Fréttablaðið - 02.03.2012, Qupperneq 2
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR2
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
SÝRLAND, AP Mannréttindaráð Sameinuðu þjóð-
anna fordæmir útbreidd og kerfisbundin brot sýr-
lenskra stjórnvalda gegn almennum borgurum.
Þrjú ríki, Rússland, Kína og Kúba, voru einu
ríkin sem greiddu atkvæði gegn ályktun þess
efnis í mannréttindaráðinu. Yfirgnæfandi meiri-
hluti ráðsins, alls 37 ríki af 47, samþykkti álykt-
unina, en þrjú ríki sátu hjá og fjögur greiddu ekki
atkvæði.
Í ályktuninni eru sýrlensk stjórnvöld hvött
til þess að hætta þegar í stað öllum árásum á
almenna borgara og veita hjálparsamtökum
óhindraðan aðgang að landinu.
Í gær stofnuðu helstu samtök uppreisnarmanna,
Frjálsi sýrlenski herinn, herráð sem fær það verk-
efni að skipuleggja og samhæfa uppreisnina gegn
Sýrlandsstjórn og Basher al-Assad forseta. Þar
með taka átökin í landinu á sig enn skýrari mynd
borgarastyrjaldar.
Burhan Ghalion, forseti Frjálsa sýrlenska hers-
ins, sagðist þó ekki stefna að því að fara út í borg-
arastyrjöld.
„Nei, uppreisnin í Sýrlandi var frá upphafi
og mun verða áfram fyrst og fremst friðsam-
leg almannahreyfing. Verkefni herráðsins er að
vernda friðsama mótmælendur og óbreytta borg-
ara.“ - gb
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðina fordæmir brot Sýrlandsstjórnar:
Uppreisnarmenn stofna herráð
SÝRLENSKIR UPPREISNARMENN Stjórnarhernum tókst í gær
að hrekja lið uppreisnarmanna frá borginni Homs eftir harðar
árásir vikum saman. NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Fjármála-
ráðherrar evruríkjanna sam-
þykktu í gær fyrir sitt leyti
fyrstu greiðslu úr björgunar-
pakka til handa Grikkjum, sem
tryggir að gríska ríkið ræður við
næstu afborganir af skuldum
sínum síðar í þessum mánuði.
Ráðherrarnir hittust í Bruss-
el í gær stuttu áður en tveggja
daga leiðtogafundur Evrópu-
sambandsins hófst. Þeir þurfa að
leggja blessun sína yfir greiðslu
130 milljarða evra til Grikkja
úr björgunarsjóði evruríkjanna,
sem er forsenda þess að bankar
felli niður rúmlega helming af
ríkisskuldum Grikklands. - gb
Leiðtogar evruríkja á fundi:
Hafa samþykkt
fyrstu greiðslu
HEILBRIGÐISMÁL Þráðormurinn
Strongyloides stercoralis hefur
greinst í þremur hundum á höfuð-
borgarsvæðinu, að því er fram
kemur á vef MAST.
„Tveir þeirra komu nýlega frá
hundabúinu í Dalsmynni á Kjalar-
nesi,“ segir þar, en búinu hefur
verið bönnuð frekari afhending
hunda þar til staðfest hefur verið
að smit sé ekki lengur til staðar.
Er þetta sagt í fyrsta sinn sem
þráðormur þessi finnst hér í hund-
um utan einangrunarstöðvar. Ekki
er vitað hvernig hundarnir sýkt-
ust. Einkenni sýkingar geta komið
fram sem niðurgangur, megurð og
hægur vaxtarhraði. - óká
Þráðormur fannst í hundum:
Hundabú má
ekki afhenda
HVOLPUR Þráðormurinn lifir aðallega í
fólki. Smit getur hins vegar borist á milli
manna og dýra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Páll, ertu þá hættur að taka
skot?
„Nei, ég á eftir að taka mörg skot og
engin fram hjá eða í hinn fótinn.“
Páll Reynisson í Veiðisafninu á Stokkseyri
kveðst vera kominn á beinu brautina
aftur eftir að hafa verið handtekinn ölv-
aður fyrir skothríð á almannafæri í fyrra.
