Fréttablaðið - 02.03.2012, Síða 4
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR4
STJÓRNMÁL Fyrrverandi efnahags-
og viðskiptaráðherra, Árni Páll
Árnason, segir að tvíátta skilaboð í
gengismálum hafi verið vandamál.
Ekki sé hægt að tala upp tiltrú á
efnahagslegan stöðugleika á Íslandi
á meðan talað sé um að það sé mark-
mið með íslenskri krónu að hægt sé
að fella gengi.
Árni Páll sagði í hádegisfréttum
Ríkisútvarpsins í gær að hann hefði
fengið slíkar yfirlýsingar í bakið í
samtali við bankastjóra Seðlabanka
Evrópu. Hann segir við Fréttablaðið
að þar hafi hann óskað eftir stuðn-
ingi við skjótt afnám gjaldeyris-
hafta og upptöku evru. Þar á bæ
hafi menn vísað í orð Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, forseta Íslands, og
Steingríms J. Sigfússonar, þáver-
andi fjármálaráðherra, um kosti
þess að geta fellt sjálfstæða mynt.
Árni Páll segir allt slíkt tal mjög
hamlandi fyrir erlendri fjárfest-
ingu. Spurður hvort orð Steingríms
hafi þá staðið í vegi fyrir erlendri
fjárfestingu segir hann:
„Það segir sig sjálft. Forsenda
erlendrar fjárfestingar og tiltrúar
á íslenska krónu er að menn telji að
stjórnvöld muni forðast gengisfell-
ingar í lengstu lög. Ef menn skil-
greina kosti íslenskrar krónu ein-
vörðungu þá að hægt sé að fella
hana, felast í því skilaboð til útlend-
inga um að hún sé mjög óviss eign
og best sé að eiga ekkert undir
henni.“
Steingrímur segist ekki muna
eftir því að hafa nokkru sinni rætt
um mikilvægi þess að geta fellt
gengið. Hann segir Íslendinga búa
við þann veruleika að hafa íslensku
Segir ráðherra hafa
hamlað fjárfestingu
Árni Páll Árnason segir yfirlýsingar um gengisfellingu hafa staðið erlendri fjár-
festingu fyrir þrifum. Hann ræddi við Seðlabanka Evrópu um skjóta upptöku
evru. Fyrrverandi fjármálaráðherra hafnar því að hafa rætt um gengisfellingu.
SAMRÁÐHERRAR Árni Páll Árnason gagnrýnir eftirmann sinn á stóli efnahags- og
viðskiptaráðherra fyrir tvíátta skilaboð í gjaldmiðilsmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Guðmundur Steingrímsson, þingmaður utan flokka, var málshefjandi í sér-
stakri umræðu um stefnu í gjaldmiðilsmálum á þingi í gær. Hann kallaði
eftir skýrri framtíðarsýn, en ljóst væri að við gætum ekki búið lengur við
sjálfstæða krónu. „Krónan hefur í för með sér þannig óstöðugleika að næst-
um ótækt er fyrir heimili og fyrirtæki að gera plön til langs tíma.“
Steingrímur J. Sigfússon sagði ljóst að þröngt skilgreind verðbólgumark-
mið Seðlabanka Íslands dygðu ekki lengur ein og sér. Undir það tók Illugi
Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Ég hef lengi verið þeirrar
skoðunar að verðbólgumarkmið sé ónothæft sem grundvöllur peninga-
stefnu Seðlabanka Íslands.“
Verðbólgumarkmið duga ekki
krónuna. Óábyrgt sé að móta ekki
framtíðarstefnu á henni, skyldi svo
fara að þjóðin hafnaði aðild að ESB.
„Ég hef sagt að úr því sem komið
var hafi krónan að mörgu leyti
hjálpað varðandi fljótari aðlög-
un hagkerfisins. Það eru ekki síst
útflutnings- og samkeppnisgreinar
sem hafa nýtt sér hagstæða gengis-
skráningu sem eru að draga hag-
kerfið áfram í dag.“
Steingrímur segir efnahags-
stjórnunina snúast um að endur-
heimta stöðugleika og það sé að tak-
ast hægt og bítandi.
kolbeinn@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Heilablæðing af
völdum höfuðhöggs olli dauða
manns sem lést í fangaklefa lög-
reglustjórans á Suðurnesjum í
byrjun september í fyrra. Höggið
hafði maðurinn hlotið skömmu
fyrir handtöku, að því er fram
kemur í niðurstöðum rannsóknar
ríkissaksóknara.
Áverkinn er rakinn til falls
mannsins á steypta gangstétt, en
ekkert er sagt benda til annars
en að um óhapp hafi verið ræða.
Sjúkraflutningamönnum og lög-
reglu, sem afskipti höfðu af mann-
inum sökum ölvunarástands hans,
var ekki kunnugt um höfuðhöggið.
Ríkissaksóknari hefur ákveðið
að afhafast ekki frekar í málinu.
- óká
Rannsókn á láti í fangaklefa:
Lést af völdum
heilablæðingar
FJÁRMÁL Stjórn Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna hefur ákveðið að
lækka fasta vexti á nýjum verð-
tryggðum sjóð-
félagalánum
úr 4,5% í 3,9%.
Breytilegir
vextir verða
áfram 2,98%.
Í tilkynningu
frá sjóðnum
segir að þessi
vaxtalækkun sé
„ákveðin með það í huga að veita
sjóðfélögum aukna og góða þjón-
ustu á þessu sviði“.
Þar segir einnig að afstaða líf-
eyrissjóðsins sé sú að farsælla sé
að ávaxta fjármuni sjóðsins með
því að bjóða sjóðfélögum lán held-
ur en að geyma það inni á banka-
reikningum þar sem ávöxtun sé
ósamkeppnisfær.
