Fréttablaðið - 11.02.2012, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 11. febrúar 2012 23
Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?
Kannski er þetta frekar ein-
hvern veginn svona: Að gifta sig
er yfirleitt hamingja en að skilja
er alltaf erfitt. Hjónaskilnaðir
eru ekki allir óhamingjusamir þó
þeir séu alltaf erfiðir. Oft þýðir
skilnaður betra líf, betri líðan
fyrir flest eða öll í umhverfi pars-
ins sem skilur.
Börn sem eiga fráskilda for-
eldra eru ekki öll óhamingjusöm.
Ætli þeim líði ekki jafn misjafn-
lega og börnum giftra foreldra
eða foreldra í sambúð? Rannsókn-
ir sem gerðar hafa verið á líðan
barna sem eiga fráskilda foreldra
hafa sýnt að börnunum líður yfir-
leitt mun betur eftir skilnaðinn
en með foreldrum sem ekki líður
vel saman. Það segir sig reyndar
sjálft.
Að þessu sögðu verð ég að segja
að það að tala um að börn komi
frá „brotnu heimili“ eða „brot-
inni fjölskyldu“ vegna þess að
foreldrar þeirra hafa skilið er í
besta falli virðingarleysi og allt-
af niðrandi.
Við vitum að það sem brotnar
er sjaldan hægt að líma, ef það
gengur þá sjást sprungurnar
yfirleitt vel og hluturinn verður
aldrei jafn góður og fallegur og
áður. Er ekki svolítið sérkennilegt
að líkja heimili og fjölskyldum
nær helmings allra barna, í það
minnsta, við brotinn hlut?
Það sem er brotið er ekki gott.
Og ef við segjum að barn komi frá
brotnu heimili eða brotnum bak-
grunni þá gerum við lítið úr fyrstu
árum þessarar manneskju. Við
dæmum auk þess með því fram-
tíðarmöguleika barnsins.
Ég sting upp á því að við, árið
2012, hættum að tala um brotin
heimili og setjum ekkert í staðinn.
Barn getur átt fráskilda foreldra
en það þarf ekki að þýða að heim-
ili þess hafi brotnað. Það beygðist
sjálfsagt eitthvað og beyglaðist
kannski en þannig er lífið. Svolítið
beyglað og aldrei fullkomið. Ég tel
að virðingarverðast sé að hætta að
alhæfa og tala frekar um að for-
eldrar hafi skilið en ekki leggja
meiri skilning í það en nauðsyn-
legt er. Skilnaður þýðir ekki enda-
lok heimsins. Skilnaður getur jafn-
vel þýtt nýtt og betra líf.
Að gifta sig er yfirleitt ham-
ingja en að skilja er alltaf erfitt.
Við erum alin upp við ævintýra-
leg endalok, eigum að lifa ham-
ingjusöm til æviloka en ekki bara
í 12 ár, 20 ár eða 3 ár, skilja þá og
gifta okkur kannski aftur síðar.
Eða ekki.
Í prestsþjónustu minni hitti
ég mikið af fólki sem stendur
frammi fyrir skilnaði. Algengt
er að fólk komi seint í ráðgjöf og
lítið sé hægt að gera á þeim tíma
til þess að laga sambandið/hjóna-
bandið. Þegar svo er byggir ráð-
gjöfin að miklu leyti á því að leið-
beina fólki varðandi skilnaðinn,
jafnt um praktísk atriði sem og
úrvinnslu tilfinninga.
Merkilega lítið hefur verið
rannsakað hvernig fólki sem
gengur í gegnum hjónaskiln-
að gengur að vinna úr tilfinn-
ingunum, sorginni sem honum
fylgir. Sorgin sem fólk finnur
fyrir er ekki ósvipuð þeirri sem
fólk gengur í gegnum þegar það
missir maka sem á við hvort sem
viðkomandi vildi skilja eða ekki.
Sorgin getur síðan verið misjafn-
lega djúp.
