Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.03.2012, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 02.03.2012, Qupperneq 1
veðrið í dag DÓMSMÁL Engin stór eða fordæmis- gefandi mál hafa verið á dagskrá Hæstaréttar frá 13. febrúar og verða ekki fyrr en dómur hefur verið kveðinn upp í Landsdómi í máli Geirs H. Haarde. Það gæti tekið tvo mánuði. Ástæðan er sú að lögum sam- kvæmt skulu fimm reynslumestu dómarar Hæstaréttar dæma slík mál. Fjórir þeirra eru hins vegar uppteknir við störf sín í Lands- dómi. Þangað til mun Hæstirétt- ur einungis taka til meðferðar mál sem þrír dómarar geta dæmt. Þetta staðfestir Þorsteinn A. Jóns- son, skrifstofustjóri Hæstaréttar. Alþingi samþykkti í gær með 33 atkvæðum gegn 27 að vísa frá tillögu Bjarna Benediktsson- ar um að aft- urkalla ákær- una á hendur Geir. Þar með varð ljóst að aðalmeðferð málsins hefst á mánudaginn kemur. Áætlað er að hún muni taka tvær vikur. Reynt verður að ljúka vitna- leiðslum þriðjudaginn 13. mars, taka þá einn dag í frí og ljúka aðalmeðferðinni með tveggja daga málflutningi saksóknara og verjanda á fimmtudegi og föstu- degi. Dómarar munu svo reyna að dæma í málinu á fjórum vikum en hafa þó til þess sex vikur hið mesta. Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að flest vitnin í landsdóms- málinu sem búsett eru erlendis muni koma til landsins til að verða við réttarhöldin. Meðal þeirra eru ráðherrarn- ir fyrrverandi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Árni M. Mathiesen og Kaupþingsstjórarnir Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sig- urðsson. - sh / sjá síður 6 og 8 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011 Föstudagur skoðun 18 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Lífið 2. mars 2012 53. tölublað 12. árgangur Gengislánin tímafrek Birna Einarsdóttir banka- stjóri segir útlendinga hafa sýnt Íslandsbanka áhuga. föstudagsviðtalið 16 Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 Þ essi uppskrift e j Eyvindur Karlsson, leikstjóri og grínari, eldar indverskan lambakjötsrétt:Veit fátt betra en að dunda sér í eldhúsinu Verk úr norrænni goðafræði, dulúðugt lands- lag og spegilmynd samtímans eru meðal yrkis- efna á sýningu listmálarans Einars Hákonarsonar sem verður opnuð í Norræna húsinu á morgun. Einar hefur haldið yfir 40 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga víða um lönd. BORÐAPANT HUMARSALAT & HVÍTVÍN 2.250 kr.Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó, sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum ásamt hvítvínsglasi. BLÁSKEL & HVÍTVÍN 2.950 kr.Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt hvítvínsglasi. FERSKT & FREISTANDISPENNANDI SJÁVARRÉTTATILBOÐ 2. MARS 2012 SPYRILL GETTU BETUR SETUR SÉR REGLULEGA NÝ MARKMIÐ FLOTTAR Á FRUMSÝNINGU BARN Í VÆNDUM DRESSIN Á LÚÐRINUM NÝTT HAGKAUPSBLAÐ KOMIÐ ÚT Á HAGKAUP.IS Tax free Föstudag, laugardag og sunnudag AFNEMUM VIRÐISAUKASKATT AF ÖLLUM VÖRUM* *Afslátturinn er á kostnað Europris Lestu bókina! Heildarlisti 15.02.12–21.02.12 LÖGREGLUMÁL Stjórn Fjármálaeftirlitsins leysti Gunnar Þ. Andersen forstjóra frá störfum í gær og kærði hann til lögreglu fyrir meint brot í starfi. Kærumálið varðar upplýsingar um fjármál Guðlaugs Þ. Þórðarsonar alþingis- manns, sem Gunnari er gert að sök að hafa aflað með ólögmætum hætti. Ástæða uppsagn- arinnar er samkvæmt stjórn FME vegna fortíð- ar hans sem framkvæmdastjóra Landsbankans en ekki kærumálsins. