Fréttablaðið - 09.03.2012, Síða 29
LÍFIÐ 9. MARS 2012 • 9
hagslegu umhverfi í dag og þeir þurfa
að sníða sér stakk eftir vexti. Þeir
hins vegar vilja líka sinna rann sóknar-
blaða mennsku en það er bara ekki
svigrúm til þess í mörgum tilvikum.
Þess vegna skil ég ekki af hverju
stjórnvöld hafa ekki stutt frekar við
rannsóknarblaðamennsku í landinu
með auknum fjárveitingum eins og
gerist á Norðurlöndunum. Það verður
að ræða opinskátt hvernig hægt er
að styrkja blaðamenn til frekari rann-
sókna, því sú tegund blaðamennsku
á verulega undir högg að sækja um
allan heim. Viljum við að hún hverfi
hér á landi? Það eru margir fyrr-
verandi blaða- og fréttamenn á þingi
og mér finnst hreinlega að þeir ættu
að taka höndum saman og koma
þessu í farveg. Auðvitað verður
að passa hagsmunaárekstra sem
kunna að verða við það að hið opin-
bera styrki rannsóknir blaðamanna
en þetta verður bara að ræða á fag-
legum grundvelli. Á Norðurlöndunum
er sams konar fyrirkomulag og það
virðist ríkja sátt um það.
Hvernig fer nokkuð venjuleg-
ur dagur í þínu starfi fram? Ég
var afskaplega þakklát þegar ég
fékk að fara yfir í Ísland í dag. Það
þýðir að ég hef meiri tíma til að
vinna frétta skýringar og önnur mál.
Markmið þáttarins er að hafa sem
mesta breidd og fjölbreytt efni sem
allir ættu að hafa áhuga á. Ég get
tekið allt fyrir sem ég hef áhuga á
að gera og hef fengið mikið svigrúm
til þess. Samstarfsfólk mitt í Íslandi
í dag er einstaklega skemmtilegt og
það eru forréttindi að hlakka til að
mæta í vinnuna. Þetta er skapandi
og kröftugur hópur sem gaman er
að vera í kringum og það sama á
við um fréttastofuna sem maður um-
gengst alla daga. Stundum koma
hektískir fréttadagar eins og eld-
gos, jarðskjálftar eða stórtíðindi úr
pólitíkinni. Þá er mjög gaman. Núna
er Landsdómur í forgrunni í allri um-
fjöllun. Sumir dagar geta síðan verið
þægilegir og nógur tími gefst til að
vinna hin fjölbreyttustu mál. Ég er
mjög áhugasöm um sakamál og hef
verið að fjalla um þau að undan-
förnu en síðan finnst mér ofsalega
gefandi að vinna mál úr heilbrigðis-
og skólakerfinu. Ég hef gaman af því
að hitta nýtt fólk og fjalla um ólíkustu
hluti, ég held ég gæti ekki verið í
betra starfi. Maður veit líka aldrei
hvernig dagurinn verður þegar maður
starfar sem fréttamaður, það er það
skemmtilegasta í faginu.
Þú ert í álagsstarfi – hvað gerirðu
fyrir sjálfið þegar þú ert ekki að
störfum? Þegar ég hef tíma þá reyni
ég að fara í hotjóga og gleyma mér
þar. Ég er mikil áhugamanneskja
um heilbrigt matarræði og get alveg
gleymt mér við að búa til græna
drykki og sjeik við miklar vin sældir
sambýlismanns míns eða þannig. Ég
er líka mikið að stúdera hráfæði þó
ég sé á þeirri skoðun að ég gæti ekki
eingöngu verið á því í þessu kalda
landi. Ég elska smjör, rjóma og ís-
lenskt lambakjöt alltof mikið til að
sleppa því. Það eru hins vegar meiri
líkur á því að við höldum heilsunni
okkar ef við borðum hreinan og heil-
brigðan mat. Göngutúrar, sund og
lestur góðra bóka eru líka í uppáhaldi.
Hvar sérðu sjálfa þig eftir tíu ár?
Ég sé mig í fjölmiðlum ýmist í sjón-
varpi, útvarpi eða á blaði. Ég hef
aldrei unnið á dagblaði á mínum
fréttaferli og það er eitthvað sem ég
gæti alveg hugsað mér þegar ég fæ
leið á ljósvakahraðanum. Mig langar
líka að skrifa bækur. Ég er með
nokkrar hugmyndir í kollinum sem
ég vona að ég geti einhvern tímann
sett niður á blað. Síðan finnst mér að
ég verði að skrifa eina eða tvær ævi-
sögur. Sjálf elska ég að lesa slíkar
bækur og er með nokkrar konur í
huga sem mig langar að skrifa um.
Áttu þinn uppáhaldsfrasa? „Fyrsta
frétt er ekki fyrsta frétt nema hún sé
fyrsta frétt,“ Logi Bergmann. Þetta er
minn uppáhaldsfrasi í vinnunni. Hann
þarf ekki að útskýra fyrir neinum
fréttamanni sem starfar á ljósvaka.
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
RR
\\\\
TBW
TBW
A
ÚTSALA Á ÖLLUM ÞREK OG LYFTINGAVÖRUM
Hlaupa-
bretti
Primus
Bekkpressubekkur með fótatæki
Verso
fjölþjálfar
Classic
Lyftingastöð
Lóð og
handlóð
50 kg.
lóðasett
Giro P
Þrekhjól