars að umtalsefni í ræðu sinni fyrir skömmu. Honum fannst að kvikmyndagerðamennirnir hefðu mátt bíða þar til Thatcher væri öll. Myndin fær 56 prósent á rottentomatoes.com. Kvikmyndin 50/50 reynir að nálgast krabbameinsmeðferð á gamansaman hátt. Myndin segir frá Adam, sem leikinn er af Joseph Gordon-Levitt. Hann greinist með krabbamein og eru gefnar helm- ingslíkur. Myndin fylgist með ferðalagi Adams og besta vinar hans, sem Seth Rogen leikur, og baráttunni við að halda lífi, bæði andlega og líkamlega. Myndin hefur fengið afbragðsdóma en samkvæmt rottentomatoes.com eru 93 prósent gagnrýnenda ánægð með hana. - fgg Krabbamein og Margaret Thatcher Í JÁRNFRÚAR-LÍKI Meryl Streep þykir fara á kostum sem Margaret Thatcher í kvikmyndinni The Iron Lady. Gerir dekkri myndir > J-LO Í KÓKIÐ Jennifer Lopez hefur mikinn hug á því að leika í kvik- myndinni Cocaine Cowboys sem verður byggð á sam- nefndri heimildarmynd. Leonardo DiCaprio og leik- stjórinn David O.Russell hafa verið orðaðir við verkefnið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.