Fréttablaðið - 11.02.2012, Qupperneq 102
11. febrúar 2012 LAUGARDAGUR66
sport@frettabladid.is
KEFLAVÍK ætlar ekki að áfrýja niðurstöðu aga- og úrskurðarnefnd KKÍ um að úrslit leiks Njarðvíkur og Keflavíkur í 8-liða
úrslitum Powerade-bikars kvenna í körfubolta skuli standa en Keflavík kærði framkvæmd leiksins sem Njarðvík vann í framlengingu.
Mótanefnd KKÍ hefur því sett undanúrslitaleikina á mánudagskvöldið klukkan 19.15. Njarðvík tekur þá á móti Haukum og Stjarnan
sækir Snæfell heim. Þetta tryggir það jafnframt að bikaúrslitaleikur kvenna fer fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 18. febrúar.
IE-deild karla:
KR-Stjarnan 89-87
KR: Joshua Brown 21, Robert Ferguson 15, Finnur
Atli Magnusson 15, Martin Hermannsson 13,
Hreggviður Magnússon 8, Emil Þór Jóhannsson 6,
Dejan Sencanski 5, Skarphéðinn Freyr Ingason 4,
Ágúst Angantýsson 2.
Stjarnan: Justin Shouse 28, Keith Cothran 15/10
stoðsendingar, Renato Lindmets 14, Marvin
Valdimarsson 12, Jovan Zdravevski 9, Fannar Freyr
Helgason 5, Guðjón Lárusson 4.
Haukar-Keflavík 73-71
Haukar: Emil Barja 23, Hayward Fain 13/10
frák., Christopher Smith 12/19 frák/6 varin, Alik
Joseph-Pauline 11, Örn Sigurðarson 6, Steinar
Aronsson 5, Davíð Páll Hermannsson 2, Helgi
Björn Einarsson 1.
Keflavík: Jarryd Cole 22, Magnús Þór Gunnarsson
14, Kristoffer Douse 11, Charles Michael Parker
9, Valur Orri Valsson 6, Almar Guðbrandsson 4,
Halldór Örn Halldórsson 3, Ragnar Albertsson 2.
STAÐAN:
Grindavík 15 14 1 1341-1160 28
KR 15 10 5 1321-1277 20
Stjarnan 15 10 5 1335-1248 20
Keflavík 15 10 5 1362-1250 20
Snæfell 15 9 6 1434-1336 18
Þór Þ. 15 9 6 1277-1216 18
Fjölnir 15 7 8 1298-1348 14
ÍR 15 6 9 1294-1367 12
Tindastóll 15 6 9 1274-1351 12
Njarðvík 15 6 9 1257-1284 12
Haukar 15 3 12 1150-1263 6
Valur 15 0 15 1133-1376 0
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Þeir gerast ekki stærri
leikirnir í enska boltanum en leikir
Manchester United og Liverpool,
tveggja sigursælustu félaganna í
sögu enskrar knattspyrnu. Fyrri
tvær viðureignir liðanna í vetur
hafa aðeins ýtt undir spennuna og
eftirvæntinguna fyrir leikinn á
Old Trafford í dag, ekki síst vegna
málsins sem kom upp í deildarleik
liðanna á Anfield í októbermánuði.
Patrice Evra, bakvörður Man-
chester United, sakaði Luis Suárez,
framherja Liverpool, um kynþátta-
níð eftir leikinn og Úrúgvæmað-
urinn var síðan dæmdur í átta
leikja bann af enska knattspyrnu-
sambandinu. Málið fór strax hátt
í öllum fjölmiðlum og hefur ekki
þagnað síðan. Í raun má segja að
menn hafi í raun beðið eftir því í
119 daga að þeir Suárez og Evra
hittust á ný og í dag er komið að
því.
Sir Alex Ferguson, stjóri Man-
chester United, og Kenny Dalglish,
stjóri Liverpool, hafa undanfarna
fjóra mánuði þurft að svara ótelj-
andi spurningum um mál þeirra
Suárez og Evra.
„Allir þeir sem koma að þessum
leik með einum eða öðrum hætti,
þar á meðal fjölmiðlar, stuðnings-
menn og liðin sjálf, bera þá ábyrgð
að þessa leiks verði aðeins minnst
fyrir frábæran fótbolta en ekki
einhvers annars,“ sagði Kenny
Dalglish og bætti við:
„Ég veit að allir vilja tala um
Luis Suárez en hann er búinn að
taka út sitt bann og er kominn
aftur til baka. Það er kominn tími
til að við komumst yfir þetta mál
og höldum áfram,“ sagði Dalglish.
„Við ætlum bara að halda áfram
að sinna okkar starfi. Við höfum
haldið okkar virðingu í gegnum
allt þetta mál og ætlum bara að
einbeita okkur að leiknum. Liver-
pool-menn hafa tjáð sig mikið um
málið, en við höfum haldið okkur
til hlés og það er að mínu mati
rétta leiðin í svona málum,“ sagði
Sir Alex Ferguson.
Flestir knattspyrnuáhugamenn
munu þó örugglega bíða spenntast-
ir eftir því hvort þeir Luis Suárez
og Patrice Evra heilsist fyrir leik
og hvernig barátta þeirra á vellin-
um eigi eftir að þróast.
