Fréttablaðið - 02.03.2012, Síða 6
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR6
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hefur
vísað tveimur nauðgunarmálum
gegn Agli Einarssyni til ákæru-
meðferðar hjá
embætti Ríkis-
saksóknara.
Þar verður
reynt að taka
ákvörðun um
hvort ákært
skuli í málun-
um innan mán-
aðar.
Átján ára
stúlka kærði Egil og unnustu
hans fyrir nauðgun í lok nóvem-
ber. Það mál hefur þegar komið
til kasta Ríkissaksóknara, sem
vísaði málinu aftur til lögreglu til
frekari rannsóknar.
Í millitíðinni kærði önnur kona
Egil fyrir nauðgun sem sögð
er hafa verið framin fyrir átta
árum. - sh
Niðurstaða eftir mánuð:
Mál Egils aftur
til saksóknara
EGILL EINARSSON
ALÞINGI Ísland getur lagt mikið af
mörkum í baráttunni gegn vannær-
ingu barna um heim allan. Lykilat-
riði er að byggja upp matvælafram-
leiðslu þróunarlanda til að tryggja
fæðuöryggi þegna þeirra. Þetta
voru þingmenn sammála um þegar
nýleg skýrsla Barnaheilla – Save the
Children var rædd á Alþingi í gær.
Árni Þór Sigurðsson, formaður
utanríkismálanefndar, var máls-
hefjandi og undirstrikaði hinn
dimma veruleika sem kemur fram
í skýrslunni, meðal annars að um
300 börn látist af vannæringu dag
hvern um heim allan.
Árni Þór sagði einnig að bar-
átta gegn vannæringu hefði ekki
gengið sem skyldi og spurði Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
hvernig Ísland gæti lagt málinu
lið.
Össur sagði ríkisstjórnina fylgja
markmiðum skýrslunnar, sem og
nýlegrar skýrslu UNICEF um neyð
barna í stórborgum heimsins.
„Ég tek undir öll þau áfrýjun-
arorð sem er að finna í þessum
skýrslum,“ sagði Össur. „Ríkis-
stjórnin hefur bent á að það þarf
miklu heldur að leggja fjármagn
til að byggja upp sjávarútveg og
landbúnað til að tryggja fæðuör-
yggi fremur en að leggja gríðar-
legar upphæðir gegnum Alþjóða-
bankann og aðrar stofnanir til að
byggja upp innviði.“
Össur sagði framlög Íslands
vera að aukast. Í ár sé þremur
milljörðum króna varið til þró-
unar- og neyðaraðstoðar. Þá hafi
verið lögð fram áætlun um aukin
framlög til næstu tíu ára. Með
aukningunni verði meira fé beint í
gegnum frjáls félagasamtök enda
hafi það sannað sig að með því nýt-
ist fjármunir betur.
Allnokkrir þingmenn tóku til
máls í umræðunum og voru á einu
máli um að þetta væri aðkallandi
vandamál. - þj
Skýrsla Barnaheilla um vannæringu barna um heim allan var til umræðu á Alþingi í gær:
Lykilatriði að byggja upp matvælaframleiðslu
ÁRNI ÞÓR
SIGURÐSSON
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
Glæný Bláskel
frá Stykkishólmi
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
HUMAR
2.000 kr.kg
FERSKUR TÚNFISKUR
690 kr. pr. 100 gr.
3.990 kr.kg
HUMAR Stærð 18-24
Hyggjast ekki selja HS veitur
Bæjarráð Hafnarfjarðar telur ekki
tímabært að huga að sölu hlutar
bæjarins í HS veitum. Þetta kom fram
á fundi ráðsins í gær, en Hafnarfjarð-
arbær á rúm 15% í fyrirtækinu. Aðrir
stórir eigendur eru Reykjanesbær og
Orkuveita Reykjavíkur.
HAFNARFJÖRÐUR
DÓMSMÁL Engin stór eða fordæmis-
gefandi mál hafa verið á dagskrá
Hæstaréttar síðan 13. febrúar
og verða ekki fyrr en Landsdóm-
ur kveður upp dóm sinn í máli
Alþingis gegn Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra.
Þetta staðfestir Þorsteinn A.
Jónsson, skrifstofustjóri Hæsta-
réttar. Allt að tveir mánuðir geta
liðið þar til dómur fellur í máli
Geirs.
Forseti Hæstaréttar hefur
lögum samkvæmt ákvörðunarvald
um það hvort dómur skuli skipað-
ur þremur dómurum eða fimm. Í
öllum stærri málum, einkum þeim
sem að mati forseta réttarins geta
verið fordæmisgefandi, dæma
fimm dómarar, að sögn Þorsteins,
og jafnvel sjö í undantekningartil-
fellum.
Lög kveða á um að þeir fimm
dómarar Hæstaréttar sem hafa
lengstan starfsaldur skuli sitja í
Landsdómi en einn þeirra, Árni
Kolbeinsson, lýsti sig vanhæfan
til þess vegna tengsla við Geir.
„Lögin um Hæstarétt gera ráð
fyrir því að fimm elstu dómararn-
ir sitji í fimm manna dómi og þar
sem þeir eru líka í Landsdómi – þó
með undantekningum – þá verða
engin fimm manna mál sem hafa
fordæmisgildi í Hæstarétti á sama
tíma,“ segir Þorsteinn.
Þetta á við um öll mál sem þykja
hafa mikið fordæmisgildi og auk
þess mál þar sem sérstaklega
mikil vægir einstaklingshagsmun-
ir eru í húfi, segir Þorsteinn og
nefnir sem dæmi manndrápsmál
og mál sem varða læknamistök.