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum veitti Gunnar tveimur aflandsfélögum forstöðu á vegum Landsbankans þegar hann starfaði þar sem framkvæmdastjóri. Það er mat stjórnar FME að hann hafi tekið þátt í því að „veita FME villandi eða beinlínis rangar upplýsing- ar um tilvist félaganna“, eins og segir í yfir- lýsingu stjórnar frá því í gær og er uppgefin ástæða brottrekstrarins. Lögmaður Gunnars, Skúli Bjarnason, sendi tilkynningu til fjölmiðla í gær þar sem Gunn- ar lýsir sig „fullkomlega saklausan“ af öllum sakar giftum frá hendi FME, gömlum sem nýjum. Gunnar segir í tilkynningunni að vegið sé að sér með ómaklegum hætti og lyktir máls- ins ráðist fyrir dómstólum. Fréttablaðið fékk það staðfest í gær að kæru- málið varðaði gögn um fjármál Guðlaugs Þórs. Starfsmanni Landsbankans, sem mun hafa aflað gagnanna fyrir Gunnar, var sagt upp störfum á miðvikudag. Þegar Fréttablaðið hafði samband við Guðlaug í gær vegna málsins hafði hann ekki upplýsing- ar um hvaða gögn er að ræða. „Ég viðurkenni að mér er brugðið. Þrátt fyrir að maður hafi ekkert að fela þá er það vond tilfinning að það sé njósnað um mann,“ segir Guðlaugur. „Maður veltir því fyrir sér hvaða hugur liggur hér að baki, og þetta er grafalvarlegt. Síðan hlýtur maður að velta fyrir sér hvort þetta mál núna sé einstakt eða hvort þetta sé stundað víðar. Ég vona að þetta sé einangrað tilfelli en það er jafnframt nauðsynlegt að það sé kannað,“ segir Guðlaugur. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, sagði á blaðamannafundi í gær að upp- lýsingum um meint brot Gunnars hafi verið komið til hans persónulega á miðvikudag. Aðalsteinn færði jafnframt Gunnari uppsagn- arbréfið persónulega á heimili hans áður en fundur með starfsfólki hófst hjá FME í gær- morgun. - shá, þsj / sjá síðu 12 Gunnar rekinn og kærður Stjórn FME kærði Gunnar Þ. Andersen til lögreglu í gær fyrir meint brot í starfi. Honum var sagt upp störfum í gær. Gunnar lýsir sig saklausan af öllum sakargiftum. Kærumálið varðar fjármál alþingismanns. VÍÐA HVASST Í dag verða suðaustan 10-20 m/s hvassast V-til. Víða rigning einkum S-lands en úrkomulítið NA-til. Hiti 2-8 stig. VEÐUR 4 6 6 6 6 5 Síðan hlýtur maður að velta fyrir sér hvort þetta mál núna sé ein- stakt eða hvort þetta sé stundað víðar. Ég vona að þetta sé einangrað tilfelli en það er jafnframt nauðsynlegt að það sé kannað. GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON ALÞINGISMAÐUR Dóp og ofbeldi Svartur á leik fær fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda Fréttablaðsins. bíó 36 Betra skipulag Emil Hallfreðsson er hrifinn af vinnubrögðum landsliðsþjálfarans, Lars Lagerbäck. sport 38 FÓLK Elín Hirst segist geta hugsað sér framboð til forseta Íslands. „Það eru hins vegar ýmis ljón í veginum,“ segir hún og kveður það fyrsta vera sitj- andi forseta. „Ætlar hann að gefa kost á sér í fimmta sinn eður ei?” „Ég vil færa forsetaembætt- ið nær fólkinu í landinu, þar sem forsetinn yrði fremstur á meðal jafningja,“ segir Elín í við- tali við Lífið sem fylgir Frétta- blaðinu í dag. Elín segist hins vegar enga hugmynd hafa um það hvort hún njóti stuðnings til starfans. „En það er að sjálfsögðu lykilatriði. Ég tel því minni líkur en meiri að ég verði næsti húsráðandi á Bessastöðum.“ Sjá Lífið í miðju blaðsins Elín Hirst horfir til Bessastaða: Ýmis ljón í vegi forsetaframboðs ELÍN HIRST Hæstiréttur geymir öll fordæmisgefandi mál þar til landsdómsmálinu lýkur: Stór mál bíða vegna Landsdóms UPPHAF MOTTUMARS Lögreglumenn og slökkviliðsmenn áttust við í æsispennandi viðureign í sundknattleik í Ásvallalaug í Hafnarfirði í gær og mörkuðu þannig upphaf krabbameinsátaksins Mottumars þetta árið. Leikurinn þótti frábær skemmtun og endaði með naumum 4-3 sigri lögreglumanna í blálokin. Í fyrra mætt- ust liðin t einnig af sama tilefni og kepptu þá íshokkí. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GEIR H. HAARDE
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.