Fréttablaðið - 02.03.2012, Síða 20
20 2. mars 2012 FÖSTUDAGUR
Á heimasíðu Háskóla Íslands (HÍ) segir: „Háskóli Íslands
vill ráða til sín og hafa í þjón-
ustu sinni hæfa, dugandi og heið-
arlega starfsmenn sem þykir
eftirsóknarvert að starfa við
Háskólann vegna þeirra vinnu-
bragða, starfsaðstöðu og starfs-
anda sem þar er og vegna þeirra
launakjara sem þar eru í boði.“
Við Háskóla Íslands starfa um
2.000 stundakennarar sem sam-
anlagt sinna um þriðjungi allrar
kennslu við skólann. Kennarar
með akademískt hæfi voru í lok
árs 2009 643 talsins.
Undanfarið hefur verið vakin
athygli á launakjörum stunda-
kennaranna, sem eru vandræða-
lega slök fyrir jafnmikilvæga og
metnaðarfulla stofnun og Háskóla
Íslands. Háskólanemi sem starf-
ar við stundakennslu fær greiddar
rúmar 1.000 krónur fyrir tímann,
en stundakennari með doktors-
próf tæplega 1.900 krónur.
Rektor HÍ hefur lýst því,
eflaust réttilega, að ekkert svig-
rúm sé til að leiðrétta þessi slöku
laun, enda þótt vilji sé fyrir
hendi. Rökin fyrir því eru m.a.
aukinn fjöldi nemenda og lækk-
uð fjárframlög til háskólans frá
hruni.
En hófst vandi stundakennara
fyrst við hrun?
Í árbók HÍ 2009 kemur fram
að milli áranna 2008 og 2009
hafi samdráttur orðið í stunda-
kennslu og það útskýrt með því
að sparnaðaraðgerðir og minnk-
að framboð námskeiða auk fjár-
veitingar til nýrra stöðugilda hafi
létt á þörf fyrir stundakennslu.
Samkvæmt þessu virðist HÍ
hafa leitast við að draga úr hlut-
falli stundakennslu við skólann
áður en til niðurskurðar af völd-
um hrunsins kom. Einstaklingar
við stundakennslu árið 2008 voru
2.159.
Launakjör stundakennara
samkvæmt einhliða taxta HÍ
eru heldur ekki ný af nálinni.
Sú staða að ekki sé samið við
stéttarfélög um þennan hluta
kjara starfsfólks háskólans
endurspeglar miklu fremur gam-
alt fyrirkomulag launalaga sem
viðgengust áður en stéttarfélög
fengu samningsrétt. Það að láta
laun fyrir stundakennslu ekki
taka mið af umsömdum kjörum
háskólakennara við skólann er
því miður ekki nýtt ástand.
Nýverið birti aðildarfélag
Bandalags háskólamanna (BHM)
einhliða taxta til leiðbeiningar
fyrir þá félagsmenn sína sem
sinna stundakennslu við HÍ.
Grunnur þess taxta er einfald-
lega fenginn með því að reikna
tímakaup út frá umsömdum laun-
um félagsmanna í samræmi við
menntun. Munur á þeim taxta og
þeim sem HÍ gefur út myndi að
sögn rektors HÍ skapa skólanum
aukakostnað upp á 400 til 500
milljónir króna árlega.
Það er löngu tímabært að samið
verði um launakjör við stunda-
kennara, enda eru þau í hróp-
legu ósamræmi við önnur kjör
háskólamenntaðra og til vansa
fyrir Háskóla Íslands. Það er
óviðunandi að hægt sé að varpa
sparnaði stofnunarinnar yfir á
herðar tiltekins hóps starfsfólks
með því að halda launum þeirra
óeðlilega lágum. Undirmálstaxti
stundakennara er jafnframt til
þess fallinn að hvetja til ofnotk-
unar á því ráðningarfyrirkomu-
lagi, enda mikill kostnaðarauki
fólginn í því að færa ráðningar-
form úr stundakennslu í fast-
ráðningu á umsömdum kjörum
háskólakennara.
BHM efast ekki um að stunda-
kennarar leggi metnað í sitt
framlag til uppfræðslu við HÍ,
en þó ber að hafa í huga að óhóf-
leg notkun stundakennslu getur
dregið úr heildarsýn, stefnu og
samfellu í starfi.
