Fréttablaðið - 11.02.2012, Side 82
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR46
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir
má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður, stjúp-
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Harðar Sumarliðasonar
Lækjasmára 6, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sunnuhlíðar í Kópavogi fyrir góða umönnun.
Erna Hartmannsdóttir
Jenný Kamilla Harðardóttir
Oddný Guðbjörg Harðardóttir Eiríkur Hermannsson
Dagný Magnea Harðardóttir Bjarni Reykjalín
Heiða Björk Reimarsdóttir Magnús Karlsson
Kristín Helga Reimarsdóttir Sigurvin Einarsson
Linda Sólveig Reimarsdóttir Rúnar Guðjónsson
Sigurlína Anna Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulega dóttir okkar, systir,
mágkona og frænka,
Vilhelmína
Guðmundsdóttir
Sléttuvegi 7, Reykjavík,
lést á heimili sínu þann 7. feb. Jarðarför auglýst síðar.
Guðmundur Ottósson Anna Þóra Sigurþórsdóttir
Grétar Karlsson Ólöf Ólafsdóttir
og frændsystkini.
Innilegar þakkir færum við ykkur
öllum, sem sýnt hafið samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför sonar okkar,
bróður, mágs og barnabarns,
Arnþórs Inga
Andréssonar.
Sérstakar þakkir færum við Lionsklúbbi Álftaness,
Kvenfélagi Álftaness og öðrum vinum okkar fyrir
ómetanlegan stuðning 4. janúar síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll.
Andrés R. Ingólfsson Guðlaug Helga Konráðsdóttir
Ása Andrésdóttir
Auður Ásta Andrésdóttir Benjamin Beier
Guðbjörg Guðlaugsdóttir Hilmar Þór Sunnuson
Hafliði G. Guðlaugsson Elva Dröfn Adolfsdóttir
Konráð G. Guðlaugsson Eygló Árnadóttir
Ásta Haraldsdóttir Steinþór Nygaard
Ragnheiður Halldórsdóttir Ingólfur Konráðsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Torben Friðriksson
fyrrverandi ríkisbókari,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn
4. febrúar. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 15. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð, en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Rauða krossinn.
Margrét B. Þorsteinsdóttir
Steen Magnús Friðriksson Heléne Westrin
Hanna Katrín Friðriksson Ragnhildur Sverrisdóttir
Knútur Þór Friðriksson Hanna Kristín Pétursdóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim sem vottuðu okkur samúð og
hlýhug við andlát ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, systur, ömmu og
langömmu,
Sigríðar Sigurðardóttur
Hrafnistu, Laugarási.
Þökkum einnig öllu því góða starfsfólki á Hrafnistu
sem að henni kom á undanförnum árum.
Erla Ólafsdóttir Örvar Ingólfsson
Örn Ólafsson Signý Einarsdóttir
Svala Ólafsdóttir Sigurður L. Hall
Hulda Ólafsdóttir Björn P. Sveinsson
Ragnar Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, bróðir og sonur,
Dagur Benediktsson
hjúkrunarfræðingur,
Lyngmóum 16, Garðabæ,
lést þriðjudaginn 7. febrúar á deild A6 Landspítalanum
Fossvogi. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 17. febrúar kl. 13.00.
Maricris Castillo DeLuna
Emil Dagsson
María Kristveig DeLuna Dagsdóttir
María Kolbrún DeLuna Dagsdóttir
Kristjana Benediktsdóttir
Sigurveig Benediktsdóttir
Benedikt Þormóðsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls
okkar ástkæru,
Katrínar Vilhelmsdóttur
Flúðaseli 32, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við heimahlynningu á Akureyri
og í Reykjavík og öllu heilbrigðisstarfsfólki sem
annaðist hana í veikindum hennar.
Snorri B. Arnar
Inga Björk Ingólfsdóttir Vilhelm Arthúrsson
Kristjana Vilhelmsdóttir
Bryndís Gylfadóttir
Margrét Vilhelmsdóttir Haukur Eiríksson
Jóhann Bjarki Hauksson Kristján Örn Hauksson
María S. Arnar Birgir Arnar
Ester María Ragnhildardóttir
Ottó B. Arnar
Ottó Bjarki Arnar
Við færum innilegar þakkir öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Guðmundar Sveinssonar
(Billa)
netagerðarmeistara frá Siglufirði,
Seiðakvísl 3, Reykjavík.
Starfsfólk Eirarholts og hjúkrunarheimilisins Eirar fær
bestu þakkir fyrir alúð og góða umönnun.
Elísabet Kristinsdóttir
Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir Reynir Vignir
Sveinn Guðmundsson
Birna Guðmundsdóttir Kolbeinn Finnsson
barnabörn og langafabörn
Þjóðararfur og hönnun er heiti
fyrirlestrar hönnuðarins Rögnu
Fróða sem hún heldur í dag í Nor-
ræna húsinu klukkan tvö. Ragna
er hönnuður og listrænn stjórn-
andi hjá Edelkoort inc. en það
fyrirtæki er heimsþekkt fyrir
svokallað „trend forecast“.
Fyrirtækið spáir fyrir um
strauma og stefnur í hönnun og
tísku í bókum sem það gefur út
fyrir tísku og hönnunariðnaðinn.
Í fyrirlestri sínum mun Ragna
leggja áherslu á áhrif þjóðar-
menningar á strauma og stefnur
í hönnun.
Ragna Fróðadóttir nam text-
íl- og tískuhönnun í París og
Reykjavík. Eftir að hafa hald-
ið úti eigin fatahönnunarmerki,
Path of Love, í um áratug flutti
hún til New York og hóf störf hjá
alþjóðlega fyrirtækinu Edelkoort
inc. Ragna Fróðadóttir tók þátt í
Norræna tískutvíæringnum 2011
í Seattle.
Fjallar um áhrif
þjóðararfs á hönnun
Móbergur-Rafsteinn-Sæmunk-
ur nefnist sýning sem opnuð er
í Ketilhúsinu á Akureyri í dag
á vegum Sjónlistamiðstöðvar-
innar. Heitið er sótt í gamlar
nafngiftir sem listamennirn-
ir Árni Valur Axfjörð, Haf-
steinn Michael Guðmundsson og
Jón Sæmundur Auðarson hafa
dustað rykið af í tilefni sýning-
arinnar.
Listamennirnir þrír eiga það
sameiginlegt að sækja innblást-
ur til hugar og sálar mannsins,
andlegra heima, fornra leynd-
ardóma og trúarbragða. Hver
um sig hefur skapað sinn eigin
hugmyndaheim sem er fullur af
táknum og vísunum í liðna tíð en
byggður upp í sköpun og kynngi-
mögnuðu andrúmslofti fortíðar,
nútíðar og framtíðar, eins og það
er orðað í fréttatilkynningu.
Sýningin stendur til 11. mars
og er opin alla daga nema mánu-
daga frá 12-17. Aðgangur að
henni er í boði Akureyrarbæjar.
- gun
Fullt af táknum og
vísunum í liðna tíð
LISTAMENNIRNIR Árni Valur Axfjörð, Hafsteinn Michael
Guðmundsson og Jón Sæmundur Auðarson.
INNBLÁSINN AF
ÞJÓÐBÚNINGNUM
Ragna Fróða
hannaði þennan
óvenjulega þjóð-
búning nýverið.