Fréttablaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 18
21. apríl 2012 LAUGARDAGUR
FÖGNUM
MEÐ MILLJÓNUM!
SUMRI
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA Skráðu þig sem aðdáanda á
facebook.com/lotto.is
Fimmfaldur Lottópottur stefnir í 38 milljónir.
Leyfðu þér smá Lottó!
Aðalfundur
Aðalfundur samtaka Psoriasis og exem-
sjúklinga “Spoex” verður haldinn í sal actavis
Dalshrauni 1, Hafnarfirði fimmtudaginn
26. apríl 2012 og hefst fundurinn kl.19.00
Dagskrá: Aðalfundarstörf
Kaffiveitingar í boði
Félagar fjölmennum
Sífellt fleiri öryrkjar sem hafa búið í öðru norrænu ríki
leita til ráðgjafa ÖBÍ vegna þess
að þeir fá ekki örorkulífeyris-
greiðslur frá almannatrygginga-
kerfinu frá því landi sem þeir
bjuggu í. Meginástæðan er sú að
mismunandi lög og reglur gilda
í hverju landi og ólík túlkun og
framkvæmd þeirra. Þá getur fólk
verið með örorkumat í einu nor-
rænu landi á sama tíma og það
fær ekki mat í öðru. Mismunandi
matsaðferðum er beitt og ekki er
tekið tillit til örorkumats í öðrum
löndum.
Vandamálum hefur fjölgað
á síðustu árum meðal annars
vegna kreppunnar og breytts
pólitísks landslags. Þeir sem fá
ekki greiðslur erlendis frá eiga
í erfiðleikum með að framfleyta
sér hér á landi.
Tvö dæmi um öryrkja
sem búa á Íslandi:
Kona um fimmtugt fær ekki
greiðslur frá Danmörku þar sem
hún bjó í 20 ár. Á Íslandi veikist
hún og verður óvinnufær. Trygg-
ingastofnun ríkisins (TR) sam-
þykkir að hún fái tíma bundið
örorkumat. Hún fær 52% af þeim
örorkulífeyrisgreiðslum sem hún
á rétt á frá Íslandi. Það sem upp
á vantar á hún að fá frá Dan-
mörku. Pensionsstyrelsen í Dan-
mörku metur að hún eigi ekki
rétt á greiðslum þar sem starfs-
geta hennar sé ekki varanlega
skert og að hún geti, eftir mikla
endurhæfingu, hugsanlega unnið
í hlutastarfi og fengið aðstoð
samkvæmt dönskum lögum sem
nefnist „fleksjob“. Vandamálið
er að á Íslandi fær fólk sjaldnast
varanlegt örorkumat og úr lausnin
„fleksjob“ er ekki til á Íslandi.
Konan fær því aðeins 52% af
örorkulífeyrisgreiðslum sem hún
á rétt á og engin lausn í sjónmáli
fyrr en hún kemst á eftirlaun því
þá fær hún það sem upp á vantar
frá Danmörku.
Karlmaður, rúmlega fertugur,
fær ekki greiðslur frá Svíþjóð
þar sem hann bjó í 20 ár. Þegar
hann bjó í Svíþjóð fékk hann tíma-
bundið örorkumat. Hann flutti
síðan til Íslands og fékk örorku-
mat. Þegar sænska örorku matið
rann út sótti hann um aftur en
var synjað. Ísland greiðir nú
aðeins hluta þeirra örorkulífeyris-
greiðslna sem hann á rétt á eða
um 30% þar sem hann hafði ekki
búið lengi hérlendis þegar hann
varð öryrki. Það sem upp á vantar
á hann að sækja til Svíþjóðar.
Försäkringskassan í Svíþjóð mat
hann þannig að starfsgeta hans
væri ekki skert um að minnsta
kosti fjórðung hvað snertir öll
störf á vinnumarkaðnum, þar með
talin störf á vernduðum vinnu-
stöðum og önnur vernduð störf.
Til að fá örorkumat í Svíþjóð
yrði skerðingin að vera varan-
leg um fyrirsjáanlega framtíð og
allir möguleikar á endurhæfingu
að fullu nýttir. Ljóst er að hann
getur ekki framfleytt sér þrátt
fyrir að hann fái fjárhagsaðstoð
frá sveitar félagi sem er neyðar-
aðstoð til skamms tíma.
Reglur á Íslandi
Réttur til örorkulífeyris á Íslandi
myndast á aldrinum 16-67 ára og
miðast við að viðkomandi búi í
40 ár hérlendis. Örorkulífeyris-
greiðslur eru uppreiknaðar eftir
ákveðinni reiknireglu og skiptir
ekki máli hvort viðkomandi sé
með íslenskan ríkisborgararétt.
Vert er að benda á að frá 1. janúar
2010 lýtur endurhæfingar lífeyrir
sömu reglum um búsetuhlut-
fallsútreikning og örorkulífeyrir.
Eftir breytinguna geta þeir sem
búið hafa erlendis lent í þeirri
stöðu að fá skertan endurhæf-
ingarlífeyri á Íslandi og engar
greiðslur erlendis frá þar sem
hann er ekki greiddur úr landi.
Því er fólki bent á að sækja um
örorkulífeyri en sú leið getur
leitt til þess að fólk fái synjun á
örorkumati erlendis á þeim for-
sendum að endurhæfing hafi ekki
verið fullreynd.
Skortur á aðstoð
Starfsfólk TR aðstoðar fólk
við að sækja um örorkulífeyri
í öðrum löndum. Ef umsókn er
synjað fær fólk ekki aðstoð við að
kæra. Hver og einn þarf sjálfur
að leita réttar síns sem getur
reynst erfitt fyrir fólk með fötlun
eða alvarlegan sjúkdóm.
Brýnt að leysa sem fyrst
Umsóknarferlið um örorkulífeyri
erlendis frá getur tekið nokkur ár.
Á meðan lifir fólk á tekjum undir
lágmarksframfærslu. Rétt er að
öryrkjar fái óskertar greiðslur í
sínu landi á meðan beðið er eftir
niðurstöðu erlendis frá og að
Norðurlöndin skipti kostnaði á
milli sín eftir ákveðnum reglum.
Þá þarf að leysa mál þeirra sem
fá synjun erlendis þrátt fyrir gilt
örorkumat á Íslandi. Mögulega
þarf að setja reglur um að örorku-
mat í einu Norðurlandanna gildi
í öðru.
ÖBÍ hefur unnið markvisst
að því að koma þessum málum
á framfæri á norrænum vett-
vangi og hér innanlands en ljóst
er að betur má ef duga skal. Mál
þessi þarf að leysa sem allra
fyrst. Samræma þarf lög og
reglur um örorkumat milli nor-
rænu landanna. Einnig er nauð-
synlegt að fólk fái aðstoð við að
leita réttar síns hjá opinberum
aðilum. Málum á eftir að fjölga á
næstu árum vegna aukins flutn-
ings fólks á milli landa. Stjórn-
málamenn ættu að láta sér þessi
mál varða til að þeir öryrkjar,
sem hafa búið í fleiri en einu
Norður landanna, getið notið sjálf-
sagðra mannréttinda í norræna
velferðar kerfinu sem við viljum
kenna okkur við.
Vandamál öryrkja
á Norðurlöndum
Samfélagsmál
Lilja
Þorgeirsdóttir
framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalags
Íslands
ÖBÍ hefur unnið
markvisst að því
að koma þessum málum
á framfæri á norrænum
vettvangi og hér innan-
lands en ljóst er að betur
má ef duga skal.