Fréttablaðið - 09.03.2012, Síða 19
RIF
Ég hef gengið á milli húsa, talað við Rifsarana og fengið mjög góð við-brögð,“ segir Kári Viðarsson sem
ætlar að fá alla íbúa Rifs á Snæfellsnesi,
165 að tölu, á tónleika í Frystihúsinu á
sunnudaginn og slá þannig Íslandsmet
í mætingu miðað við höfðatölu. Tón-
leikarnir eru þeir fyrstu í húsinu sem
er nokkurs konar menningarmiðstöð
og Kári hefur nýtt til leikhússýninga
síðustu ár.
„Ég fékk þá hugmynd fyrir nokkru
að búa til heimildarmynd um tilraun
til að fá alla íbúa einhvers bæjar til að
mæta á einn afmarkaðan viðburð og
tæma þannig hús bæjarins eitt kvöld,“
segir Kári og telur Rif henta mjög vel
fyrir slíka tilraun enda sé mikil og
sterk eining meðal íbúa bæjarins. „Fólk
hefur sýnt áhuga á að mæta jafnvel þó
það viti ekki hvaða hljómsveitir munu
spila,“ segir hann en Kári mun ekki gefa
upp flytjendur á tónleikunum fyrr en
þeir hefjast en fæst þó til að gefa upp að
tónlistin sé fjölskylduvæn. „Þetta verð-
ur ekkert harðkjarnarokk eða breið-
holts hipphopp. Bara frábærir lista-
menn sem spila ljúfa, einlæga og fallega
tónlist fyrir Rifsara.“
Hvað með aðra en Rifsbúa, mega þeir
koma á tónleikana? „Nei, það er nú ekki
illa meint en öðrum en Rifsurum er ekki
boðið. Ég held hreinlega að það kæmust
ekki fleiri fyrir í húsinu en bæjarbúar.
Þetta er tilraun sem bara Rifsarar fá að
taka þátt í,“ segir Kári glettinn í bragði.
Tökur á heimildarmyndinni 100%
mæting fara fram samhliða tón leikunum.
En hvað ef markmiðið næst ekki? „Þetta
er auðvitað háleitt markmið og ekki víst
að það muni nást. Heiti myndarinnar
verður þó hið sama hver sem út-
koman verður. Hún mun ekki heita 99
prósent mæting,“ svarar Kári hlæjandi
„Fólk verður bara að horfa á heimildar-
myndina til að sjá hvernig fór.“ ■ sg
STEFNIR Á ÍSLANDS-
MET Í MÆTINGU
LANDIÐ Leikarinn og leikstjórinn Kári Viðarson stendur fyrir tónleikum í Frysti-
húsinu á Rifi á sunnudaginn. Hann ætlar að fylla salinn með öllum 165 íbúum
bæjarins og gera um það heimildarmyndina 100% mæting.
VAR FJÖLMENNT
Rif er þorp á utan-
verðu Snæfellsnesi, á
milli Hellissands og
Ólafsvíkur. Í Rifi var
til forna verslunar-
staður. Þar var mikið
útræði. Árið 1703
voru 1022 íbúar í
Rifsumdæmi.
BJARTSÝNN
Kári Viðarsson er bjart-
sýnn á að markmiðið um
100% mætingu Rifsbúa á
tónleikana muni nást.
MYND/ANTON
UNGT TÓNLISTARFÓLK
Nótan – uppskeruhátíð tónlistarskóla fer fram
í þriðja sinn á laugardag og sunnudag en þátt-
takendur eru af öllu landinu | WWW.NOTAN.IS
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
BORÐAPANTANIR Í SÍMA 517-4300
HUMARSALAT & HVÍTVÍN 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
BLÁSKEL & HVÍTVÍN 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
FERSKT
&
FREISTA
NDI
SPENNANDI
SJÁVARRÉTTA
TILBOÐ