Fréttablaðið - 02.03.2012, Page 16
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR16
Föstudagsviðtaliðföstuda
gur Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
S
amruni Íslandsbanka og Byrs, sem
staðið hefur yfir undanfarna mán-
uði, verður að fullu frágenginn um
helgina. Við það mun efnahags-
reikningur Íslandsbanka stækka
um fimmtung. Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Íslandsbanka, segir samruna-
ferlið hafa gengið sérlega vel. „Það er mjög
flókið ferli að flytja viðskipti eins banka
yfir á annan, upplýsingatæknilega séð. Við
erum búin að sameina fimm útibú og breytt-
um Byr-útibúinu í Hraunbæ í Íslandsbanka-
útibú. Þó að tæknilegi þátturinn skipti gríð-
arlega miklu máli þá skiptir ekki síður máli
hversu jákvætt starfsfólkið hefur verið í garð
sameiningarinnar.
Þegar við höfum verið að opna útibúin á ný
eftir sameiningu þá hafa viðskiptavinirnir
verið að mæta til að kanna hvort sitt fólk sé
ekki alveg örugglega á staðnum. Þeir eru svo
tengdir sínu starfsfólki. Þegar þeir sjá að svo
er þá er viðskiptavinurinn ánægður. Og þá
erum við ánægð. “
Sársaukafullt ferli
Samruninn hefur þó verið fjarri því sárs-
aukalaus. Alls hefur stöðugildum verið fækk-
að um 125 í tengslum við hann. Um 50 var
sagt upp störfum, starfsamningar annarra
voru ekki endurnýjaðir, sumum var boðið
upp á starfslok áður en þeir voru komnir á
aldur og ekki var ráðið í störf þegar starfs-
menn hættu.
Að sögn Birnu er vilji til þess innan bank-
ans að ná fram enn frekari hagræðingu og
áætlanir um hvernig sé hægt að ná henni
fram liggja fyrir. „Við vonumst þó til þess
að það verði hægt að hagræða án frekari
sársaukafullra aðgerða. Það er hægt að fara
aðrar leiðir. Við erum til dæmis komin langt
með að klára endurskipulagningu á lánasafni
bankans. Við það starfa margir starfsmenn á
stuttum samningum sem munu renna út. Við
erum að sjá fyrir okkur að það verði fækkun
í þessum hluta starfseminnar þegar við horf-
um fram á veginn. En auðvitað vonum við að
sem flestir geti fengið önnur störf sem stafa
af vexti bankans í framtíðinni. Þar verða
tækifæri og vonandi getum við boðið upp á
störf sem þykja spennandi á þeirri hliðinni.“
Stærsti samruninn
Samruni Íslandsbanka og Byrs er lang-
stærsti einstaki samruni fjármálafyrirtækja
sem átt hefur sér stað eftir bankahrun. Birna
telur ekki ómögulegt að ráðast í enn frekari
sameiningar, þótt það yrði líkast til þungt í
samkeppnislegu tilliti. „Mín skoðun er sú að
það sé mikil samkeppni á fjármálamarkaðin-
um. Samkeppniseftirlitið er búið að gefa það
út að það yrði þungt að ráðast í stórar sam-
einingar á honum. En það er þó ekki alveg
útilokað. Það væri hægt að framkvæma þær
með ýmiss konar skilyrðum. Það er ekkert
ómögulegt. En svo verður bara að sjá hvað
verður gert með þá sparisjóði sem eftir eru.
Það hefur komið fram áður opinberlega að
við gerðum tilboð í Sparisjóð Norðfjarðar
og að við höfum áhuga á að koma að þeim
rekstri. Það var hins vegar ákveðið að taka
engu tilboði í hann.“
Flækjustig í gengisdómamálum
Fyrr í febrúarmánuði féll enn einn geng-
islánadómur í Hæstarétti sem hefur í för
með sér að endurreikna þarf fjölmörg lán
sem bankarnir voru þegar búnir að endur-
reikna. Spurð um heildarkostnað bankans
vegna þeirra leiðréttinga sem hann þarf
að ráðast í í kjölfar dómsins segir Birna þá
vinnu standa yfir. Fjármálaeftirlitið sé búið
að stilla upp ákveðnum sviðsmyndum varð-
andi málið. „Flækjustigið liggur í því hvern-
ig eigi að standa að útreikningnum. Dómur-
inn svarar því í sjálfu sér ekki skýrt. Eins
og komið hefur fram í fjölmiðlum hafa bank-
arnir óskað eftir því við Samkeppniseftirlit-
ið að fá leyfi til að ræða saman um hvern-
ig við endurreiknum þetta þannig að þetta
verði samræmt milli bankanna. Ef það verð-
ur jákvætt þá er það mín skoðun að sú leið sé
betri en aðrar.
Síðan eiga eftir að falla fleiri dómar sem
segja skýrar með hvaða hætti við eigum að
gera þetta. Einhverjir þeirra eru í pípunum.
