Fréttablaðið - 11.02.2012, Blaðsíða 99
LAUGARDAGUR 11. febrúar 2012 63
Maður sem var dæmdur fyrir að
hafa setið um söngkonuna Ma d-
onnu og hótað að stinga hana með
hnífi slapp af heimili fyrir geð-
fatlaða í Kaliforníu fyrir skömmu
og er leitað af lögreglunni.
Maðurinn er 54 ára og hefur
afplánað tíu ára fangelsisdóm
fyrir að hóta Madonnu. Hann elti
hana á röndum víðs vegar um
Kaliforníu snemma á tíunda ára-
tugnum og hótaði að meiða hana
vildi hún ekki giftast honum.
Madonna bar fyrir rétti að hann
hefði klifrað yfir grindverk við
heimili hennar og hefði það vald-
ið martröðum hjá henni.
Eltihrellir
gengur laus
MADONNA Eltihrellir Madonnu gengur
laus um þessar mundir.
Netheimar hafa logað að undan-
förnu eftir að fatahönnuðurinn
Karl Lagerfeld tjáði sig um líkams-
vöxt söngkonunnar Adele í viðtali
við blaðið Metro. Adele hefur nú
svarað ummælum Karls um að hún
væri of feit og segist vera stolt af
vaxtarlagi sínu.
Í viðtali við tímaritið People
segir söngkonan að hún myndi ekki
vilja líta út eins og ein af fyrirsæt-
um fatahönnuðarins þar sem henni
þyki þær of grannar. Hún telur sig
vera fulltrúa meirihluta kvenna nú
til dags, bæði í útliti og framkomu,
en sé vissulega meðvituð um eigin
sjálfsmynd eins og flestir. Eftir að
hafa fylgst með fólki eyða lífi sínu
í að óska þess að það liti öðruvísi
út hefur Adele kosið að forðist slíkt
fólk og elska sjálfa sig eins og hún
er. Gott hjá henni!
Stolt af línunum
ELSKAR SJÁLFA SIG Adele segist ekki
vilja líta út eins og fyrirsætur Karls
Lagerfeld.
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
81
78
0
1/
12
Fyrir þig
í LyfjuD-3 vítamín er
nauðsynlegt fyrir alla
– börn, konur og karla.
Móðir Kona Meyja - Laugarvegi 86 - 571-0003 - www.mkm.is
VIÐ HÖFUM OPNAÐ NÝJA OG
GLÆSILEGA VERSLUN FYRIR
VERÐANDI OG NÝBAKAÐAR MÆÐUR.
30% AF ÖLLUM VÖRUM, AÐEINS Í DAG.
Meðgöngu- og brjóstagjafafatnaður í miklu úrvali.
Komið í dag og takið þátt í gleðinni.
Frábær opnunartilboð og léttar veitingar í boði.
Kápur - buxur - kjólar - bolir- sokkabuxur
nærföt og margt fleira.
Næg bílastæði í bílastæðahúsi!
Fósturlandsins Freyja,
Fagra Vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís!
Fósturlandsins Freyja,
Fagra Vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís!
Samband George Clooney og
kærustu hans, leikkonunar og
fyrirsætunnar Stacy Keibler,
virðist enn blómstra. Þau sáust
yfirgefa ítalska veitingastað-
inn Dan Tana í Los Angeles á
fimmtudagskvöldið, og virkuðu
þau afslöppuð og hamingjusöm.
Slúðurdálkar vestanhafs hafa
mikið spáð í sambandið og hvort
það sé raunverulegt eður ei. Marg-
ir telja það vera sett á svið í þeim
tilgangi að auka líkur Clooney á
Óskarsverðlaununum eftirsóttu
nú í lok mánaðar og að það muni
ekki endast nema rétt fram yfir
Óskarsverðlaunahátíðina.
Clooney er sagður hafa sagt við
vin sinn að Keibler væri allt það
sem maður gæti óskað sér í konu,
en að hann væri þó tilbúinn til að
halda áfram og leita á ný mið.
Bara plat?
ENN SAMAN Því er haldið fram að sam-
band George Clooney og Stacy Keibler
sé sett á svið.