Fréttablaðið - 23.04.2012, Síða 4

Fréttablaðið - 23.04.2012, Síða 4
23. apríl 2012 MÁNUDAGUR4 GENGIÐ 20.04.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 228,5814 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,00 126,60 203,06 204,04 166,25 167,19 22,346 22,476 22,041 22,171 18,809 18,919 1,5408 1,5498 194,60 195,76 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Rakatæki og lofthreinsi- tæki frá Stadler Form Minna ryk, minni þreyta. Betri einbeiting, betri svefn. FRÉTTASKÝRING Hver er staða Mitts Romneys í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum? Þegar Rick Santorum tilkynnti að hann hygðist draga sig út úr bar- áttunni um útnefningu Repúblik- anaflokksins fyrir forsetakosning- arnar í Bandaríkjunum í haust varð endanlega ljóst það sem lengi hafði stefnt í. Mitt Romney átti útnefn- inguna vísa. Romney hefur þegar hafið kosn- ingabaráttuna og lætur einskis ófreistað til að koma höggi á Bar- ack Obama, sitjandi forseta og frambjóðanda demókrata. Enn sem komið er hefur Obama forystu gegn Romney í flestum skoðanakönnunum, en sú staða gæti hæglega breyst. Helstu vandamál Romneys eiga sér rætur í forvalsbaráttunni þar sem baráttan var einstaklega hörð og ekkert gefið eftir. Andstæðingar Romneys, aðal- lega Santorum og Newt Gingrich, hafa deilt harkalega á Romney vegna ístöðuleysis hans í mörgum lykilmálum og hafa sagst efast um að hann sé íhaldsmaður í raun. Í baráttunni hefur hann því fært sig talsvert út á hægri vænginn til að elta fylgi. Það hefur óhjákvæmilega kostað Romney nokkuð fylgi hjá óákveðn- um kjósendum, en það er jafn- an lykillinn að sigri í kosningum. Auk þess stendur hann höllum fæti meðal kvenna og kjósenda af róm- önskum uppruna. Þá glímir Romney einnig við ímyndarvanda. Bæði þykir hann ekki vera hrífandi persónuleiki, þurr á manninn og hálf litlaus, en einnig líður hann fyrir eigið ríkidæmi. Hann hefur til dæmis látið falla nokkur ummæli sem þykja bera þess vott að hann sé úr tengslum við almenna kjós- endur. Loks komst í hámæli fyrir skemmstu að hann greiddi talsvert lægri hluta af gríðarháum tekjum sínum í skatt en almennir launa- menn úr sínu launaumslagi. Þrátt fyrir allt ofansagt á Obama sigurinn alls ekki vísan þar sem hann þarf að standa með sínum embættisverkum, sem mörgum þykja ekki hafa skilað ásættanleg- um árangri við að örva efnahags- lífið og sigrast á atvinnuleysi. Baráttan er þegar hafin og Rom- ney og Obama eru að safna pen- ingum fyrir dýrustu kosningabar- áttu allra tíma. Hvor um sig stefnir að því að hafa um milljarð dala til reiðu til að koma boðskap sínum á framfæri. Ómögulegt er að spá um hvern- ig fer, en staðreynd málsins er að sitjandi forsetar hafa jafnan borið sigur úr býtum. Möguleikar Romneys gegn Obama felast eflaust í að vinna hylli á miðjunni án þess þó að ganga gegn fyrri yfirlýsingum og loforðum til kjósenda yst á hægri vængnum. thorgils@frettabladid.is Kapphlaupið um miðjuna er hafið Mitt Romney á útnefningu repúblikana vísa fyrir forsetakosningarnar. Hann er enn á eftir Obama forseta í könnunum og á mikið starf óunnið við að ávinna sér traust óháðra kjósenda eftir yfirlýsingar í harðvítugu forvali flokksins. TALAR TIL FÓLKSINS Mitt Romney veit sem er að lykillinn að sigri í forsetakosningum er að ná til fólksins. Hann settist niður með fólki í Pennsylvaníuríki fyrr í vikunni og ræddi málin. NORDICPHOTOS/AFP ÖRYGGISMÁL Reiknað er með að varðskipið Þór verði afhent Land- helgisgæslunni í vikunni og verði þá siglt heim til Íslands. Þór hefur verið í Bergen í Noregi frá 9. febrú- ar síðastliðinn þar sem skipt var um gallaða aðalvél í skipinu. Þór fór í prufusiglingu á laug- ardag frá Bergen þar sem gerð- ar voru titrings-, eldsneytis- og hraðamælingar. Rolls Royce í Nor- egi skipti um aðra aðalvél skips- ins vegna titrings sem mældist í skipinu eftir að það kom til Íslands síðastliðið haust og er þessi fram- kvæmd öll á ábyrgð Rolls Royce og ber Landhelgisgæslan ekki neinn kostnað af framkvæmdunum, og ábyrgðartími véla og skips lengist sem nemur framkvæmdatímanum. Siglingin sem stóð yfir í um 12 klukkustundir gekk vel að sögn skipherra. Enginn óeðlilegur titr- ingur mældist í siglingunni og virðist sem ganghraði varðskips- ins hafi aukist frá því sem áður var því hann mældist 20,1 sjómílur en áður mældist hann 19,45 sjómílur. Síðastliðna daga hefur áhöfn varð- skipsins jafnframt setið ýmis nám- skeið sem tengjast búnaði skipsins. - shá Prufusigling varðskipsins lofar góðu og ganghraði hefur aukist eftir viðgerð: Varðskipið Þór senn á heimleið ÞÓR Í BERGEN Skipið hefur verið til við- gerða hjá Rolls Royce í Noregi í á þriðja mánuð. MYND/BJÖRGÓLFUR HÁVARÐSSON AMSTERDAM, AP Ein kona á sjö- tugsaldri fórst og sextán slösuðust alvarlega í lestarslysi í Amsterdam, höfuðborg Hollands, á laugardags- kvöld. Tvær lestir skullu saman og er þetta eitt versta lestarslysið í Hollandi í langan tíma. Ekki er vitað hvað olli slysinu en rannsakað verður hvort mannleg mistök hafi átt sér stað eða hvort bilun hafi verið í tækjabúnaði. „Það er algjör martröð þegar tvær lestir skella saman á sömu lestarteinum,“ sagði Bert Meerstadt, yfirmaður lestarmála í Hollandi. - fb Alvarlegt lestarslys í Hollandi: Kona fórst og 16 eru slasaðir HEILBRIGÐISMÁL Viðtalstækni sem nefnist „áhugahvetjandi samtal“ (eða motivational interviewing) verður innleidd með kerfisbundnari hætti en áður á meðferðarheimilinu Stuðlum. Fram kemur á vef Stuðla að rann- sóknir hafi leitt í ljós að aðferðin beri árangur í ráðgjöf, bráðaþjón- ustu og meðferðarvinnu með ung- lingum sem glími við hegðunar- og vímuefnavanda. „Aðferðin miðar að því að virkja vilja skjólstæðings til jákvæðra breytinga á lífsstíl og hegðun,“ segir þar. - óká Nota áhugahvetjandi samtal: Styrkja vilja til góðra breytinga ÍRAN,AP Íranir eru að smíða end- urgerð af ómannaðri bandrískri njósnavél sem herinn þar í landi gerði upptæka á síðasta ári. Írön- um tókst að finna í vélinni upp- lýsingar um fyrri ferðir hennar og að sögn hershöfðingjans Amir Ali Hajizadeh hafði hún ferðast um norðvesturhluta Pakistan þar sem bandarískir hermenn fundu Osama Bin Laden og drápu hann. Bandaríkjamenn hafa viður- kennt að hafa týnt njósnavélinni. Þeir telja að Íranir muni eiga í erfiðleikum með að notfæra sér tæknina í vélinni og upplýsingarn- ar sem hún hefur að geyma. - fb Týndu njósnatæki í Íran: Njósnaflugvél endursmíðuð HJÁ NJÓSNAVÉLINNI Íranir hjá banda- rísku njósnavélinni sem þeir ætla að endurgera. MYND/AP PRAG,AP Tugir þúsunda manns gengu um götur Prag, höfuðborg- ar Tékklands, á laugardag til að mótmæla niðurskurði stjórnvalda. Þetta voru ein fjölmennustu mót- mælin gegn stjórnvöldum í Tékk- landi síðan kommúnisminn féll fyrir næstum 23 árum. Mótmælendurnir sem fjöl- menntu af öllu landinu hvöttu stjórnvöld til að hætta við niður- skurðinn og segja af sér. Þeir kröfðust einnig þingkosninga. Ríkisstjórnin segir að niður- skurðurinn og fleiri breytingar sem þurfi að gera séu nauðsyn- legar til að þjóðin falli ekki í djúpt skuldafen. - fb Niðurskurður í Tékklandi: Tugir þúsunda mótmæla í Prag MÓTMÆLI Tugir þúsunda mótmæltu niðurskurði tékkneskra stjórnvalda. MYND/AP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 13° 15° 12° 13° 15° 12° 12° 21° 9° 19° 15° 23° 5° 11° 18° 12°Á MORGUN 3-10 m/s víðast hvar. MIÐVIKUDAGUR Hægur vindur um allt land. 8 5 2 6 4 3 2 5 7 7 2 5 4 7 5 3 7 4 10 6 12 3 7 2 1 0 4 6 1 1 -2 2 SVALT NA-TIL Útlit er fyrir hæglætis- veður næstu daga, það verður heldur svalt víða norð- an- og austantil, sæmilegur hiti að deginum SV-lands. Í dag og á morgun ríkja norðan- og austanáttir en á miðvikudaginn lítur út fyrir hæga, breytilega átt. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður ALASKA, AP Blakbolti og fótbolti sem nýlega fundust við strend- ur eyjunnar Middleton Island í Alaskaflóa, eru brak úr flóðbylgj- unni sem gekk yfir Japan í fyrra. Dagblaðið Anchorage Daily News segir radartæknimann sem starfar á eyjunni hafa fundið boltana. Eiginkonu hans tókst að rekja skriftina á öðrum boltanum til japansks skóla sem varð fyrir flóðbylgjunni. Vísindamenn telja hlutina á meðal þeirra fyrstu sem rekur á strendur Bandaríkjanna úr flóðinu í Japan. - fb Ársgamalt flóðbylgjubrak: Japanska bolta rak til Alaska

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.