Þorsteinn segir að verið sé að
skoða að setja tvö eða þrjú mál
sem krefjast fimm manna dóms á
dagskrá í apríl, en það verði þá mál
með mjög takmarkað fordæmis-
gildi. stigur@frettabladid.is
Öll stærri mál látin
bíða eftir Landsdómi
Hæstiréttur tekur ekki fyrir stór og fordæmisgefandi mál næstu vikurnar á
meðan fimm dómarar eru uppteknir í landsdómsmálinu. Engin slík hafa verið
á dagskrá síðan 13. febrúar. Aðalmeðferð í máli Geirs Haarde hefst á mánudag.
Aðalmeðferðin í máli Geirs H. Haarde fyrir Landsdómi hefst á mánudaginn
kemur. Áætlað er að hún muni standa í tvær vikur, flesta daga frá morgni og
langt fram eftir degi.
Reynt verður að ljúka vitnaleiðslum þriðjudaginn 13. mars, taka þá einn
dag í frí og ljúka aðalmeðferðinni á tveggja daga málflutningi saksóknara og
verjanda á fimmtudegi og föstudegi. Þetta er þó ekki meitlað í stein og gæti
tekið breytingum. Dómarar munu svo reyna að dæma í málinu á fjórum
vikum en hafa þó til þess sex vikur hið mesta.
Stefnt er að því að taka ákæruliðina fyrir í réttri röð og kalla vitnin til
í samræmi við það. Þannig er til dæmis fyrirséð að fulltrúar í samráðs-
hópi Seðlabankans um fjármálastöðugleika komi fyrir dóminn þegar þriðji
ákæruliður er til umfjöllunar, og flestir stjórnmálamennirnir í umfjöllun um
síðasta ákæruliðinn.
Nokkur vitni búa erlendis og munu þau flest koma til Íslands til að verða
við réttarhöldin, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Meðal þeirra eru
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem starfar nú í Kabúl í Afganistan, Árni M.
Mathiesen, sem starfar fyrir Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna í Róm,
og Kaupþingsstjórarnir Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson,
sem búa í London og Lúxemborg. Líklega verður símaskýrsla af Halldóri J.
Kristjánssyni, fyrrverandi Landsbankastjóra, látin duga. Hann býr í Kanada.
Lykilvitni koma heim í réttarhöldin
HÆSTIRÉTTUR Fjórir af fimm reynslumestu dómurum Hæstaréttar verða upp-
teknir næstu vikurnar við réttarhöld fyrir landsdómi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Margir gripnir í símanum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur síðustu daga stöðvað allmarga
ökumenn og sektað fyrir að tala í
síma án þess að nota handfrjálsan
búnað. Á vef lögreglu segir að nokkrir
tugir ökumanna hafi verið stöðvaðir
vegna þessa um miðja vikuna.
Vitni að mannránstilraun
Leitað er að vitnum að því þegar
reynt var að þvinga unga stúlku upp
í sendibíl á föstudagskvöld. Talið er
að konur á dökkleitum smábíl hafi
átt leið hjá og biður lögreglan þær að
gefa sig fram við lögreglu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist
alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
SVEITARSTJÓRNIR „Það er alveg krist-
altært að þessi starfslokasamning-
ur er að kosta bæinn 13 til 14 millj-
ónum meira en ef farið væri eftir
ráðningarsamningnum,“ segir Haf-
steinn Karlsson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingar í Kópavogi, um starfslok
Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra.
Eftirmaður Guðrúnar í bæjar-
stjórastólnum, Ármann Kr. Ólafs-
son úr Sjálfstæðisflokki, segir að
samningurinn við Guðrúnu feli í
sér níu milljóna króna ávinning
fyrir bæjarsjóð því Guðrún eigi rétt
á tólf mánaða biðlaunum á bæjar-
stjóralaunum en ætli engu að síður
að taka við starfi sviðsstjóra strax
1. september næsta haust.
„Útreikningar Ármanns eru væg-
ast sagt skrýtnir,“ segir Hafsteinn
Karlsson. Hann vísar meðal annars
til þess að tæplega fjögurra mánaða
ótekið sumarleyfi sem Guðrún mun
hafa átt alveg frá árinu 2007, þrem-
ur árum áður en hún tók við bæjar-
stjórastarfinu, hafi verið greitt út
í gær, samtals 5,4 milljónir króna.
„Þar sem hún á að ganga í sitt
fyrra starf hefði verið
eðlilegt að hún hefði
farið í þetta fjög-
urra mánaða leyfi,
tekið við starfinu
og engin biðlaun,“
segir Hafsteinn.
Guðr ú n mu n
taka við starfi yfir-
manns menntasviðs
sem verður endur-
vakið í bæjar-
kerfinu. Hafsteinn segir að þar
sem Guðrún þiggi biðlaun fram að
þeim tíma hafi hún fyrirgert rétti
sínum til slíks starfs. „Starfið ber
því að auglýsa eins og önnur störf
hjá bænum,“ segir bæjarfulltrúinn.
Ármann segir fyrri meiri-
hluta hafa stofnað til máls-
ins. „Þau bera ábyrgð á
ráðningarsamningi og
uppsögn bæjarstjóra.
Það var núverandi meiri-
hluta að greiða úr þeim
flækjum,“ segir bæjar-
stjórinn. - gar
Bæjarfulltrúi gagnrýnir samninga um starfslok fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi:
Ber að auglýsa starf ætlað Guðrúnu
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON OG
HAFSTEINN
KARLSSON
KJÖRKASSINN
Munt þú kjósa í næstu forseta-
kosningum ef til þeirra kemur?
JÁ 86,9%
NEI 13,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgdist þú með leikjum ís-
lensku landsliðanna í knatt-
spyrnu í vikunni?
Segðu þína skoðun á Vísir.is