FÓLK „Þetta er eins og að stinga
nammi upp í börnin og kippa því
út áður en þau ná að bíta,“ segir
Bryndís Ólafsdóttir, móðir drengs
í blönduðum hópi fimleikabarna
hjá Ungmennafélagi Selfoss sem,
þrátt fyrir að ná tilskyldum lág-
mörkum Fimleikasambands
Íslands, fá ekki að fara á Norður-
landamót.
Um er að ræða fjórtán manna
hóp drengja og stúlkna sem flest
eru þrettán ára og hafa æft frá því
þau voru fimm eða sex ára. Fyrir
um þremur árum var þessi bland-
aði hópur myndaður. „Markmiðið
var að reyna að komast á Norður-
landamót unglinga sem verður
núna í apríl í Svíþjóð,“ segir Birgir
Ásgeir Kristjánsson, formaður
fimleikadeildar UMFS.
Á úrtökumóti sem haldið var 11.
febrúar náði hópurinn tilskyldum
lágmörkum Fimleikasambands
Íslands og tryggði sér þátttökurétt
á Norðurlandamóti unglinga sem
byrjar í Svíþjóð 20. apríl. Fáum
dögum síðar var skýrt frá þeirri
ákvörðun þjálfara og stjórnar fim-
leikadeildarinnar að ekkert yrði af
ferðinni.
Birgir segir blandaða liðið hafa
verið á mörkunum að ná lágmörk-
unum. „Eftir að búið var að funda
með þjálfurum og stjórn félags-
ins var sú ákvörðun tekin að það
væri skynsamlegast að fara ekki
á mótið með svona ungan og brot-
hættan hóp. Við töldum að þetta
gæti orðið slæm lífsreynsla fyrir
hópinn og ákváðum að byggja
hann betur upp áður en farið væri
á stórmót,“ segir Birgir. Hópurinn
átti þátttökurétt í flokki þrettán til
átján ára.
„Við erum óánægð með hvernig
börnunum hefur verið haldið í von-
inni í öll þessi ár. Það var keyrt á
að þau væru að reyna að ná þess-
um lágmörkum. Svo þegar mark-
miðið næst er sagt þeim sagt að
ekki verði af neinu,“ segir Bryn-
dís. Eins og fleiri foreldrar kepp-
enda í hópnum sem rætt hefur
verið við bendir Bryndís á að aldur
barnanna hafi legið fyrir frá upp-
hafi.
Krakkarnir hafa safnað fyrir
Svíþjóðarferðinni og til að brúa
bilið ætluðu mörg að nota væntan-
lega fermingarpeninga.
„Auðvitað hefur verið stefnt að
þessu leynt og ljóst að komast á
þetta mót en þetta var ákvörðun
sem var tekin eftir miklar vanga-
veltur og að vel ígrunduðu máli,“
segir Birgir sem ítrekar að hópur-
inn eigi framtíðina fyrir sér, sér-
staklega eftir að hann aflaði sér
frekari keppnisreynslu sem sé lítil
fram að þessu. „Það eru mjög efni-
legir krakkar í þessum hópi. Þeir
eiga klárlega erindi á næsta Norð-
urlandamót eftir tvö ár.“
Bryndís er ekki sammála því
að ferðin til Svíþjóðar myndi hafa
orðið erfið reynsla fyrir börnin.
Hún bendir á að nái íþróttamenn
ná lágmörkum fyrir ólympíuleika
þá fari þeir þangað – jafnvel þótt
þeir viti að þeir eigi ekki von á
miklum frama. „Aðalmálið fyrir
þessa krakka var að fá að fara á
mótið þótt þau vissu að þau yrðu
ekki í efstu sætum.“
gar@frettabladid.is
Fimleikabörn verða
af ferð til Svíþjóðar
Móðir þrettán ára fimleikadrengs á Selfossi segir félagið snuða keppnishóp
stráksins um ferð á Norðurlandamót í Svíþjóð. Lágmarki Fimleikasambandsins
var náð en formaður deildarinnar á Selfossi segir hópinn ekki tilbúinn í mótið.
MIX-HÓPUR FIMLEIKADEILDAR UMFS Krakkarnir í blandaða hópnum í fimleikum hjá
UMFS hafa árum saman stefnt að því að ávinna sér keppnisrétt á Norðurlandamóti
unglinga sem fram fer í apríl en fá ekki fara þótt þau hafi náð settu marki.
