Fréttablaðið - 09.03.2012, Page 34
14 • LÍFIÐ 9. MARS 2012
Hvenær byrjaðir þú fyrst að æfa íþróttir?
Ég var sjö ára gömul þegar ég byrjaði
að æfa handbolta.
Ferillinn í nokkrum orðum? Frjálsíþrótta-
ferillinn var ótrúlega skemmti legur,
margir sigrar, mikið af ferðalögum, bjó
í USA, kynntist skemmtilegu fólki alls
staðar að, og ég endaði bara nokkuð
sátt.
Hvaða hreyfingu stundar þú í dag? Í dag
er ég að æfa crossfit en þar upplifi ég
þessa keppni við sjálfan mig sem ég
var farin að sakna. Svo tek ég spretti
vikulega.
Hversu oft í viku hreyfir þú þig að meðal-
tali? Fjórum til fimm sinnum í viku.
Hefurðu lent í því að fá leið á íþróttum?
Já, eftir að ég hætti í frjálsum fannst
mér erfitt að finna mér eitthvað nógu
skemmtilegt og eitthvað sem var nógu
mikil áskorun.
Hvað gerirðu þá? Þá tek ég mér bara
smá hvíld, ég leyfi mér hvíld í ákveðið
marga daga.
Hvað gerirðu til að dekra við kroppinn?
Nú, ég fer á æfingu, einnig hef ég kíkt í
Foam Flex tímana í Sporthúsinu.
Nú áttu tvö ung börn – breyttirðu miklu
í æfingunum á meðgöngunni? Mér líður
nú eins og ég eigi að gefa voða flott
svar núna sem þjálfari en sann leikurinn
er sá að á fyrri meðgöngunni minni
æfði ég ekkert, ég var að leggja skóna
á hilluna og varð ólétt á sama tíma.
Á þeirri seinni var ég dugleg í fimm
mánuði en þá var ég orðin þreytt og vildi
frekar fara út að leika með eldri stráknum
mínum en að eyða orkunni í æfingar.
Fékkstu æði fyrir einhverjum sér stökum
mat? Ég var í súra pakkanum á fyrri
meðgöngunni, já og kókoskúlunum í
Bæjarbakaríi, en engu sérstöku á þeirri
seinni.
Þú auglýstir nýlega eftir íþrótta-
fólki í átak á síðunni þinni, siljaulfars.
is. Hvernig gekk að fá fólk og út á
hvað gengur átakið? Það gekk ofsa-
lega vel að fá þátttakendur og dró ég á
endanum tvo íþróttamenn úr pottinum.
Átakið gengur út á að þeir bæti sig sem
mest í hraða á einum mánuði en þeir
æfa hjá mér tvisvar í viku. Mér finnst
alveg rosalega gaman að vinna með
íþróttafólk en mínar helstu áherslur eru
hraðþjálfun.
Hversu mikilvæga telurðu markmiða-
setningu vera í líkamsræktinni? Hún
skiptir miklu meira máli en fólk gerir sér
grein fyrir. Það eiga allir að vera með
markmið – og helst að láta það ekki
bara snúast um vigtina!
Eitthvað að lokum? Settu þér mark-
mið, reyndu alltaf að bæta þig og hafðu
gaman af því að stunda hreyfingu. Og
já, ekki borða mikið af kókosbollum á
meðgöngu!
HEILSUHEIMUR
MIÐLAR REYNSLUNNI TIL
ANNARRA ÍÞRÓTTAMANNA
Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona,
þjálfari og tveggja barna móðir.
ÍS
L
E
N
SK
A
S
IA
.IS
M
S
A
5
79
62
0
1/
12
100%
HÁGÆÐA
MYSUPRÓTEIN
MS.IS
PRÓTEINDRYKKURINN
SEM ÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF