Fréttablaðið - 23.04.2012, Síða 17
■ FRAMHALD Á SÍÐU 2
Borðið Playble hannaði Helga Björg Jónasdóttir í meistaranámi í Child Culture Design í HDK
Gautaborgarháskóla. Markmiðið var
að hanna húsgagn með möguleika á
leik, fyrir húsgagnasýningu í Mílanó.
„Við erum 11 nemendur sem sýnum
saman í Ventura Lambrate en það sýn-
ingarsvæði hefur fengið mikla athygli
undanfarin 3 ár á Salone Del Mobile.
Sýningin heitir „Play in Progress“ og
byggir á leik og þátttöku sýningar-
gesta,“ útskýrir Helga. Hugmyndina
að baki borðinu sótti hún í æskuminn-
ingar sínar.
„Ég lék mér mikið með húsgögnin
heima hjá mér og setti oft endann á
stofuborðinu upp á bakið á stól og
notaði það sem rennibraut. Í hönn-
unarferlinu gerði ég líka rannsókn á
minningum fólks um leik með húsgögn
í æsku. Svörin voru mörg og skemmti-
leg og allir sem ég ræddi við höfðu
mikla ánægju af því að rifja þetta upp.
Sum svaranna notaði ég til að bæta
fleiri leikmöguleikum við borðið.“
Fætur Playble borðsins breytast
með einföldu handtaki í stiga og með
því að reisa stigann upp öðru megin
má búa til hallandi rennibraut. Undir
LEIKUR MEÐ HÚSGAGN
HÖNNUN Helga Björg Jónasdóttir vöruhönnuður sýnir nýjasta verk sitt á
hönnunarmessunni í Mílanó þessa dagana, borðið Playble.
SÝNIR Í MÍLANÓ
Helga stundar meistara-
nám við HDK Gauta-
borgarháskóla og var
hönnunarferlið fyrir
sýninguna í Mílanó hluti
af náminu. MYND/ANTON
MÖGULEIKAR Undir
borðplötunni leynist krítar-
tafla og með því að breiða
teppi yfir borðið má breyta
því í hús.
LIST Í RÁÐHÚSI
Í næstu viku, eða dagana 3. – 7. maí, verður
haldin stórsýning á íslensku handverki, list-
iðnaði og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Margir þekktir listamenn sýna verk sín
en þetta er í fyrsta sinn sem sýningin er
haldin að vori.
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
Fermingartilboð
Gerið GÆÐA- og verðsamanburð
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
12 má
naða
vaxtal
ausar
greiðs
lur*
Stærð Verð Tilboð
120x200 84.900 kr. 79.900 kr.
VALHÖLLNý hönnun
5 svæðaskipt gormakerfi, gæðabólstrun,
stál kantstyrkingar
Verð með íslenskum botni og fótum
10.000 kr
. vöruútte
kt
fylgir öllum
fermingar
rúmum
*3,5%
lánt
ökug
jald