Fréttablaðið - 02.03.2012, Side 23
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Þ
essi uppskrift er mjög
góður grunnur til að
gera indverskan mat,“
segir Eyvindur Karls-
son, leikstjóri og grínari, um
lambakjötsréttinn indverska.
„Það er svo auðvelt að fikta sig
áfram með hann, ég nota til
dæmis alltaf meira chili en hér er
gefið upp, hef notað annars konar
hnetur og önnur krydd og svo
framvegis. Meira að segja eldað
hann með fiski í stað lambakjöts-
ins. Þessi réttur er líka fljóteld-
aður, miðað við indverskan mat,
tekur ekki nema svona einn og
hálfan tíma með öllum undirbún-
ingi.“
Eyvindur er mjög hrifinn af
indverskum mat og segist hafa
verið það síðan á unglingsárum.
„Undanfarin ár hef ég svo verið
að æfa mig í að elda hann og tek-
ist bara vel.“
Eyvindur býr í Hafnarfirði
með konu sinni og tveimur sonum
og hann segist yfirleitt sjá um
eldamennskuna á heimilinu. „Ég
reyni yfirleitt að vera kominn
heim þegar strákarnir koma úr
leikskólanum og þá finnst mér
notalegt að vera að dunda mér í
eldhúsinu á meðan þeir dunda við
eitthvað annað. Það er mín eftir-
lætis leið til að verja eftirmiðdög-
unum.“ fridrikab@frettabladid.is
2
Eyvindur Karlsson, leikstjóri og grínari, eldar indverskan lambakjötsrétt:
Veit fátt betra en að
dunda sér í eldhúsinu
Verk úr norrænni goðafræði, dulúðugt lands-
lag og spegilmynd samtímans eru meðal yrkis-
efna á sýningu listmálarans Einars Hákonarsonar
sem verður opnuð í Norræna húsinu á morgun.
Einar hefur haldið yfir 40 einkasýningar og tekið
þátt í fjölda samsýninga víða um lönd.
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
BORÐAPANTANIR Í SÍMA 517-4300
HUMARSALAT & HVÍTVÍN 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
BLÁSKEL & HVÍTVÍN 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
FERSKT
&
FREISTA
NDI
SPENNANDI
SJÁVARRÉTTA
TILBOÐ