Prestar og djáknar hafa mikla
þjálfun í að vinna með fólki í
sorg og sorgarhópar í kirkjum
hafa reynst vel í kjölfar ástvina-
missis. Nú eru einhverjir söfn-
uðir farnir að nýta sér þessa
reynslu við úrvinnslu tilfinn-
inga er tengjast hjónaskilnuð-
um. Sjálfstyrkingarhópar fyrir
fólk sem hefur skilið hafa reynst
vel. Þessi hópur er stór og lítið
hefur verið í boði fyrir hann. Það
er engin útför eða erfidrykkja
eftir hjónaskilnað. Fólk sendir
hinum fráskildu hvorki samúðar-
kort né blóm. Þrátt fyrir að nú sé
árið 2012 erum við enn tilbúin til
þess að líta á hjónaskilnaði sem
okkar verstu mistök og þegjum
þá reynslu helst í hel. Við áttum
jú að lifa saman hamingjusöm til
æviloka.
Brotin fjölskylda eða betra líf?
Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og
draga úr útgjöldum hafa falist í
fækkun skóla, sameiningu skóla,
niðurskurði til skólamála, mynd-
un nýrra skóla með samfléttingu
á grunn-, leik- og tónskólum og
fækkun starfsfólks í grunnskól-
um landsins. Skólarnir hafa þurft
að taka á sig stærstan hluta þess
niðurskurðar sem sveitarfélögin
hafa stýrt. Nú er komið að sárs-
aukamörkum, sveitarfélögum
landsins mun verða ljóst að skól-
arnir geta naumast starfað með
þann litla stuðning sem þau fá frá
sveitarfélögunum.
Forsenda skólastarfs verður og
er alltaf starfsfólkið og á því hvíl-
ir mikil ábyrgð nú þegar sveitar-
félögin hafa svelt skólana nær
viðstöðulaust í fjögur ár. Fjár-
magn til skólamála þarf að aukast
verulega svo skólarnir nái að upp-
fylla skyldur sínar samkvæmt
lögum og reglugerðum og kröfum
samfélagsins í dag til skólanna.
Smám saman mun skólastarf-
ið og starfsfólk skólanna snúa
vörn í sókn. Reiði fólksins mun
ná hámarki vegna þess ömurlega
hugarfars sem sveitarfélög hafa
gagnvart skólum, nemendum og
menntun þeirra.
Von skóla í dag er tormelt því
sveitarfélögin eru ekki hætt nið-
urskurði, þau finna sífellt nýjar
og sársaukafyllri leiðir til að ná
fram sætum hagnaði í fjárhags-
uppgjöri mánaðarins.
Nú geta skólarnir ekki tekið á
sig meiri niðurskurð og sveitarfé-
lög landsins verða að finna leiðir
til að fjármagna skólastarfið og
smám saman styrkja menntun í
samfélaginu.
Ýmislegt neikvætt hefur verið
sagt um ungmenni okkar og
æsku landsins. Þessi umræða
hefur oftar en ekki komið frá
menntafólki sem sakar skólana
um ófaglegt starf, getuleysi og
vanhæft starfsfólk. Skólafólk
er orðið langþreytt á fjandskap
háskólamenntaðs fólks á störfum
þeirra og skólastarfi í landinu.
Umræða um skólana í landinu
þarf að vera uppbyggileg og for-
dómalaus. Menntað háskólafólk á
ekki að leyfa sér niðurrif grunn-
skólastarfs með orðum sínum og
athöfnum vegna sinnuleysis sveit-
arfélaga. Umræðan nú í dag þarf
að beinast að hlutverki og ábyrgð
sveitarfélaga gagnvart mennt-
un barnanna okkar. Sveitarfélög
taka ómarkviss og vanhugsuð
niðurskurðarskref undir gáleys-
islegu skjalli menntamannanna
og háskólasamfélagsins.
Margt verður að breytast og
það verður að setja fjármagn í
menntun barnanna okkar. Það
verður að gera skólana mikil-
væga og sjá til þess að þeir geti
uppfyllt kröfur nútímasamfélags
um menntun.
Menntun má tæta
Samfélagsmál
Guðrún
Karlsdóttir
prestur
Menntamál
Brynja Dís
Björnsdóttir
móðir barns í
grunnskóla
.000!
Vertu í hópi þeirra bestu. Hönnun Ford er
gegnheil og tekur mið af þér og þínum,
allri fjölskyldunni - stórum sem smáum. Spyrðu
um fyrirmyndarþjónustu Brimborgar. Nýttu þér
Þorratilboðið: seldu okkur gamla bílinn þinn og
kauptu Ford Kuga Titanium S AWD.
Veldu Ford. Komdu í Brimborg í dag.
skoðaðu
Þorratilboðið
Opið 12-16