Fréttablaðið - 23.04.2012, Side 19
LYFTARAR
MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2012
Kynningarblað
Gaffallyftarar, dísel- og
rafmagnslyftarar,
sérhannaðir lyftarar og
vöruhúsatæki.
Í nær hálfa öld hefur fyrirtæk-ið PON Pétur
O. Ni k u lá sson
ehf. selt atvinnu-
vegum landsins há-
gæða lyftara. Fyrir-
tækið heldur upp á
fimmtíu ára afmæli
sitt í apríl. Af því til-
efni mun fyrirtækið
bjóða viðskiptavin-
um sínum upp á einstakt tilboð á
nokkrum Manitou skotbómulyft-
urum sem eru leiðandi í heimin-
um í þessari vörutegund.
Pjetur N. Pjetursson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
Manitou lyftarana hafa verið leið-
andi á mörkuðum sem gera mikl-
ar körfur um gæði, enda hafi þeir
slegið í gegn hérlendis. „Síðustu
ár hafa skotbómulyftararnir frá
Manitou notið mikilla vinsælda
enda varla hægt að finna tæki með
fleiri fjölnota eiginleika þar sem
þeir nýtast alls staðar þar sem þörf
er á lyftitækjum.“ Hann nefnir sem
dæmi um notagildi lyftaranna að
þeir henti mjög vel við byggingar-
framkvæmdir, við lest-
un og losun vöruflutn-
ingabíla og löndun
sjávarfangs. Undan-
farin misseri hafi líka
bændur uppgötvað
að tækið sé ómiss-
andi við búskapinn.
Hagstætt afmælis-
tilboð
Pjetur segir eigendur Manitou, sem
er franskt fyrirtæki, mjög ánægða
með sterka markaðshlutdeild sína
á Íslandi og hafi af því tilefni að-
stoðað PON við að bjóða lyftar-
ana á hagstæðu verði. „Framleið-
andinn ákvað að taka þátt í þessu
með okkur. Því gáfu þeir okkur gott
verð af þessu tilefni. Við erum því
að bjóða Manitou skotbómulyft-
ara á sérstöku tilboðsverði. Fyrst-
ir koma, fyrstir fá og tryggja sér há-
gæða skotbómulyftara á frábæru
verði.“
Fjölbreytt úrval lyftara
PON var fjölskyldufyrirtæki, stofn-
að árið 1962. Aldamótaárið 2000
breyttist starfssemi og þjónusta
fyrirtækisins þegar Vélaverkstæði
Hjalta Einarssonar keypti fyrirtæk-
ið. „PON ehf. hefur náð mjög góðri
markaðshlutdeild á Íslandi undan-
farin ár. Við erum til dæmis með
um 50-60% markaðshlutdeild í skot-
bómulyfturum.“ PON er einnig með
umboð fyrir ATLET lyftara frá Sví-
þjóð sem hafa reynst vel enda halda
viðskiptavinir mikilli tryggð við þá.
Fyrirtækið tók nýlega við umboðinu
fyrir HYSTER gaffallyftara sem hafa
verið í notkun hér á landi í áratugi.
„Við bjóðum alla eigendur HYSTER
velkomna og munum kappkosta við
að veita þeim allra bestu þjónustu
hvort sem um er að ræða varahluti
eða almenna þjónustu við lyftar-
ana.“ PON tók einnig yfir umboð-
ið fyrir Konecranes gámalyftara en
Konecranes er leiðandi framleið-
andi í heiminum á lyfturum með 10
til 80 tonna lyftigetu. Nokkur öflug
fyrirtæki á Íslandi hafa nú þegar
tekið fyrstu Konecranes gámalyft-
arana í notkun.
Varahlutir og viðgerðaþjónusta í
forgangi
Pjetur segir þó ekki nóg að selja
lyftarana. „Hjá PON kappkostum
við einnig að veita fullkomna við-
gerðar- og varahlutaþjónustu. Móð-
urfyrirtæki okkar, Vélaverkstæði
Hjalta Einarssonar (VHE), sér um
viðgerðarþjónustuna hjá okkur. Á
verkstæðinu starfa sérmenntað-
ir viðgerðarmenn sem hafa farið
á námskeið hjá framleiðendun-
um lyftaranna og viðurkenndir af
þeim.“ VHE rekur viðurkennt við-
gerðarverkstæði í eigin húsnæði að
Melbraut 21-23 í Hafnarfirði. Öflug-
ur varahlutalager er einnig til húsa
þar. Sé varahlutur ekki til á lager er
hann pantaður hjá framleiðanda og
kominn í hús innan sólarhrings að
sögn Pjeturs.
Hágæða skotbómulyftarar með
fjölbreytta notkunarmöguleika
PON Pétur O. Nikulásson ehf. leggur metnað sinn í að flytja inn og selja hágæða gaffallyftara á samkeppnishæfu verði. Fyrirtækið kappkostar að
þjóna viðskiptavinum vel með góðri viðgerðar- og varahlutaþjónustu. Fyrirtækið heldur upp á 50 ára afmæli í apríl.
„Síðustu ár hafa skotbómulyftararnir frá Manitou notið mikilla vinsælda enda varla hægt
að finna tæki með fleiri fjölnota eiginleika,“ segir Pjetur N. Pjetursson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins. MYND/VALGARÐUR GÍSLASON
Manitou skotbómulyftarinn hentar vel til byggingarframkvæmda, við lestun og losun vöruflutningabíla og löndun sjávarfangs. MYND/VALGARÐUR GÍSLASON