Fréttablaðið - 21.04.2012, Blaðsíða 36
Heilsa LAUGARDAGUR 21. APRÍL 20122
Fita er lífsnauðsynleg og skiptir miklu máli,
bæði hvað varðar andlega og líkamlega heilsu.
Hún örvar efnaskipti og hjálpar til við brennslu
hitaeininga. Fita myndar kynhormón og styrkir
húð, hár og neglur. Hún mýkir þarmana og auð-
veldar þannig meltinguna. Fita styrkir sömuleið-
is frumuhimnuna og hjálpar líkamanum að
verjast sjúkdómum.
Frumuhimnan sem ver frumurnar gegn
sjúkdómum er mynduð úr þrenns konar fitu
í nokkurn veginn jöfnum hlutföllum; mettaðri
fitu, fjölómettaðri fitu (omega-6) og einómett-
aðri fitu (omega-3). Þess vegna er mikil vægt
að fá allar tegundir fitu en gæta þess að
uppsprettan sé góð. Best er að mettaða
fitan komi sem mest úr jurtaríkinu og
má hún gjarnan vera pálma- eða kókos-
olía. Omega-6 er meðal annars að finna
í ólífum, möndlum, valhnetum, sól-
blómafræjum, sesamfræjum og olíum
sem unnar eru úr þessum fæðutegund-
um. Hún er einnig í lárperum, grænu
grænmeti og sojabaunum. Ofneysla á
Omega-6 er nær aldrei vandamál og er
um að gera að strá hnetum og fræjum yfir
mat og salöt. Eins ætti að nota lárperur
sem oftast, til dæmis í salöt, sem álegg og í ídýfur.
Omega-3 er helst að finna í hörfræjum, feitum
fiski og lýsi en einnig í þangi. Omega-3 fitusýr-
ur gegna mikilvægu hlutverki við flutning tauga-
boða frá einni taugafrumu til annarrar og hafa
reynst vel gegn þunglyndi. Um helmingur heil-
ans er myndaður úr fitusýrum og hafa þær
mikil áhrif á starfsemi hans. Fitusýrurnar eru
nauðsynlegar til að mynda hormónið seró-
tónín sem hefur örvandi áhrif á skapferli og
taugakerfi.
Heimild: Léttara og betra líf. Átta vikna heilsuáætlun
Lene Hansson. Vaka Helgafell.
Nauðsynleg fyrir andlega
og líkamlega heilsu
Ásta Arnardóttir jógakenn-ari og leiðsögukona stund-ar jóga og hugleiðslu á fjöll-
um. Hún segir heilunarkraft búa í
náttúrunni sem ekki megi vanmeta
í hraða hversdagsins.
„Grunnstefið í jóga er að vera
hér og nú og náttúran er yndisleg-
ur kennari í að færa okkur í núið,“
segir Ásta. „Nútíma borgarsam-
félagi fylgir mikil streita en marg-
ir sem ganga út í náttúruna sér til
heilsubótar finna þar frið og ró. Oft
fylgir því líka að fólk á auðveldara
með að greina aðalatriðin og for-
gangsraða upp á nýtt. Það býr gíf-
urlegur heilunarkraftur í nátt-
úrunni og það gerir manni gott
að fara út, þó það sé bara í stutta
gönguferð.“
Ásta hefur verið leiðsögumaður
í yfir tuttugu ár og kennt jóga í tíu
ár en hún rekur Lótus jógasetur
ásamt Auði Bjarnadóttur. Sjálf
stendur Ásta fyrir jógaferðum á
vegum Augnabliksferða en segist
ekki síður njóta þess að fara um há-
lendið ein. Hún á þó erfitt með að
nefna einn uppáhaldsstað.
„Foreldrar mínir voru í skát-
unum og ég fór mikið á fjöll með
þeim. Tengingin við náttúruna
hefur verið til staðar frá því ég var
lítil. Hálendi Íslands á stóran stað í
hjarta mér og margir staðir svo fal-
legir að ég get ekki gert upp á milli.
Því miður eru margir þeirra horfnir
í dag sem er sorgleg staðreynd. Það
eru ekki mörg svæði eftir í heimin-
um, ósnortin,“ segir Ásta en nátt-
úruvernd er henni hugleikin.
„Komandi kynslóðir verða að
eiga aðgang að gjöfum náttúrunn-
ar eins og við,“ segir hún en eitt af
markmiðum jógaferðanna henn-
ar á fjöll er að efla meðvitund um
mikilvægi þess að vernda lífríki
jarðarinnar.
„Það er mikilvægt að þakka
fyrir góðar gjafir lífsins, hálendis-
víðernið og smæstu jurtir. Sem
betur fer er náttúran hér enn þá
hrein og hægt að drekka úr lækj-
um,“ segir Ásta og bætir því við að
góða heilsu sé ekki hægt að öðlast
með einni vítamínpillu, hún komi
í samvinnu við náttúruna.
„Heilsa okkar er samofin heilsu
jarðarinnar. Við verðum að fá
ferskt vatn, hreint loft og næringin
sem við fáum úr jurta og dýrarík-
inu verður að vera ómenguð. Um
leið og við umgöngust jörðina af
virðingu og nærgætni þá erum við
að umgangast sjálf okkur af virð-
ingu og nærgætni.“
Tengist náttúrunni
Heilsa mannana er samofin heilsu jarðarinnar segir Ásta Arnardóttir jógakennari og
leiðsögukona en hún stundar hugleiðslu og jóga úti í náttúrunni.
Ásta Arnardóttir, jógakennari hjá Lótus jógasetri og leiðsögukona, segir heilunarkraft búa í náttúrunni. MYND/PJETUR
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir,
ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur
sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér
allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.