Fréttablaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 12
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR12
Réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik
„Ég nota mínar
Aukakrónur
í bensín“
Mánudagur » ÓB MiðvikudagurÞriðjudagur » Jói Útherji
Næstum 30 þúsund manns nota Aukakrónur til að kaupa allt frá matvælum til trygginga
hjá tæplega 300 fyrirtækjum um land allt. Byrjaðu að safna Aukakrónum strax í dag.
NOREGUR Óhug setti að við stöddum
í réttarsal í Ósló í gær þegar
Anders Behring Breivik lýsti því
hvernig hann skaut 69 manns til
bana í Útey síðastliðið sumar.
Hann ætlaði sér að drepa alla þá
600 sem voru á eyjunni.
„„Þið deyið í dag marxistar,“
æpti ég,“ lýsti Breivik fyrir
réttinum í gær, á fimmta degi
réttar haldanna yfir honum.
Ætlunin var að ljúka yfirheyrslum
yfir honum í gær, en það tókst ekki
og verður því haldið áfram eftir
helgi. Hann gaf vitnisburð um alla
atburðarrásina í Útey í gær.
Breivik segist ekki muna eftir
stórum hluta þess tíma sem hann
eyddi í Útey þann 22. júlí. Hann
gat þó lýst sumum morðanna í
miklum smáatriðum. Hann sagði
til dæmis frá því þegar hann fór
inn í matstofu þar sem hann drap
fjölda ungmenna. Sum þeirra
voru sem lömuð og hreyfðu sig
ekki jafnvel þótt Breivik þyrfti að
gera hlé á skothríðinni til þess að
hlaða byssur sínar. Sum þóttust
vera látin, en hann sagðist hafa
skotið þau líka. Hann sagðist hafa
undrast viðbrögð þeirra sem stóðu
stjarfir meðan hann athafnaði sig.
Viðbrögðin hafi komið honum á
óvart, þau hafi ekki verið eins og
hann hafi séð í sjónvarpi. „Fólk
grátbað mig um að þyrma lífi sínu.
Ég skaut það bara í höfuðið.“
Hann hélt svo áfram för sinni
um eyjuna og lokkaði unglinga
úr felum með því að segja þeim
að hann væri kominn til að gæta
öryggis þeirra. Þá skaut hann eins
og hann gat.
Þá sagði Breivik frá því að hann
hafi átt mjög erfitt með að skjóta
fyrstu manneskjuna til bana. „Það
voru hundrað raddir í höfðinu á
mér sem sögðu „ekki gera það,
ekki gera það“,“ sagði hann. Eftir
Þótti erfitt að drepa
fyrsta fórnarlambið
Anders Behring Breivik lýsti í gær morðum sínum í Útey fyrir rétti í Ósló.
Mikinn óhug setti að viðstöddum þegar hann lýsti því í smáatriðum hvernig
hann myrti ungmenni sem grátbáðu hann að þyrma sér.
BREIVIK Í RÉTTARSALNUM Anders Behring Breivik hélt áfram vitnisburði sínum í gær
og lýsti fyrir viðstöddum morðunum í Útey með nákvæmum hætti. NORDICPHOTOS/AFP
Það voru hundrað
raddir í höfðinu á mér
sem sögðu „ekki gera það,
ekki gera það”.
ANDERS BEHRING BREIVIK
FJÖLDAMORÐINGI