Fréttablaðið - 11.02.2012, Blaðsíða 12
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR12
SAMFÉLAGSMÁL Anja Cordes, lög-
fræðingur á sviði fjölskyldu-
réttar í Danmörku, segir í við-
tali við Fréttablaðið að frumvarp
Ögmundar Jónassonar innanríkis-
ráðherra um breytingar á barna-
lögum sé úr takti við tímann. „Það
er réttur barnsins að annað for-
eldrið geti ekki sparkað hinu út í
kuldann.“
Samkvæmt frumvarpinu á ekki
að heimila dómurum að skera úr
um sameiginlega forsjá foreldra
með barni með dómi. Ráðherrann
hefur lýst því yfir að hann hafi
tekið þessa leið út úr frumvarp-
inu með hliðsjón af því sem hann
hefur talið vera slæma reynslu hjá
öðrum norrænum ríkjum. Hefur
hann meðal annars vísað í danska
rannsókn.
Það er mat innanríkisráðherra
að betra sé fyrir barn að reynt sé
að ná samkomulagi og sátt í stað
þess að lögmenn beggja aðila reyni
að sýna fram á vankanta hins for-
eldrisins frammi fyrir dómara.
Cordes flutti í gær erindi á ráð-
stefnu Félags um foreldrajafn-
rétti sem haldin var vegna breyt-
inga á barnalögunum. Hún segir
viðamikla vísindalega rannsókn í
Danmörku hafa leitt í ljós að sam-
vinna foreldra verði ekki betri
vegna sameiginlegrar forsjár. „En
það hefur verið hægt að sjá hverjir
geta unnið saman og hverjir ekki.
Þeir sem geta ekki unnið saman
eru ekki festir í sameiginlega
forsjá. Það hefur bara verið í helm-
ingi tilfellanna sem komið hafa til
dómstóla sem dæmd hefur verið
sameiginleg forsjá. Ég er ekki
hrædd um að dómarar sjái ekki
hverjir geta ekki unnið saman.
Mín reynsla er jafnframt sú að
það sé jákvætt að annað foreldr-
ið geti ekki verið visst um að það
fái eitt forsjá með barninu. Þetta
hefur opnað augu sumra foreldra
fyrir því að barnið er á ábyrgð
þeirra beggja. Mér finnst hafa
orðið breyting á viðhorfi fólks til
sameiginlegrar forsjár.“
Að sögn lögfræðingsins var nú í
vikunni gerð breyting á barnalög-
unum frá 2007 í Danmörku. „Dóm-
arar geta enn fyrirskipað sam-
eiginlega forsjá. Hingað til hefur
verið erfitt að binda enda á slíkt
fyrirkomulag. Ástæðurnar þurftu
að vera alvarlegar. Samkvæmt
breytingunni þarf nú hitt foreldrið
sem er andvígt að bundinn sé endi
á úrskurðaða sameiginlega forsjá
að geta sýnt fram á að samvinnan
hafi áður verið góð, að barnið hafi
það gott og að gott samband sé á
milli heimilanna. Það getur nefni-
lega verið að foreldri vilji binda
enda á sameiginlega forsjá af
öðrum ástæðum en vegna velferð-
ar barnsins. Ástæðan getur verið
nýr kærasti eða rifrildi um fjár-
mál svo dæmi sé tekið. Mér finnst
breytingin til góðs. Það er betra að
þurfa að sýna fram á jákvæð atriði
en neikvæð.“ ibs@frettabladid.is
Frumvarp
um barnalög
gamaldags
Danskur lögfræðingur segir dómara geta séð hvort
foreldrar geti unnið saman í forsjármálum. Jákvætt
að annað foreldrið geti ekki verið visst um að fá
forsjá. Innanríkisráðherra vill ekki að dómarar fái
heimild til að fyrirskipa sameiginlega forsjá.
RÁÐSTEFNA UM FORELDRAJAFNRÉTTI Anja Cordes, danskur lögfræðingur, segir það
rétt barnsins að annað foreldrið geti ekki sparkað hinu út í kuldann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMKEPPNISMÁL Íslensk stjórnvöld
telja að nýtt frumvarp um starf-
semi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV)
muni innleiða ellefu svokallaðar
„viðeigandi ráðstafanir“ varðandi
fjárhags- og lagaumhverfi RÚV,
verði það að lögum.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
fór fram á það í lok mars 2011 að
gripið yrði til ráðstafana og hafa
íslensk stjórnvöld frest til 31. mars
næstkomandi til að ljúka innleið-
ingu þeirra. Gangi það ekki eftir
mun ESA undirbúa málshöfðun.
Ákvörðun ESA var afsprengi
áralangra samskipta stofnunar-
innar og íslenskra stjórnvalda um
tilhögun ríkisaðstoðar til Ríkisút-
varpsins. Hún byggði á leiðbein-
andi reglum ESA um tilhögun
ríkisstyrkja til útvarpsþjónustu í
almannaþágu sem fela í sér skýr-
ari skil á milli almannaþjónustu-
útvarps og þess hluta starfsemi
RÚV sem skilgreindur er sem
samkeppnisrekstur.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að samkvæmt frumvarps-
drögunum er lagt til að RÚV muni
stofna sérstakt dótturfélag utan
um alla samkeppnisstarfsemi fyr-
irtækisins, þar á meðal sölu á aug-
lýsingum. Rekstur þess félags mun
lúta eftirliti Samkeppniseftirlits-
ins (SE), en RÚV gerir það ekki.
Auk þess er lagt til að hlutfall
auglýsinga í dagskrá RÚV fari
ekki yfir 10 mínútur á klukkutíma,
bannað verður að slíta í sundur
dagskrárliði til að koma að aug-
lýsingum, vöruinnsetning verður
óheimil í innlendri dagskrárgerð
og RÚV verður gert að birta gjald-
skrá fyrir auglýsingar á vefnum
þar sem einnig verða tilgreind
sértilboð og önnur afsláttarkjör.
Allar þessar breytingar eru í takt
við kröfur ESA. - þsj
Ný lög um RÚV innleiða „viðeigandi ráðstafanir“ sem ESA fór fram á:
Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok
ÚTVARPSSTJÓRI Reiknað er með að
auglýsingatekjur RÚV dragist saman um
allt að 200 milljónir króna á ári verði
frumvarpið að lögum. Páll Magnússon
er útvarpsstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KULDARNIR Í KÆNUGARÐI Í Kiev,
höfuðborg Úkraínu, bar þessi heimilis-
lausa kona poka sína, vel dúðuð í
vetrarhörkunum sem hafa verið þar
undanfarið. NORDICPHOTOS/AFP
RÚSSLAND Rússneskum vísinda-
mönnum hefur tekist að bora leið
niður í stórt stöðuvatn sem hefur
verið innilokað undir Suður-
skautsísnum í milljónir ára.
Vatnið, sem nefnt er Vostok-
vatn í höfuðið á rússnesku Vostok-
rannsóknarstöðinni, er talið vera
nærri 16 þúsund ferkílómetrar að
flatarmáli, eða meira en tvöfalt
stærra að flatarmáli en Vatnajök-
ull hér á Íslandi.
Yfir vatninu er nærri fjögurra
kílómetra þykk íshella. Borkjarn-
ar úr íshellunni geta varpað ljósi
á loftslagssögu síðustu 400 þús-
und ára og rannsóknir á vatn-
inu sjálfu, sem er ferskt vatn en
ekki saltur sjór, geta leitt í ljós að
þar leynist lífverur sem mönn-
um hefur til þessa verið ókunn-
ugt um.
Talið er að stöðuvatnið hafi
verið þarna í 14 milljónir ára en
að vatnið, sem nú er í þessu stöðu-
vatni, sé um milljón ára gamalt.
Vostok-vatnið er stærst af um
140 stöðuvötnum sem vitað er um
undir suðurskautsísnum. Í haust
ætla breskir vísindamenn að hefja
boranir niður í Ellsworth-vatn og í
janúar á næsta ári vonast Banda-
ríkjamenn til að geta hafið boran-
ir niður í Whillans-ísfljótið, sem
er stórt kerfi fljóta undir ísnum.
- gb
Bora niður að stóru stöðuvatni á Suðurskautsísnum:
Lokaður heimur opnast
SUÐURSKAUTIÐ Fjórtán milljón ára
gamalt stöðuvatn leynist djúpt undir
íshellunni. NORDICPHOTOS/AFP
Mér finnst hafa orðið
breyting á viðhorfi
fólks til sameiginlegrar forsjár.
ANJA CORDES
LÖGFRÆÐINGUR
Í SMÁRALIND Á ýmsu gekk hjá
íslenskum viðbragðsaðilum í fyrra, en
ljósmyndasýningin Útkall 2011 stendur
nú yfir í Smáralind. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNING Ljósmyndasýningin
Útkall 2011 hefur opnað í Smára-
lind, en þar má sjá úrval áhuga-
verðra ljósmynda sem teknar
hafa verið af störfum hinna ýmsu
viðbragðsaðila á síðasta ári, til
dæmis lögreglu, slökkviliðs,
björgunarsveita og Landhelgis-
gæslu.
Sýningin er í tengslum við 112
daginn sem haldinn er um allt
land í dag. Myndirnar á sýning-
unni eru eftir bæði atvinnu- og
áhugaljósmyndara.
Sýningin stendur til og með 17.
febrúar. - þj
112-dagurinn haldinn í dag:
Sýna myndir
frá útköllum