Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 54
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR34
folk@frettabladid.is
ÁRA er söngvarinn Chris Martin í dag og fagnar
hann eflaust tímamótunum með konu sinni Gwyneth
Paltrow og börnum þeirra, Apple og Moses.
35
George Michael hefur mikinn
áhuga á að taka upp dúett með
söngkonunni Adele. Michael
afhenti henni verðlaun á Brit-
hátíðinni á dögunum og lýsti eftir
það yfir áhuga á að starfa með
henni.
„George er að vinna að sinni
fyrstu plötu eftir að hann veiktist
lífshættulega og hann er í góðu
formi. Hann hefur mikið dálæti
á Adele og þau eru orðnir góðir
vinir eftir að þau hittust á Brit-
hátíðinni,“ sagði heimildarmað-
ur blaðsins The Daily Mirror.
Michael veiktist í nóvember í
fyrra og þurfti að aflýsa tón-
leikaferð sinni um Evrópu. Hann
ætlar aftur í tónleikaferðalag
næstkomandi september.
Vill dúett
með Adele
FAÐMLAG George Michael og Adele
faðmast á Brit-hátíðinni. NORDICPHOTOS/GETTY
Rokkararnir í The Vaccines, með bassaleikarann Árna Hjörvar innan-
borðs, urðu fyrir valinu sem besti nýliðinn á NME-hátíðinni í London á
miðvikudagskvöld.
Florence and the Machine, The Horrors og Arctic Monkeys unnu
helstu verðlaunin á hátíðinni.
Florence and the Machine var valin besti sólótónlistarmaðurinn og
átti besta lagið, Shake It Out. The Horrors var verðlaunuð fyrir bestu
plötuna, Skying, og Arctic Monkeys var valin besta tónleikasveitin.
Kasabian var jafnframt valin besta breska hljómsveitin. Þá hlaut
Noel Gallagher, fyrrum meðlimur Oasis, heiðursverðlaun.
Vaccines verðlaunuð
BESTI NÝLIÐINN Hljómsveitin The Vaccines á NME-hátíðinni á miðvikudagskvöld.
NORDICPHOTOS/GETTY
Nicole Polizzi, betur þekkt sem
Snooki úr raunveruleikaþáttun-
um Jersey Shore, er ólétt. Snooki
er hvað þekktust fyrir mikið par-
týstand í raunveruleikaþáttunum
sem sýndir eru
á MTV og hafa
notið mikilla vin-
sælda vestanhafs.
Hún þarf því að
snúa við blaðinu í
kjölfar meðgöng-
unnar og segja
slúðurmiðlar vest-
anhafs að MTV
sé þegar byrjað
að hugsa um nýja
raunveruleika-
þáttaröð í kring-
um hina barnshafandi Snooki.
Barnfaðir Snooki er kærasti
hennar, Jionni LaValle.
Snooki ólétt
Tónlistarfólk landsins fjölmennti
í Hörpu á miðvikudagskvöldið
þar sem íslensku tónlistarverð-
launin fóru fram. Mugison fór
heim með fimm verðlaun á hátíð-
inni og var meðal annars val-
inn vinsælasti flytjandi ársins.
Kynnir kvöldsins var Vilhelm
Anton Jónsson og meðal þeirra
sem tróðu upp voru hljómsveit-
in Of Monsters and Men, Sóley,
Mugison og Ari Eldjárn.
FRÁBÆR STEMNING Á
TÓNLISTARVERÐLAUNUNUM
PAR Jón Atli Jónasson og Urður Hákonardóttir stilltu sér upp fyrir ljósmyndara.
TÓNELSK FJÖLSKYLDA KK mætti ásamt systur sinni Ellen Kristjáns-
dóttir og dóttur hennar, Elínu Ey.
GÓÐIR SAMAN Högni Egilsson, Bragi Valdimar Skúlason og Sigurður
Guðmundsson skemmtu sér saman.
BJARTASTA VONIN Þau Árni Guðjónsson, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir
og Brynjar Leifsson í hljómsveitinni Of Monsters and Men ásamt vini
þeirra, Sigurbirni Kristjánssyni.
GÓÐIR GESTIR Jónas Sig og Sverrir Leifsson.
FÖGNUÐU Grímur Atlason og Sigurjón Kjartansson létu sig ekki vanta í Hörpu.
Í STÍL Þorleifur Gaukur og Aron Snær báru af í klæðaburði á verðlaununum.
HLJÓMSKÁLINN Þeir Bragi Valdimar Skúlason, Sigtryggur Baldursson, Ívar Ívarsson og Guðmundur Kristinn Jónsson voru við tökur
á Hljómskálanum á tónlistarverðlaununum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON