Fréttablaðið - 02.03.2012, Page 50
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
Myndlistarmaðurinn Bald-
ur Helgason hlaut Master-
mind-verðlaun dagblaðsins
SF Weekly í San Fran-
cisco fyrir skemmstu, einn
þriggja af hundruðum þátt-
takenda.
„Þetta er stórt nafn á viðurkenn-
ingu og dálítið vandræðalegt að
taka á móti, ef ég á að vera alveg
hreinskilinn, en engu að síður
mjög mikill heiður,“ segir mynd-
listarmaðurinn Baldur Helgason
sem nýlega var sæmdur Mast-
ermind-verðlaunum vikublaðsins
SF Weekly í San Francisco. Verð-
launin eru veitt árlega listamönn-
um sem þykja skara fram úr á
sínu sviði af þátttakendum á San
Francisco-svæðinu.
Dómnefnd blaðsins valdi þrjá
sigurvegara úr hópi nokkur
hundruð þátttakenda sem sendu
inn verk og hljóta þeir Masterm-
ind-nafnbótina auk 1.500 dollara
styrks sem ætlaður er til áfram-
haldandi þróunar listarinnar. Þá
halda sigur vegararnir sýningu á
Artopia-listahátíðinni í San Fran-
cisco, en auk Baldurs hlutu lista-
menn sem sérhæfa sig í dansi og
ljósmyndun verðlaunin í ár.
Baldur hefur verið búsettur í
San Francisco í fjögur ár og er
kvæntur bandarískri konu. Hann
útskrifaðist með MA-gráðu í teikn-
ingu frá Academy of Art Univer-
sity síðastliðið vor, en áður hafði
hann lokið BA-námi í grafískri
hönnun við Listaháskóla Íslands.
Lokaverkefni Baldurs við Aca-
demy of Art University saman-
stóð annars vegar af olíuportretti
og hins vegar myndskreytingu á
þjóðsögunni um Búkollu, sem lista-
maðurinn vann með koparstungu-
aðferð. Síðan hefur hann starfað
sem myndlistarmaður í borginni
og segir Mastermind-titilinn held-
ur betur hafa vakið áhuga margra.
„SF Weekly er víðlesið blað sem
allir geta náð sér í á hverju götu-
horni, svo umfjöllunin þar hefur
komið sér mjög vel. Daginn eftir
afhendinguna var ég á forsíðunni
og sá í lestinni að allir voru að lesa
um mig. Ég hef fengið mörg sím-
töl frá fólki sem vill skoða verkin
mín eða kaupa og það er alveg frá-
bært,“ segir Baldur, en hann leik-
ur sér meðal annars mikið að port-
rett-forminu, setur viðfangsefnin í
nútímalegra form og hrærir í með
hjálp ímyndunaraflsins. „Margir
hafa áhuga á uppruna mínum og
þá set ég mig bara í kynningar-
fulltrúa-gírinn og reyni að selja
Ísland.“
kjartan@frettabladid.is
Vandræðalega stór titill
SPARSÖM MÁLTÍÐ EFTIR PICASSO
ENDURSKOÐUÐ
MAÐUR ÓNÁÐAÐUR AF STRÚT Í BLEIKA
HERBERGINU
MAÐUR MEÐ GÆSINA SÍNA
MASTERMIND Baldur hefur verið búsettur í San Francisco í fjögur ár og unir hag sínum vel í borginni.
Myndlist ★★★★ ★
Systrasögur – Tvíhent á striga
Sara og Sandra Vilbergsdætur
Listasafn ASÍ. Stendur til 4.mars 2012
Villtur æskublómi
Samkvæmt nýútgefinni listasögu kannast flestir núlifandi málarar við
angistina sem fylgir því að standa einn frammi fyrir auðum striga. Jafnvel
djörfustu málarar eru því jafnan búnir að mála á hann í huganum áður
en hann er strekktur á blindrammann. Sumir leita í hverskyns töframeðul
í örvæntingu sinni og fá þannig hugrekki ljónsins, því ekkert minna dugar
þegar takast skal á við léreftið af vestrænum þunga. Það breytir því ekki að
við hér á norðurhjaranum klínum einnig óhikað okkar málningu en látum
sakleysi barnsins duga. Með hópeflinu kemur svo hugrekkið sem á vantaði
og árangurinn lætur ekki á sér standa því flest málverk eru gleðigjafar í
kreppunni sem færa okkur von.
Listakonurnar Sara og Svanhildur Vilbergsdætur hafa síðustu tvö ár sótt
í sig veðrið og látið að sér kveða sem fjórhentur dúómálari. Þótt tvö ár séu
enginn tími hjá miðaldra listakonum eru framfarirnar augljósar og hraðar
líkt og hjá hvítvoðungi. Listakonurnar sverja sig í ætt við Düsseldorf-arm
hinnar þýsku hreyfingar Junge Wilde frá sjöunda áratugnum en virðast
einnig hafa heillast af
impressjónismanum.
Þá leita þær til endur-
reisnarinnar – því hann
var svo nákvæmur hann
Caravaggio – eftir inn-
blæstri, að ógleymdri
Fridu Kahlo sem
lesendur Fréttablaðsins
þekkja úr Þjóðleikhúsinu
og spurningaþættinum
Gettu betur en verk
hennar þóttu mjög súrr-
ealísk.
Í arinstofu lista-
safnsins hafa þær svo
komið fyrir munum úr
vinnustofu sinni og búið
til innsetningu og auðvitað má segja að öll sýningin sé einn heljarinnar
gjörningur sem sver sig í ætt við það flippaðasta hjá ungu kynslóðinni
og krúttunum en það er önnur saga. Verk systranna er frábært dæmi
um hvernig nýsköpun úthverfanna blómstrar þar sem ólík svið mætast í
svokölluðum sköpunarsmiðjum eins og Listamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum,
Toppstöðinni og Húsi hugmyndanna. Þetta spennandi nærumhverfi
systranna, þar sem listamenn leika við hvern sinn fingur og golfleikarar
slá í sínar kúlur, ratar inn í málverkin ásamt reynsluheimi kvenna og slúðri
dönsku blaðanna. Þetta á sérstaklega við um elstu verkin sem eru frískleg
og djörf þótt byrjandabragurinn sé aldrei fjarri góðu gamni, samanber hið
óborganlega Tiger in the Woods.
Í Sex undir pari má sjá syndugan golfleikara, kynlífsdúkku (sem reyndar
er barnaleikfang) og sex dverga. Verkið vekur upp frjáls hugrenningatengsl
og áleitna spurningu: Af hverju vantar sjöunda dverginn? Vera má að
honum hafi verið sleppt vegna tvíræðs titils verksins en þær systur eru
einmitt hallar undir orðaleiki (sbr. Homage með fromage og Sjálfsmynd
með pönnu og könnu). Rýni finnst hins vegar líklegra að vísað sé í táknmál
ævintýrisins um Mjallhvíti þar sem dvergarnir sjö standi fyrir sjö þroskastig
sem stúlkubarnið þarf að komast í gegnum áður en það verður að konu,
eða sjö dyggðir sem hún þarf að læra hjá dvergunum áður en hún verður
húsum hæf. Með því að sleppa lykildverg (líklega þeim hugrakka) úr
jöfnunni skapast andrúmsloft millibilsástands eða eilífrar æsku sem helst
út sýninguna alla. Og auðvitað hafa dvergar almennt séð eiginleika eilífrar
æsku sama hversu margir þeir eru þannig að skilaboðin gætu ekki verið
skýrari: Það mikilvægasta af öllu er að varðveita barnið sem í listamann-
inum býr. Í græskulausum leik barnsins er uppspretta allrar sköpunar og
nýsköpunar. Í einu af seinni verkum sýningarinnar birtist reyndar Rauðhetta
sem gefur vísbendingu um að skeiðinu sé að ljúka og jafnvel að umbreyt-
ingin sé að gerast allt of hratt! Ásmundur Ásmundsson
Niðurstaða: Það mikilvægasta af öllu er að varðveita barnið sem í lista-
manninum býr og það hafa þær systur Sara og Svanhildur svo sannarlega
gert og sverja sig þannig í ætt við íslenskar hefðir.
Skáholtskvartettinn heldur tónleika í Hlöð-
unni að Kvoslæk í Fljótshlíð sunnudaginn 4.
mars. Á efnisskránni verður meðal annars
hinn þekkti kvartett Dauðinn og stúlkan
eftir F. Schubert.
Kvartettinn skipa Jaap Schröder og Rut
Ingólfsdóttir fiðluleikarar, Svava Bern-
harðsdóttir sem spilar á víólu og Sigurður
Halldórsson sem leikur á selló. Þau hafa
starfað saman frá árinu 1997 í Skálholts-
kvartettinum sem kemur fram á hverju
sumri á Sumartónleikum í Skálholti og spil-
að víða í Evrópu.
Tónleikarnir að Kvoslæk hefjast klukkan
15 og verður boðið upp á kaffi í hléinu. - gun
Dauðinn og stúlkan
SKÁLHOLTSKVARTETTINN Kvartettinn hefur sjaldan spilað hér á landi
nema á sumartónleikum í Skálholti.
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
krakkar@frettabladid.is
Kári Steinn Karlsson
tók þátt í fyrsta
götuhlaupinu sínu þegar
hann var nýbyrjaður að
ganga. Í sumar keppir
hann í maraþoni á
Ólympíuleikunum
í London.
LEIKSÝNINGIN SKRÍMSLIÐ LITLA SYSTIR MÍN verður sýnd á Nordatlantens brygge í Kaup-
mannahöfn sunnudaginn 4. mars klukkan 14. Leikið verður á íslensku fyrir Íslendinga búsetta í Kaupmanna-
höfn. Skrímslið litla systir mín er saga af strák sem ferðast gegnum skuggalega skóga, um dimmar drekaslóðir
alla leið út á heimsenda og lærir í leiðinni að elska litlu systur sína.