Fréttablaðið - 02.03.2012, Síða 53
FÖSTUDAGUR 2. mars 2012 33
Vorkvöld í Reykjavík
- tónleikar í Eldborgarsal Hörpu
Afslátturinn fæst þegar greitt er með greiðslukorti frá
Íslandsbanka eða Byr í miðasölu Hörpu í síma 528 5050
eða á midasala@harpa.is.
Tilboðið gildir ekki í netsölu.
Söngvarar: Raggi Bjarna, Eivør Pálsdóttir,
Björn Jörundur, Diddú, Guðrún Gunnarsdóttir,
Óskar Pétursson, Bjarni Arason og Álftagerðisbræður.
Jón Ólafsson og hljómsveit
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Harpa mun óma á stórtónleikum Ragga Bjarna
í Eldborgarsalnum laugardaginn 12. maí kl. 20.
Viðskiptavinum Íslandsbanka bjóðast miðar á
þennan einstaka tónlistarviðburð
á 20% afslætti.
Miðasala er hafin
Miðaverð frá 4.900 kr. til 8.900 kr.
Almenn miðasala í miðasölu Hörpu,
á harpa.is, midi.is og í síma 528 5050.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
9
7
9
Jóhanna Helga Þorkelsdóttir
opnar einkasýningu í SÍM, Hafn-
arstræti 16, í Reykjavík. Sýningin
ber titilinn Í dag er góður dagur
og ég er í sólskinsskapi, og snýst
um vangaveltur um áhrif ljóss og
lita á viðkvæm sálartetur.
Jóhanna sýnir ljósverk með
áprentuðum filmum sem bera
myndir af litlum lífheimum og
eru unnar lag eftir lag. Verkin
eru baklýst með 10.000 Lux dags-
ljósaperum og hafa því mögu-
leika á að hafa bein áhrif á tauga-
kerfið eins og um raunverulegt
sólarljós væri að ræða.
Að auki sýnir Jóhanna verk
á vegg salarins og gefst áhorf-
endum kostur á að leggjast í sófa
með dáleiðslu í eyrunum. - gun
Áhrif ljóss
og lita
Í HRINGIÐU Eitt af verkum Jóhönnu í
SÍM salnum.
Listvinafélag Hallgrímskirkju
stendur fyrir tónleikum til heiðurs
Hafliða Hallgrímssyni í Hallgríms-
kirkju sunnudaginn 4. mars klukkan
17. Kammerkórinn Schola cantorum
flytur þar átta kórverk Hafliða sem
spanna tuttugu og fimm ár af hans
höfundaferli, það nýjasta frá þessu
ári.
Yfirskrift tónleikanna er Myndir
úr Myrtuskógi með vísan til tónverks-
ins Myrtuskógur fyrir kór, hörpu og
klukkur frá árinu 1993. Kórverkin
eru fjölbreytt að gerð. Þau eru samin
við texta úr ólíkum áttum, allt frá
færeyskri barnagælu til Sónhendu
eftir Michelangelo Buonarroti og
frá sálmaversi Húsafells-Bjarna til
Endurkomu Hannesar Péturssonar.
Í fjórum verkanna koma hljóðfæri
við sögu, orgel, harpa, trompet og
slagverk.
Schola cantorum vinnur nú að
hljóðritun á öllum viðfangsefnum tón-
leikanna. Stefnt er að því að þau komi
út á geisladiski síðar á þessu ári.
Schola cantorum er á þessum tón-
leikum skipaður 16 söngvurum.
Með kórnum koma fram hljóðfæra-
leikararnir Björn Steinar Sólbergs-
son orgelleikari, Elísabet Waage
hörpuleikari, Ásgeir H. Steingríms-
son trompetleikari og Frank Aarn-
ink slagverksleikari. Stjórnandi
er Hörður Áskelsson, organisti
Hallgrímskirkju.
Til heiðurs Hafliða
SCHOLA CANTORUM Á tónleikunum
í Hallgrímskirkju er kórinn skipaður
sextán söngvurum og með honum
koma fram fimm hljóðfæraleikarar.
Lesendur teiknimyndablaðsins
Comic Heroes Magazine hafa
valið Leðurblökumanninn, Bat-
man, sem bestu teiknimynda-
hetju allra tíma. Það kemur rit-
stjóra blaðsins, Jes Bickman,
ekki á óvart að því er fram
kemur í Politiken.
Hann segir að Batman, sem
kom fram 1939 og var hugarfóst-
ur Bobs Kane og Bills Finger, sé
einfaldlega flottasta og áhuga-
verðasta teiknimyndahetjan sem
fram hefur komið. Í öðru sæti var
Köngulóar maðurinn en Super-
man í því þriðja. Þess má geta að
Tinni var í sjötta sætinu.
Batman þyk-
ir langbestur
BATMAN Flottastur að mati lesenda
teiknimyndablaða.