Það þarf að taka ákvörðun um hvort beðið
verði eftir þeim eða hvort það verði tekinn
einn snúningurinn enn áður en lokaniður-
staða liggur fyrir.“
Óvissa um endurreikninga
Töluverð óvissa hefur einkennt umræðuna
um hversu víðtæk áhrif hins nýfallna dóms
séu. Að mati Birnu nær hann yfir þau lán
sem hafa verið dæmd ólögleg. „Lögin sem
sett voru í desember 2010 sópuðu saman
ákveðnum lánaflokkum og hætt var við
málarekstur í mörgum þeirra í kjölfarið. Sú
lagasetning leysti ákveðinn vanda. Við tókum
henni að hluta til fagnandi. Það var búið að
dæma að bílalánin væru ólögleg á þessum
tíma og við vorum í vandræðum með hvernig
við ættum að endurreikna lánin og lagasetn-
ingin svaraði því. En við stöndum kannski
á sama stað núna og fyrir þá lagasetningu.
Hvernig eigum við að reikna þetta? Því hefur
ekki verið svarað. Við vorum svo sannarlega
ekki að búast við því að byrja neðst í bunk-
anum aftur.“
Gæti tekið mánuði
Birna segist ekki geta sagt til um hvenær
niðurstaða um hvernig eigi að reikna lánin
liggi fyrir. Þó telur hún að það verði talið í
vikum eða mánuðum. „Ein þeirra spurninga
sem er ósvarað er hvort það þurfi að bíða
eftir öðrum dómum. Ef svo er þá mun þetta
taka lengri tíma. En ef samkomulag næst
um hvernig eigi að reikna lánin ætti það að
stytta þann tíma. Þetta er gríðarlega mikið
verkefni. Íslandsbanki er til dæmis með um
tólf þúsund bílalánasamninga. Það fylgir
því töluverð vinna að fara í gegnum þá alla
aftur.“
Gæti tekið mánuði að klára
endurútreikninga gengislána
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir það erfitt að stjórna fjármálafyrirtæki á Íslandi vegna innri aðstæðna. Í við-
tali við Þórð Snæ Júlíusson segir hún að það geti tekið mánuði að klára endurútreikninga vegna nýs gengislánadóms Hæstaréttar.
Dómar Hæstaréttar eru ekki eini
óvissuþátturinn sem er til staðar í
starfsumhverfi íslenskra fjármála-
fyrirtækja í dag. Hérlendis eru í gildi
gjaldeyrishöft, stærstu bankarnir eru
að stórum hluta í eigu þrotabúa og
skattlagning á kerfið er víðtækari en
þekkist í nágrannaríkjunum.
Birna segir þessa óvissu helst
trufla erlenda aðila sem hafa áhuga
á að koma að fjárfestingum á Íslandi.
„Það eru þættir eins og skattaálögur,
dómar vegna erlendu lánanna og
viðhorf til erlendra fjárfestinga. Það
er mjög erfitt að stjórna fjármála-
fyrirtæki í þessu laga- og pólitíska
umhverfi sem við erum í. Við finnum
það þegar við erum að tala við
erlenda banka. Þá eru þeir með
ákveðið mat á rekstri bankans, en
hafa síðan meiri áhyggjur af þessu
umhverfi sem við erum að starfa í.
Sérstaklega skattlagningunni sem
er á kerfinu. Hún er mjög þung fyrir
fjármálafyrirtækin. Það sem við
höfum verið að leggja áherslu á er
að þetta sé í samræmi við það sem
er að gerast annars staðar og að
við þurfum ekki að vera að útskýra
séríslenska skattlagningu sem þessir
bankaskattar eru.“
Svissneski bankinn UBS hefur
verið að vinna fyrir þrotabú Glitnis,
stærsta eiganda Íslandsbanka, að því
að setja saman áætlun um framtíðar-
eignarhald. Birna segir að erlendir
aðilar hafi sýnt málinu áhuga.
„Staðan í bankakerfinu í Evrópu er
náttúrulega þung um þessar mundir.
En ég held að þetta yrði frábær fjár-
festing fyrir erlenda sem innlenda
fjárfesta.“
Íslenskur fjármálamarkaður
hefur farið hægt af stað eftir hrun.
Þegar Íslandsbanki skráði sértryggð
skuldabréf í Kauphöll Íslands í
desember 2011 var um að ræða
fyrstu skráningu sem átt hafði sér
stað þar síðan í hruninu. Í kjölfarið
voru Hagar skráðir á hlutabréfamark-
að og Arion banki skráði sértryggðan
skuldabréfaflokk. Í dag er þó staðan
enn þannig að mun meiri eftirspurn
er til staðar eftir fjárfestingamögu-
leikum en framboð.
Birna er þó bjartsýn á að mark-
aðir muni taka vel við sér í ár. „Ég
er algjörlega sannfærð um það að
árið 2012 verður árið sem hlutirnir
gerast. Við verðum að vona að það
komi fram nýir fjárfestingamögu-
leikar á markaðinn sem fyrst og að
það náist jafnvægi milli framboðs
og eftirspurnar. Ég held að það
muni nást, en á meðan gætu komið
tímabundnar bólur. En ég er mjög
bjartsýn á að við munum koma á
aftur almennilegum fjármálamarkaði
hér á landi.“
Erlendir aðilar hafa sýnt bankanum áhuga
BANKASTJÓRINN Birna segir að samrunaferlið við Byr hafi gengið sérlega vel. Það hafi verið flókið en það
hafi skipt miklu máli hversu jákvætt starfsfólk bankanna hafi verið í garð sameiningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hvernig eigum við að reikna þetta? Því hefur
ekki verið svarað. Við vorum svo sannarlega
ekki að búast við því að byrja neðst í bunk-
anum aftur.