Fréttablaðið - 22.05.2012, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 22. maí 2012 11
HANDRITSROLLA KEROUACS Í París er
nú til sýnis 36 metra löng pappírsrolla,
upprunalegt handrit bandaríska rithöf-
undarins Jack Kerouacs að bókinni Á
vegum úti. NORDICPHOTOS/AFP
EVRÓPUMÁL Vísbendingar eru um
það í opnunarviðmiðum Evrópu-
sambandsins (ESB) fyrir þann
hluta aðildarviðræðna sem
snýr að landbúnaðarmálum
að sérstakt tillit verði tekið til
aðstæðna hér á landi í aðildar-
samningi við Ísland.
Þetta kemur fram í viðtali við
Stefán Hauk Jóhannesson, aðal-
samningamann Íslands í aðildar-
viðræðum við ESB, sem birtist
í blaðinu Sveitinni. Sveitin er
gefið út af þverpólitískum hópi
Evrópu sinna og dreift á öll lög-
býli á Íslandi.
„ESB hefur
sýnt í fyrri við-
ræðum að sam-
bandið er til-
búið að útvíkka
sínar reglur og
semja um sér-
lausnir,“ segir
Stefán Haukur
í viðtali við
blaðið.
„Við erum
með vísbendingar um að það sé
tilbúið til þess varðandi Ísland
eins og í fyrri aðildarviðræðum,“
segir hann þar jafnframt.
Íslenska samninganefndin mun
leggja áherslu á að sérlausnir
fyrir íslenskan landbúnað verði
sambærilegar við sérlausnir sem
Finnar náðu í gegn í aðildarvið-
ræðum við ESB, segir Stefán
Haukur.
Slíka lausn segir hann þó að
þyrfti að klæðskerasauma fyrir
íslenskar aðstæður.
Í samantekt Sveitarinnar
kemur fram að ef finnska kerfið
yrði innleitt í íslenskum land-
búnaði yrði stuðningur við land-
búnaðinn heldur meiri en hann er
í dag. - bj
Vísbendingar um að ESB muni taka tillit til íslenskra aðstæðna í landbúnaði:
Vísbendingar um sérlausnir
STEFÁN HAUKUR
JÓHANNESSON
FERÐAÞJÓNUSTA Björgunarsveitir
hafa tekið upp gjaldtöku vegna
aðstoðar við ökumenn sem ekið
hafa inn á lokaða vegi í trássi við
merkingar.
Frá því var greint í Bylgjufrétt-
um í gær að erlendir ferðamenn
hefðu mátt greiða björgunarsveit
frá Kirkjubæjarklaustri 20.000
krónur fyrir aðstoð á Lakagíga-
leið í síðustu viku. Þeir höfðu virt
að vettugi merkingu um lokun og
festu svo bílinn. Lögregla sektaði
svo ökumanninn um 5.000 krónur
fyrir að aka inn á lokaðan veg. - óká
Ferðafólk virti ekki lokunina:
Rukkað var um
20 þúsund kall
LÖGREGLUMÁL Lagt var hald á
fíkniefni, þýfi og haglabyssu í
húsleit lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu í Árbæ síðastliðið
föstudagskvöld. Að sögn lögreglu
tengist húsráðandi þar glæpa-
samtökunum Hells Angels.
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu lögreglu naut hún aðstoðar
fíkniefnaleitarhunds frá tollinum
við húsleitina í Árbænum.
Sama kvöld leitaði lögregla
svo í íbúð fjölbýlishúss í mið-
borg Reykjavíkur, en þar fannst
kókaín, amfetamín og sterar. - óká
Leitað hjá Hells Angels-liða:
Fundu vopn,
þýfi og eiturlyf
MÓTORHJÓLABÓFAR Danskir lög-
reglumenn hafa afskipti af svissneskum
og sænskum meðlimum Hells Angels í
Kaupmannahöfn. NORDICPHOTOS/AFP
DANMÖRK Umsókn um styrk til
framleiðslu barnamyndar var
hafnað í Danmörku þar sem leik-
endur væru þeldökkir.
Samkvæmt frétt dönsku frétta-
veitunnar Ritzau voru rök dönsku
kvikmyndastofnunarinnar þau að
kvikmyndin myndi ekki njóta vel-
gengni á landsbyggðinni vegna
húðlitar leikaranna. Ekkert þótti
athugavert við umfjöllunarefnið.
Kvikmyndastofnunin vitnaði
í aðra mynd sem ekki reyndist
söluvænleg þar sem leikararnir
voru ekki danskir.
Framleiðandinn segist hafa trú
á söguefninu. Sagan sé það góð
að húðlitur leikaranna skipti ekki
máli. - ibs
Danska kvikmyndastofnunin:
Enginn styrkur
vegna húðlitar
leikaranna
NOREGUR Ekki er hægt að fram-
leiða mat í Jötunheimum í Noregi
vegna mikillar geislavirkni.
Eftir kjarnorkuslysið í
Tsjernóbíl í Úkraínu í apríl 1986
mældist geislavirknin í Noregi
einna mest í Jötunheimum, að því
er Aftenposten greinir frá. Norð-
menn hafa lengi forðast að snæða
dýr frá svæðinu.
Niðurstöður mælinganna gefa
til kynna að Norðmenn þurfi
lengi enn að forðast að borða
dýr frá svæðinu. Vegna niður-
staðnanna þar á svo að mæla
geislavirkni á fleiri stöðum í
Noregi. - ibs
Afleiðingar Tsjernobílslyssins:
Enn geislavirkni
í Jötunheimum
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
93
51
0
4/
12