Það er líka spurning hvort fleiri
hljóðnemar eða fleiri myndavélar
verði á vellinum fari svo að það
sjóði aftur upp á milli þeirra. Eitt
er nokkuð öruggt að Suárez mun
draga sig út til hægri og sækja
ítrekað á Patrice Evra því annars
væri hann ekki að spila sinn leik.
„Ég hef talað við Luis og ég veit
að hann mun taka í höndina á Pat-
rice Evra og öðrum leikmönnum
Manchester United fyrir leikinn,“
sagði Dalglish og Ferguson hefur
ekki miklar áhyggjur af einu mest
umtalaða handabandi síðari tíma.
„Ég hef ekki einu sinni hugsað
um það og það er ekkert til
umræðu og hefur aldrei verið til
umfjöllunar innan okkar raða.
Við erum bara að einbeita okkur
að þessum fótboltaleik,“ sagði Sir
Alex Ferguson.
Man. Utd. hefur unnið 7 af 8 síð-
ustu leikjum sínum í deild og bikar
á móti Liverpool á Old Trafford
og fær hér kjörið tækifæri til að
hefna fyrir bikartapið á Anfield í
síðasta mánuði. Það má búast við
því að annað liðið fagni sigri í dag
því jafntefli liðanna í október var
aðeins annað af tveimur jafntefl-
um liðanna í síðustu 23 deildar-
leikjum.
Leikur Manchester United og
Liverpool hefst klukkan 12.45 í
dag. Luis Suárez og Patrice Evra
eru bara tveir af 22 frábærum fót-
boltamönnum á vellinum og allir
þeirra vita fátt verra en að tapa á
móti erkifjendunum.
Það verður því barist fyrir
hverjum bolta í 90 mínútur á Old
Trafford. Stigin þrjú eru líka lið-
unum afar mikilvæg, United á í
titilbaráttu við City og Liverpool-
menn lifa enn í voninni um sæti í
Meistaradeildinni. Sigur í þessum
leik væri stórt skref í átt að því að
ná þeim markmiðum.
ooj@frettbladid.is
SUÁREZ OG EVRA HITTAST Á NÝ
Stórleikur helgarinnar í enska boltanum er viðureign erkifjendanna Manchester United og Liverpool á Old
Trafford í hádeginu í dag en allir bíða spenntir að sjá hvað gerist á milli þeirra Luis Suárez og Patrice Evra.
FYRIR 119 DÖGUM Patrice Evra og Luis Suárez í leik Manchester United og Liverpool
á Anfield í október. AFP
Sunnudagurinn 12. febrúar
15.45 SchenkerhöllinniHaukar FH–
Mánudagurinn 13. febrúar
19.30 DigranesiHK Fram–
HANDBOLTI 2012
UNDANÚRSLITFíton / SÍA
EIMSKIPSBIKAR
KARLA
FÓTBOLTI „Ég verð að sitja uppi
með það að ég hélt trúnaði við
Ólaf og hélt hann vera rétta
manninn í fjögur ár. Stigin töluðu
svo sínu máli,“ sagði Geir Þor-
steinsson, formaður KSÍ, í við-
tali í útvarpsþættinum Boltinn á
X-inu 977 í gær en hann var þar í
ítarlegu viðtali. Þar svarar hann
því hvort rétt hafi verið að veðja
á Ólaf Jóhannesson sem lands-
liðsþjálfara. Geir sér ekki eftir
því.
„Nei, ég sé ekki eftir því. Ég
lít ekki á þessa ráðningu sem
mistök. Ég sé ekki eftir þessum
tíma.“
Í viðtalinu var farið um víðan
völl og Geir segist meðal annars
hafa kosið Sepp Blatter með góðri
samvisku.
Viðtalið við Geir er aðgengilegt
í heild sinni inni á Vísir.is.
Geir Þorsteinsson:
Sé ekki eftir að
hafa ráðið Ólaf
GEIR OG ÓLAFUR Stóðu þétt saman er
Ólafur stýrði landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI KR vann mikilvægan
tveggja stiga sigur 89-87 á Stjörn-
unni á heimavelli sínum í gær-
kvöldi þar sem Joshua Brown
tryggði sigurinn með tveimur
vítum þegar tvær sekúndur voru
eftir af leiknum.
KR var lengst af yfir í leiknum
sem jafnaðist í fjórða leikhluta.
Allt virtist benda til þess að leikur-
inn yrði framlengdur þar til Keith
Cothran braut á Brown í þriggja
stiga skoti rétt fyrir leikslok.
„Við virðumst bara spila spenn-
andi leiki núna. Þetta spilaðist ekki
eins og við ætluðum okkur. Mér
fannst við hafa alla burði til að
vera mun meira yfir í fyrri hálf-
leik. Glötuð víti og glataðir bolt-
ar gegnum gangandi allan leikinn
valda okkur vandræðum,“ sagði
Hrafn Kristjánsson þjálfari KR í
leikslok.
„Við fáum umdeild víti í lokin en
við gerum vel í að halda boltanum
þangað til í lokin og taka ákvörð-
un,“ sagði Hrafn sem tók leikhlé
fyrir vítaskot Brown þar sem lagt
var upp með að hann klikkaði úr
þriðja vítinu svo Stjarnan gæti
ekki tekið leikhlé.
Í hinum leik gærkvöldsins komu
Haukar á óvart með því að leggja
Keflavík eftir framlengingu. - gmi
KR vann sigur á Stjörnunni í háspennuleik:
Dýrt brot hjá Cothran
BARÁTTA Það var hart barist í DHL-höllinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON