Fréttablaðið - 09.03.2012, Side 34

Fréttablaðið - 09.03.2012, Side 34
14 • LÍFIÐ 9. MARS 2012 Hvenær byrjaðir þú fyrst að æfa íþróttir? Ég var sjö ára gömul þegar ég byrjaði að æfa handbolta. Ferillinn í nokkrum orðum? Frjálsíþrótta- ferillinn var ótrúlega skemmti legur, margir sigrar, mikið af ferðalögum, bjó í USA, kynntist skemmtilegu fólki alls staðar að, og ég endaði bara nokkuð sátt. Hvaða hreyfingu stundar þú í dag? Í dag er ég að æfa crossfit en þar upplifi ég þessa keppni við sjálfan mig sem ég var farin að sakna. Svo tek ég spretti vikulega. Hversu oft í viku hreyfir þú þig að meðal- tali? Fjórum til fimm sinnum í viku. Hefurðu lent í því að fá leið á íþróttum? Já, eftir að ég hætti í frjálsum fannst mér erfitt að finna mér eitthvað nógu skemmtilegt og eitthvað sem var nógu mikil áskorun. Hvað gerirðu þá? Þá tek ég mér bara smá hvíld, ég leyfi mér hvíld í ákveðið marga daga. Hvað gerirðu til að dekra við kroppinn? Nú, ég fer á æfingu, einnig hef ég kíkt í Foam Flex tímana í Sporthúsinu. Nú áttu tvö ung börn – breyttirðu miklu í æfingunum á meðgöngunni? Mér líður nú eins og ég eigi að gefa voða flott svar núna sem þjálfari en sann leikurinn er sá að á fyrri meðgöngunni minni æfði ég ekkert, ég var að leggja skóna á hilluna og varð ólétt á sama tíma. Á þeirri seinni var ég dugleg í fimm mánuði en þá var ég orðin þreytt og vildi frekar fara út að leika með eldri stráknum mínum en að eyða orkunni í æfingar. Fékkstu æði fyrir einhverjum sér stökum mat? Ég var í súra pakkanum á fyrri meðgöngunni, já og kókoskúlunum í Bæjarbakaríi, en engu sérstöku á þeirri seinni. Þú auglýstir nýlega eftir íþrótta- fólki í átak á síðunni þinni, siljaulfars. is. Hvernig gekk að fá fólk og út á hvað gengur átakið? Það gekk ofsa- lega vel að fá þátttakendur og dró ég á endanum tvo íþróttamenn úr pottinum. Átakið gengur út á að þeir bæti sig sem mest í hraða á einum mánuði en þeir æfa hjá mér tvisvar í viku. Mér finnst alveg rosalega gaman að vinna með íþróttafólk en mínar helstu áherslur eru hraðþjálfun. Hversu mikilvæga telurðu markmiða- setningu vera í líkamsræktinni? Hún skiptir miklu meira máli en fólk gerir sér grein fyrir. Það eiga allir að vera með markmið – og helst að láta það ekki bara snúast um vigtina! Eitthvað að lokum? Settu þér mark- mið, reyndu alltaf að bæta þig og hafðu gaman af því að stunda hreyfingu. Og já, ekki borða mikið af kókosbollum á meðgöngu! HEILSUHEIMUR MIÐLAR REYNSLUNNI TIL ANNARRA ÍÞRÓTTAMANNA Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona, þjálfari og tveggja barna móðir. ÍS L E N SK A S IA .IS M S A 5 79 62 0 1/ 12 100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN MS.IS PRÓTEINDRYKKURINN SEM ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.