Sjónarmið Stúdentaráðs
Stúdentaráð Háskóla Íslands styð-
ur BHM í baráttunni um hærri
laun stundakennara við háskólann.
Kjör stundakennara eru óásættan-
leg og verða, af augljósum ástæð-
um, til þess að hæft og metnaðar-
fullt fólk mun ekki sækjast í þessi
störf af áhuganum einum. Bágar
aðstæður stundakennara geta
ógnað gæðum kennslu og er því
löngu orðið tímabært að rödd stúd-
enta heyrist. Stúdentar við háskól-
ann eru neytendur þeirrar kennslu
sem í boði er og það er því hags-
munamál þeirra allra að komið
verði til móts við þær kröfur sem
gerðar eru.
Háskólinn er í allt of miklum
mæli rekinn af stundakennslu.
Ætli hann að vinna áfram að yfir-
lýstu markmiði sínu um að teljast
til 100 bestu háskóla heims þarf
að hlúa betur að innviðum hans,
ekki síst hlutfallinu milli kennara
og nemenda. Þetta getur háskól-
inn hins vegar ekki einn síns
liðs. Háskóli Íslands er ríkis-
rekinn háskóli og því nægir ekki
að beina spjótunum eingöngu að
honum sjálfum.
Vandamál háskólans eru af
ýmsum stærðum og gerðum en
flest eiga þau það sameiginlegt
að grunnur þeirra er skortur á
fjármagni. Í öllum þeim niður-
skurði sem stjórnvöld hafa grip-
ið til frá hruni hefur háskólinn
orðið ansi illa úti og í útvarps-
fréttum RÚV þann 23. febrúar
síðastliðinn viðurkenndi Katrín
Jakobsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, að framlög
til háskólans þurfi að hækka.
Framlög til háskóla hafa vissu-
lega verið skert frá hruni. Þó
er ekki hægt að kenna hruninu
alfarið um slæm kjör stunda-
kennara eða það hversu stórt
hlutfall kennslu við HÍ fer fram
á því formi. Stefna stjórnvalda í
fjárframlögum til skólans þarf
að vera skýr, standa þarf vörð
um gæði þeirrar menntunar sem
stúdentar við Háskóla Íslands
njóta.
Matseðill eftir Mi
chelin-stjörnu m
atreiðslumeistara
!
Veitingahúsið Perlan · Sími: 562 0200 ·
Fax: 562 0207 · Netfang: perlan@perlan.i
s · Vefur: www.perlan.is
Humar- og krabbam
ósaík í sitrónumeli
shlaupi,
með austurlenskum
salathjörtum
Pinot Gris - Réne M
uré A.C. Alsace - F
rance
Ljós hörpudiskur o
g tómata crème brû
lée
með jómfrúarsósu
Pouilly Fuisse - Bo
uchard Peré & Fils
A.C. Pouilly Fuiss
e - France
Steiktur lambabóg
ur „confit“ og lamb
ahryggur
með grænmetis-ca
nnelloni og kryddju
rtasafa
Château Paveil de
Luze A.C. Margaux
- France
Croque-monsieur f
ourme d‘Ambert/M
ascarpone
Súkkulaði-Stradiva
rius með „Pur Cara
ïbes“ súkkulaði,
járnjurtaís og rista
ðar hnetur
Sauvignon Blanc L
ate Harvest Moran
de - Chile
Verð 7.400 kr.
Verð með víni 13.3
00 kr.
Matsedill
Gjafabréf Perlunnar
Góð gjöf við öll tækifæri!
Í ár er matreiðslumeistarinn Philippe Girardon er gestur Perlunnar á Food&Fun. Árið 1993 vann hann Michelin stjörnu og fékk svo titilinn Meilleur Ouvrier de France árið 1997. Hann er mikill Íslandsvinur og hefur tekið þátt í að þjálfa flest alla íslenska matreiðslumeistara sem hafa tekið þátt í hinni heimsþekktu Paul Bocuse keppni.
Vissir þú?
Um launakjör stundakennara við Háskóla Íslands
Kjaramál
Guðlaug
Kristjánsdóttir
formaður Bandalags
háskólamanna
Sara Sigurðardóttir
formaður Stúdentaráðs