- þj
Betri ávöxtun með útlánum:
Lífeyrissjóður
lækkar vextina
DÓMSTÓLAR Íslenska ríkið þarf,
samkvæmt nýföllnum dómi
Hæstaréttar, að greiða Skarp-
héðni Berg
Steinarssyni
300 þúsund
krónur í miska-
bætur vegna
ólögmætrar
kyrrsetningar
á eigum hans.
Hæstiréttur
sneri með þessu
við fyrri dómi
Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Kyrrsetningin var gerð í
tengslum við rannsókn á meint-
um skattsvikum Stoða (áður FL
Group).
Hæstiréttur féllst ekki á 1,5
milljóna króna skaðabótakröfu
Skarphéðins, en ríkið þarf einnig
að greiða honum eina milljón
króna í málskostnað. - óká
Dómi héraðsdóms snúið við:
Dæmdar 300
þúsund í bætur
SKARPHÉÐINN
BERG
STEINARSSON
JARÐSKJÁLFTI Tryggingafélögum
bárust nokkrar tilkynningar í
gær um skemmdir á innanstokks-
munum eftir þrjá jarðskjálfta
aðfaranótt fimmtudags. Mestu
skemmdirnar urðu í Vallahverfi í
Hafnarfirði.
Viðlagatrygging Íslands er lög-
boðin vátrygging við náttúru-
hamförum. Engar tilkynningar
höfðu borist þangað um skemmdir
á húsum í gær. Stærsti skjálftinn
mældist 4,2 á Richter og átti hann
upptök sín við fjallið Helgafell sem
er vinsælt útivistarsvæði. Benedikt
Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræð-
ingur hjá Veðurstofu Íslands, segir
að stærsti skjálftinn hafi ekki verið
nógu stór til þess að ógna gangandi
vegfarendum. „Auðvitað getur
þetta komið af stað skriðuföllum
sem eru hættuleg. Hins vegar var
skjálftinn ekki nógu stór til þess að
þetta skjóti undan þér fótunum,“
segir Benedikt.
Skjálftinn átti upptök sín í nyrsta
hluta sprungukerfis sem er á svæði
nálægt Helgafelli.
Um miðjan dag í gær voru ein-
ungis stöku skjálftar og ekkert sem
gaf til kynna að fleiri stórra jarð-
skjálfta væri að vænta. „Að vísu er
mjög erfitt að spá fyrir um svona
tegund skjálfta,“ segir Benedikt.
Ekki er algengt að skjálftavirkni
finnist í þessari tilteknu sprungu í
jarðskorpunni. Síðast mældist þar
jarðskjálfti í tengslum við Suður-
landsskjálftann árið 2000. - vgu
Nokkrar skemmdir urðu í Vallahverfi í Hafnarfirði í jarðskjálftahrinu í fyrrinótt:
Innanstokksmunir skemmdust
VIÐSKIPTI Eignabjarg, dótturfélag
Arion banka, seldi í gær 13,33
prósenta hlut í Högum til fjár-
festa. Fyrir bréfin fékk Eigna-
bjarg 2,8 milljarða króna en alls
bárust tilboð í bréfin fyrir 7,9
milljarða. Hæsta verð sem greitt
var fyrir hlut var 17,2 krónur en
lægsta verð 17 krónur.
Verð á hlutabréfum í Högum
hækkaði í kjölfar sölunnar, var
17,55 við lokun í gær og hefur
aldrei verið hærra við lokun.
Á félagið nú 5,98 prósent hlut í
Högum eftir en Fjármálaeftir-
litið hefur lýst því yfir að það
geri ekki athugasemd við að
bankinn eigi allt að 10 prósenta
hlut í Högum. - mþl
Enn eftirspurn eftir Hagabréfum:
Eignabjarg seldi
hlut í Högum
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
18°
8°
7°
14°
16°
7°
7°
20°
14°
16°
8°
30°
5°
17°
15°
4°
Á MORGUN
8-13 m/s.
SUNNUDAGUR
8-15 m/s.
6
6
6
6
6
5
5
5
2
8
7 11
11
11
10
12
20
10
15
16
15
12
6
2
2
2
5 2
1
-1
-1
0
ROK OG RIGNING
víða um sunnan og
vestanvert landið í
dag en búist er við
stormi vestra fram
á kvöld. Fremur stíf
suðvestanátt um
helgina og kólnar
og víða rigning
eða slydda en él á
sunnudag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
MENNTAMÁL Einelti fer minnkandi
í grunnskólum Reykjavíkur sam-
kvæmt niðurstöðum úr viðhorfs-
könnun foreldra sem lögð var
fyrir í síðasta mánuði. Yfir 90
prósent foreldra telja að börnum
þeirra líði alltaf eða oftast vel í
skólanum og einungis um 0,2 pró-
sent eru því ósammála.
Janúarmæling Skólapúlsins
2012 gefur til kynna að einelti í
6. til 10. bekk er heldur minna en
fyrir ári, eða um þrjú prósent.
Áfram mælist einelti minna í
fjölmennari skólum. - sv
Foreldrakönnun í Reykjavík:
Einelti minna í
skólum en áður
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
GENGIÐ 01.03.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
229,0037
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,99 125,59
199,32 200,28
166,52 167,46
22,395 22,527
22,411 22,543
18,873 18,983
1,5411 1,5501
193,63 194,79
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Auðvitað getur þetta
komið af stað skriðu-
föllum sem eru hættuleg.
BENEDIKT GUNNAR ÓFEIGSSON
JARÐEÐLISFRÆÐINGUR