STJÓRNMÁL Kristján Þór Júlíus son
alþingismaður býður sig fram til
embættis 2. varaformanns Sjálf-
stæðisflokks-
ins sem kosinn
verður á flokks-
ráðsfundi 17.
mars.
„Verði mér
treyst til að
gegna embætti
annars varafor-
manns flokksins
mun ég leggja
áherslu á að
auka samráð, efla innra starfið og
styrkja grasrótina innan flokks-
ins,“ segir Kristján í tilkynningu.
„Ég hef alla tíð reynt, eftir bestu
getu, að vera málsvari venjulegra
fjölskyldna og heimila um allt
land,“ segir Kristján sem frá árinu
2007 hefur verið 1. þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Norðaust-
urkjördæmi. Hann kveðst munu
sækjast eftir því að halda því
áfram fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. - gar
Kristján Þór býður sig fram:
Vill verða 2.
varaformaður
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
FÓLK Lýsi mun safna peningum til
verkefna Barnaheilla - Save the
Children í þessum mánuði með
aðstoð viðskiptavina sinna.
Barnaheill fékk fyrirtæki til
þess að aðstoða sig við verk-
efnið Heillakeðja barnanna, sem
verður í gangi út árið og er ætlað
að safna fé til verkefna samtak-
anna. Nú þegar hafa Blómaval og
Ölgerðin tekið þátt.
Einstaklingar og hópar geta
einnig tekið þátt í heillakeðjum
eða stofnað eigin keðju á heima-
síðunni heillakedjan.is. - þeb
Styrkir Barnaheill í mars:
Lýsi tekur þátt í
heillakeðjunni
JAFNRÉTTISMÁL „Klámvæðing er
kynferðisleg áreitni“ er heiti
bæklings sem Mannréttinda-
skrifstofa Reykjavíkurborgar
og MARK – miðstöð margbreyti-
leika og kynjarannsókna við
Háskóla Íslands hafa gefið út.
Bæklingnum er ætlað að varpa
ljósi á hvernig konur upplifa
klám á vinnustöðum og umræðu
um útlit sitt í stað frammistöðu.
Í honum er sýnt hvernig umræða
um útlit og niðurlægjandi mynd-
birtingar eru notaðar til að grafa
undan trúverðugleika kvenna og
styrk. - þeb
Kynferðisleg áreitni:
Bæklingur um
klámvæðingu
ATVINNA 1,4 milljörðum króna verð-
ur veitt í atvinnuverkefni fyrir
langtímaatvinnulausa hjá Reykja-
víkurborg næsta árið. Borgarráð
samþykkti tillögu borgarstjóra
þess efnis í gær.
Verkefnið felur í sér tillögur um
aðgerðir fyrir langtímaatvinnu-
lausa og er ætlað að tryggja allt
að 1.500 atvinnuleitendum störf
og starfstengd úrræði. Störfin
sem verða í boði verða kynnt á sér-
stakri Vinnumessu þann 8. mars
næstkomandi.
Fjármálaskrifstofa borgarinnar
áætlar að heildarkostnaður vegna
þessa tólf mánaða átaks nemi 1.414
milljónum króna. Vinnumálastofn-
un veitir mótframlag og þegar það
hefur verið tekið með í reikning-
inn ásamt auknum útsvarstekjum
verður kostnaðurinn 673 milljón-
ir. Einnig er gert ráð fyrir því að
fjárhagsaðstoð og annar kostnaður
sparist á móti útgjöldunum.
Þá var samþykkt að stofna stýri-
hóp um vinnumarkaðsúrræði, en
hópurinn á að útfæra hugmyndir
um sameiginlega atvinnumála-
deild. Þeirri deild er ætlað að sjá
um vinnumiðlun í átaksverkefnum,
vinnumiðlun sumarstarfa og fatl-
aðra. Til frambúðar á hópurinn að
vera borgaryfirvöldum til ráðgjaf-
ar í atvinnuátaksmálum. - þeb
Reykjavíkurborg veitir 1,4 milljörðun króna í atvinnuátak á næsta árinu:
Langtímaatvinnulausir í forgang
RÁÐHÚSIÐ Meirihluti borgarráðs sam-
þykkti tillögur borgarstjóra á fundi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPURNING DAGSINS